Fréttablaðið - 16.12.2010, Blaðsíða 92
76 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Hvort það hafi eitthvað
með afstöðu stjarnanna
yfir Hollywood að gera eða
tími sambandsins sé liðinn
í kvikmyndaborginni þá er
ljóst að sambandsslitafár
ríkir í Draumaborginni.
Fimm skilnaðir rötuðu á síður
blaðanna í Bandaríkjunum í vik-
unni og fjölmiðlafígúrur hafa velt
því fyrir sér hvort stjörnurnar hafi
komið verr út úr efnahagshruninu
en gert hafði verið ráð fyrir; þær
tími einfaldlega ekki að kaupa jóla-
gjafir handa hvort öðru.
Að öllu gamni slepptu er
óvæntasti skilnaður vikunnar vafa-
lítið sambandsslit Scarlett Johan-
son og Ryans Reynolds. Seint á
þriðjudagskvöld sendu skötuhjúin
frá sér fréttatilkynningu þar sem
kom fram að þau hefðu ákveðið að
segja þetta gott í bili. „Við geng-
um í hjónaband af ást og skiljum
af ást og umhyggju. Þótt við vitum
að það þýði ekki að biðja um frið
þá væri það samt vel þegið,“ segir
í sameiginlegri fréttatilkynningu
sem barst fjölmiðlum um kvöld-
ið. Scarlett og Ryan kynntust fyrir
þremur árum, opinberuðu trúlofun
sína í maí 2008 og gengu í hjóna-
band í september sama ár.
En þetta var ekki eina áfallið
sem dundi yfir Hollywood þenn-
an dag því eins og flestir fjöl-
miðlar greindu frá hættu þau
Zac Efron og Vanessa Hudgens
saman. Þau höfðu verið að hitt-
ast í fjögur ár og kynntust gegn-
um söng- og dansmyndirnar High
School Musical. Þriðja parið sem
tilkynnti um skilnað sinn um svip-
að leyti voru Dexter-stjörnurnar
Michael C. Hall og Jennifer Carp-
enter. Þau höfðu verið gift í tvö ár
en leika systkini í þáttunum. Parið
hafði gengið í gegnum erfiða tíma
og sá fram á að sambandið gæti
ekki gengið lengur. Fjórða hjóna-
bandið sem fór í vaskinn á þriðju-
dag var þeirra Davids Thewlis og
Önnu Friel, en þau höfðu verið gift
í níu ár. Thewlis er hvað þekktast-
ur fyrir leik sinn í Harry Potter-
myndunum. Fimmtu sambandsslit-
in í vikunni voru hjás Liz Hurley
og hinum indverska Arun Nayar.
Bresk blöð birtu mynd af Hurley
að kyssa ástralska krikket-leik-
manninn Shane Warner og þau
Hurley og Nayar komu út úr skápn-
um; þau höfðu þá verið skilin í þrjá
mánuði. freyrgigja@frettabladid.is
Alda ástarsorgar skellur á
Draumaborginni fyrir jólin
TÍMALÍNA ÁSTARSORGAR
Raunveruleikastjarnan Nicole Rich-
ie og rokkarinn Joel Madden gengu
í hið heilaga helgina sem leið. Sam-
kvæmt heimildarmönnum hafði
parið selt birtingaréttinn að brúð-
kaupsmyndum sínum og var því
mjög umhugað um að engar myndir
lækju á netið.
„Hún var svo hrædd um að ein-
hver gestanna myndi fara á bak við
hana og selja myndir úr brúðkaup-
inu að farsímar voru teknir af fólki
áður en athöfnin hófst. Þetta kom
fólki í vont skap því þetta sýnir aug-
ljóst vantraust,“ var haft eftir inn-
anbúðarmanni. Richie var víst einn-
ig mjög óákveðin um ýmis smáatriði
alveg fram á síðustu stundu og
breytti meðal annars matseðlinum
nokkrum sinnum.
Kim Kardashian og Christinu
Aguilera var báðum boðið í brúð-
kaupið en mættu ekki vegna vinnu.
Nicky Hilton var þó viðstödd brúð-
kaupið en systir hennar, Paris Hilt-
on, var aftur á móti ekki boðið þrátt
fyrir að hafa verið vinkona Richie
frá tveggja ára aldri.
Farsímar teknir af
brúðkaupsgestum
NÝGIFT Gestir í brúðkaupi Nicole Richie
og Joels Madden fengu ekki að vera
með farsíma á sér. NORDICPHOTOS/GETTY
SKILNAÐARALDA
Ryan Reynolds og Scarlett
Johansson, Vanessa Hudgens
og Zach Effron, Michael C.
Hall og Jennifer Carpenter, Liz
Hurley og Arun Nayar og David
Thewlis og Anna Friel, allt pör
eða hjón sem ákváðu að halda
hvort í sína áttina í vikunni.
Janúar
Febrúar
M
ars
Apríl
M
aí
Júní
Júlí
Ágúst
Septem
ber
O
któber
N
óvem
ber
D
esem
ber
Evan Rachel Wood og Marilyn Manson
Tiger Woods og Elin Nordegren
Kelsey Grammer og Camille Donatacci
Sean Penn og Robin Wright
Al Gore og Tipper Gore
Charlize Theron og Stuart Townsend
Kate Winslet og Sam Mendes
Kim Kardashian og Reggie Bush
Jennifer Love Hewitt og Jamie Kennedy
Jesse James og Sandra Bullock
Halle Berry og Gabriel Aubry
Mel Gibson og Oksana
Blake Lively og Penn Badgley
David Arquette og Courtney Cox
Christina Auguilera og Jordan Bratman
Billy Ray Cyrus og Tish
Dylan Walsh og Joanna Going
Ryan Reynolds og Scarlett Johansson
Vanessa Hudgens og Zac Efron
David Thewlis og Anna Friel
Michael C. Hall og Jennifer Carpenter
Liz Hurley og Arun Nayar
Eva Longoria og Tony Parker
Rachel Weisz og Darren Aronofsky
Páll Óskar
í dag!
1.992,-
Í verslun Eymundsson
í Kringlunni kl. 17.00
Eymundsson Kringlunni v. hliðina á Bónus