Fréttablaðið - 16.12.2010, Side 88

Fréttablaðið - 16.12.2010, Side 88
72 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Hljómsveitin Mukkaló var stofnuð fyrir rúmu ári en hefur náð að afreka ýmislegt. Hljómsveitin er nýkomin heim frá Bretlandi þar sem hún kom fram með spútniksveitinni Bombay Bicycle Club. „Þeir voru aldrei með neina stjörnustæla og eru mjög hógvær- ir,“ segir Þorbjörg Ósk Eggerts- dóttir, söngkona hljómsveitarinn- ar Mukkaló. Hljómsveitin Bombay Bicycle Club, sem kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni í október, bauð Mukkaló að spila með sér á tvennum tónleikum í Queen Eliza- beth Hall í Lundúnum á dögunum. Hljómsveitirnar kynntust í okt- óber þegar strákarnir í Bombay Bicycle Club mættu óvænt á tón- leika Mukkaló í Reykjavík. „Við keyptum flugmiðana, en þeir borguðu okkur smá pening fyrir tónleikana,“ segir Þorbjörg. „Við gerðum litla EP-plötu áður en við fórum út og gátum selt úti. Við seldum tæplega 200 diska. Þeir voru hissa á hvað við náðum að selja mikið.“ Bombay Bicycle Club nýtur vax- andi vinsælda í Evrópu, en önnur breiðskífa hljómsveitarinnar náði áttunda sæti breska vinsældalist- ans á árinu. Þorbjörg segir vin- sældirnar ekki hafa stigið strákun- um í hljómsveitinni til höfuðs, en tveir af þeim leyfðu henni og fiðlu- leikara Mukkaló að gista á dýnum á gólfi íbúðar sem þeir leigja í Lund- únum. Þá segir hún fólkinu í kring- um bresku hljómsveitina hafa lit- ist vel á Mukkaló. „Umboðsmaður Bombay var mjög spenntur fyrir að vinna meira með okkur,“ segir hún. „Hann vildi hjálpa okkur að halda fleiri tónleika í Englandi og svona. Þeir töluðu líka um hvað þeim fannst gaman á Íslandi, þeir elskuðu landið og langar pottþétt að koma aftur.“ Mukkaló hélt í tónleikaferð um landið í gær ásamt Júníusi Meyvant. Ferðalagið er sérstakt að því leyti að kirkjur landsins verða nýttar sem tónleikasalir. Tónleika- ferðin hófst í Sauðárkrókskirkju og í kvöld koma þau fram í Siglufjarð- arkirkju. Á næstu dögum koma þau svo við í Húsavíkurkirkju, Bláu kirkjunni á Seyðisfirði, Víkur- kirkju og loks í Stóra-Núpskirkju í Gnúpverjahreppi. atlifannar@frettabladid.is Beint á Íslandstúr í kjölfar tónleika með Bombay Bicycle Club í London MIKIÐ AÐ GERA Mukkaló er nýkomin frá Bretlandi og er þegar farin í tónleikaferð um landið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Klovn-mynd Caspers Christiansen og Franks Hvam var forsýnd dönskum fyrirmennum í Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld. Mynd- in fær prýðilega dóma í dönskum blöðum og meðal annars fjórar stjörnur af sex hjá B.T. Klovn: The Movie segir frá ferðalagi félaganna á kanóhátíð við Gudenåen-fljótið á Austur-Jótlandi. Þeir eru reyndar þar í ólík- um tilgangi; Casper er að venju á kvennafari en Frank hyggst skoða hversu hæfur hann er til að verða pabbi. Og hefur rænt tólf ára frænda Miu til að fá úr því skorið hvort það sé yfirhöfuð eitthvað fyrir hann. Gagnrýnandi B.T. segir það augljóst að Frank Hvam og Casper séu ekki leikarar en það komi ekki að sök í myndinni. Hún sé upp- full af pínlegum atriðum eins og þeirra sé von og vísa en kannski sé „kúk og piss“-atrið- um og bröndurum ofaukið. Gagnrýnandinn bætir því við að myndin sé jafngóð og meðal- góður Klovn-þáttur, hún sé ekki þeirra besta verk. „Ef þú hlóst að þáttunum áttu eftir að hlæja að myndinni,“ skrifar gagnrýnandi B.T. Gagnrýnandi Ekstrablaðsins er hins vegar mun jákvæðari og segir Klovn-myndina vera fyndnustu mynd Dana í háa herrans tíð og skreytir dóm sinn með fimm stjörnum af sex mögulegum. Hann fer lofsamlegum orðum um myndina, segir dæmið ganga nánast full- komlega upp og bætir því við að Klovn: The Movie sé ekki fyrir börn. Klovn-myndin fær ágætis dóma IBEN, CASPER OG FRANK Á ÍSLANDI Klovn: The Movie er vel heppnuð að mati dönsku blaðanna B.T. og Ekstrablaðsins. B.T. gefur henni fjórar af sex og Ekstrablaðið fimm af sex. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Liam Gallagher telur að fyrsta plata nýju hljómsveitar hans Beady Eye, Different Gear, Still Speeding, sé ekki síðri en frum- burður Oasis, Definitely Maybe. „Tónlistarmennirnir eru betri, engin spurning. Söngurinn minn hefur líka aldrei verið betri,“ sagði Gallagher og bætti við að platan, sem kemur út 28. febrú- ar, sé virkilega góð. Gallagher var einnig spurður um álit sitt á bresku hljómsveitunum The Vaccines og Brother. Hann sagði þá fyrr- nefndu vera leiðin- lega og að með- limir hinn- ar væru litlir snobbað- ir strákar með húð- flúr. Beady ekki síðri en Oasis DAGUR er á milli þeirra Taylor Swift og Jake Gyllenhaals í aldri, en þau eru nýjasta parið í Hollywood. Jake verður þrítugur hinn 19. desember en Taylor átti 21. árs afmæli hinn 13. desember. Hin breska Heather Mills hefur náð þeim árangri að komast í skíðalið fatlaðra í heimalandi sínu, en Mills missti hluta af fót- legg þegar lögreglumótorhjól keyrði á hana árið 1993. Hún er nú komin skrefi nær langþráðum draumi sínum um að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra, en þeir verða haldnir í Rússlandi árið 2014. „Ég komst í breska skíðaliðið fyrir fatl- aða. Ég komst að því fyrir um sex vikum og ég er mjög spennt. Það er ekki greint frá því hverjir komast í Ólympíuliðið fyrr en þremur mánuð- um fyrir leikana. Ef maður er nógu heppinn að kom- ast í landslið- ið, sem ég er, þá fer maður á reynslu fyrir Ólympíulið- ið.“ Mills segist hafa haft yndi af íþróttum allt sitt líf og að lang- þráður draum- ur hennar myndi rætast ef hún fengi að keppa á Ólympíu- leikunum. Heather Mills í skíðalands- liði fatlaðra LIAM GALLAGHER Hefur mikla trú á fyrstu plötu Beady Eye sem er væntan leg í febrúar. 3281 Jólamatseðill Humarsúpa kr. 1550.- Andabringa kr. 3890.- Gleðileg Jól. Restaurant Pizzeria Gallerí – Café Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.