Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2010, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 16.12.2010, Qupperneq 64
8 ● fréttablaðið ● hátíðarmatur Tvíreyktu húskarlahangikjöti frá Kjarnafæði hefur verið vel tekið síðan það kom á markað fyrir rúmum tíu árum, enda þykir bragðið afar sérstætt. „Fyrir svona rúmum áratug fór hráskinka að verða vinsælli hérlendis og þá fór fólk að beina sjónum sínum að hangikjötinu og hvernig hægt væri að nýta það á svipaðan hátt,“ segir Eðvald Sveinn Valgarðsson, gæða- stjóri Kjarnafæðis. „Það mætti eiginlega kalla tvíreykta kjötið hina íslensku hráskinku.“ Í kjölfar aukins áhuga tóku Kjarnafæði og Jólagarðurinn í Eyjafirði upp samstarf og hófu framleiðslu á tvíreyktu hangikjöti. Kjötinu var vel tekið enda mikill áhugi á gömlum verkunaraðferð- um. Kjötið er kofareykt með taði og veljast frekar lítil læri til þess svo reykurinn nái inn að beini og kjötið verði vel reykt. Kjötið er bragðmeira en hefðbundið hangi- kjöt en um leið minna saltað. Það er þurrara, geymist betur í hita og auðveldara að skera það hrátt. „Húskarlahangikjötið hentar vel sem forréttur, smáréttur á hlað- borði eða smábiti milli mála. Það fylgir því sérstök jólastemming að fá sér húskarlahangikjöt í upphafi aðventu, hengja það upp heima- við og skera sér flís af og til. Af því leggur einnig sérstakan jóla- ilm sem mörgum þykir ómissandi á aðventunni,“ segir Eðvald. Hin íslenska hráskinka Hvort sem það er kalt eða heitt, með uppstúf eða á laufa- brauði, á fjöllum eða í jólaboði stendur hangikjötið alltaf fyrir sínu. En það er ekki sama hvernig það er verkað. Jólatörn kjötiðnaðarmanna er nú í algleymingi en þeir hafa reykt og hengt upp kjöt síðan í lok októb- er. Eftirspurnin er mikil ef marka má sölutölur nóvembermánaðar og fyrri hluta desembermánaðar. „Sala á hangikjöti fyrir jólin hefur stóraukist hin síðari ár,“ segir Auðjón Guðmundsson hjá Kjarnafæði og bætir við að kofa- reykta hangikjötið njóti hvað mestra vinsælda. „Það hefur verið í sókn á liðnum árum, en við hjá Kjarnafæði höfum lagt áherslu á að reykja kjöt með gömlum aðferð- um.“ Auðjón vill meina að kofa- reykingin skili bragðmeira kjöti, þrátt fyrir að vera léttsaltað- ara en gengur og gerist og virð- ist það falla fólki vel í geð. „Raun- in er sú að nú vill fólk fá eitthvað ekta og gamaldags. Það hefur orðið mikil vakning meðal al- mennings varðandi hollustu matvæla og okkar fyrirtæki hefur lagt kapp á að mæta þeim kröfum.“ Auðjón er lítið fyrir að flækja hlutina er kemur að hangikjötinu. Svo lengi sem hangikjötið er alvöru hangikjöt, kofareykt eða taðreykt, verður útkoman góð. Sjálfur hefur hann tvíreykt læri hangandi neðan úr lofti á skrif- stofu sinni og stelst annað veifið til að skera sér flís að hætti heima- manna. „Annars stendur hangi- kjötið með uppstúf alltaf fyrir sínu sem hátíðarmatur Íslend- inga. Maður ólst náttúrulega upp með þessu og hangikjöt með upp- stúf er ein- faldlega ómissandi meðan haldin eru heilög ís- lensk jól.“ Hátíðarréttur Íslendinga Hangikjöt hefur verið á borðum landsmanna síðan land var numið og því er óhætt að segja að það sé löngu búið að festa sig í sessi sem þjóðarréttur Íslendinga. Hér gæðir starfsmaður Jólagarðsins í Eyjafirði sér á húskarlahangikjötinu. 1 hangilæri eða -frampartur Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp. Slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp. Látið ekki bullsjóða í pottinum. Látið kjötið kólna í pottinum undir loki. Berið hangikjötið fram með upp- stúf, soðnum kartöflum, grænum Ora- baunum og laufabrauði. Uppstúf 50 g smjör 50 g hveiti 1 l mjólk ½ tsk. salt 1-3 msk. sykur ögn hvítur pipar Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitinu saman við þannig að úr verði smjör- bolla. Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínút- ur og hrærið vel í á meðan. Kryddið með salti, sykri og pipar. Auðjón Guðmundsson gæðir sér hér á húskarla- hangikjöti sem hangir á skrifstofu hans. - veldu kofareykt hangikjöt frá Kjarnafæði! Kofareykta hangikjötið frá Kjarnafæði er sérvalið fyrsta flokks lambakjöt með ljúffengu, ríku og hefðbundnu íslensku reykbragði, verkað og reykt af kjötiðnaðarmeisturum fyrirtækisins. Það njóta allir jólanna með hangikjöt frá Kjarnafæði á borðum - því hvað er betra!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.