Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 27
Fyrsta framkvæmdastjórn sjúkrahússbyggingarinnar, frá vinstri Ragnar Guð-
leifsson, Karvel Ögmundsson og Björn Finnbogason.
greiðslur skulda. Einnig að hafa
eftirlit með eigninni og stjórna
málefnum stofnunarinnar í sam-
ráði við sjúkrahússtjórn.
Á næsta fundi, 16. mars, var
kosinn fyrsti formaður sjúkra-
hússtjórnar, Ragnar Guðleifsson.
í framkvæmdanefnd voru kosnir
Karvel Ögmundsson, Björn Finn-
bogason og Ragnar Guðleifsson,
og var nefndinni falið að leita eftir
láni allt að kr. 700 þúsund. Á
þessum tíma höfðu allar fram-
kvæmdir stöðvast vegna fjár-
skorts, en smávegis íjármagn
náðist og því var ákveðið að hefja
framkvæmdir að nýju vorið 1947.
Verkið tóku að sér Einar Norð-
fjörð, Bergsteinn Sigurðsson og
Guðjón Hjörleifsson. Verkstjóri
var ráðinn Kristinn Jónsson.
Samkomulag varð um að ofan-
taldir menn tækju að sér áfram-
haldandi vinnu við bygginguna.
Unnið yrði í tímavinnu og skyldi
kaup vera samkvæmt samning-
um stéttarfélaga.
Miklir fjárhagsörðugleikar voru
vegna skorts á lánsfé og sömuleið-
is tafði skömmtun á vörum fram-
kvæmdir.
Á aðalfundi sjúkrahússtjórnar
21. mars 1948 var lagt fram gjafa
og afsalsbréf frá Rauðakross-
deildinn: í> rir sjúkrahúsbygging-
unni og á þessum sama fundi var
tekið á móti framlagi frá Gull-
Dringusýslu, 25 þús. kr., gegn
tvöföldu framlagi hreppanna.
Á þessum fundi kom fram að í
árslok 1947 nam bygginga-
kostnaðurkr. 527.115,44. Einnig
er héraðslækni falið að athuga
hvað þurfa muni af áhöldum til
sjúkrahússins, og jafnframt að at-
huga hvað þau muni kosta. Sam-
þykkt að bjóða málningu á húsinu
út og framkvæmdanefnd falið að
sjá um það.
Um vorið 1949 hafði byggingin
verulega þokast áfram og þá feng-
ust loks langþráðir peningar, lán
að upphæð kr. 300 þúsund.
Þctta sumar urðu töluverðar
umræður um það hvort lyfta
skyldi vera í sjúkrahúsinu.
Fram kom að framkvæmda-
nefnd hafði leitað álits Péturs
Jakobssonar, læknis og yfir-
hjúkrunarkonunnar á Landspít-
alanum og töldu þau sjálfsagt að
höfð yrði lyfta í húsinu, þar sem
um nýbyggingu væri að ræða.
Að lokum var ákveðið að breyta
byggingunni þannig, að hægt yrði
að koma fyrir lyftu.
Þetta sama sumar bauðst ka-
þólska reglan til að taka áð sér
rekstur sjúkrahússins eða leggja
til starfsfólk við stofnunina.
Þessu virðist hafa verið hafnað
því engar bókanir um viðræður
eru finnanlegar.
Verkinu miðar hægt
Á árabilinu 1949-52 miðar
framkvæmdum við bygginguna
hægt.
Árið 1952 mátti heita að bygg-
ingin væri fullgerð. Málningu ut-
an og innanhúss var lokið og unn-
ið við að leggja dúk á gólf og rönt-
gentæki og skurðborð var komið.
Heildarkostnaður þá var orðinn
kr. 1.250.000,00. Var þá talið að
0.8-1 millj. kr. skorti til að
sjúkrahúsið gæti halrð störf.
Rætt var við Gísla Sigurbjörns-
son, forstjóra á elliheimilinu
Grund, sem þá var á förum til
Þýskalands, og hann beðinn um
aðstoð við að semja um kaup á öll-
um búnaði fyrir sjúkrahúsið.
Tókst að ná samningum við fyrir-
tækið Simenz, og um greiðslur
samdist þannig, að við undirritun
samnings greiddust 10% kaup-
verðs og síðan átta jafnar afborg-
anir á sex mánaða fresti.
Samkvæmt bókunum sjúkra-
hússtjórnar gekk erfiðlega að fá
lánsfé til þessar kaupa.
Á fundi í júlí 1952 kom fram sú
hugmynd að afhenda ríkinu
sjúkrahúsið til eignar með vissum
skilyrðum um rekstur. Einnig
höfðu ýmsir aðilar falast eftir hús-
inu til leigu, en ekki varð af því.
Á þessum tíma kom einnig fram
sú hugmynd að leggja 10% skatt á
sérleyfisbíla til fjármögnunar
tækjakaupa.
Það kemur fram á fundi 30.
sept. 1953 að auglýstar hafi verið
lausar til umsóknar stöður yfír-
vrGL
URVAL-
GÆÐI-
ÞJÓNUSTA
Síðumúla 22 - Simi 31870
Keflavik-Simi 92-2061
S Gardínubrautir
‘ÍKFMMIB/Fni 1fl i/ADA\/nn cik/
ÚRVAL AF GLUGGATJALDAEFNUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF STÓRESEFNUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF ELDHÚSGLUGGATJÖLDUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF BLÓMASTÓRESUM í ÁLNABÆ
Viö tökum að okkur saum á gluggatjöldum.
Viö mælum og setjum upp ef óskaö er.
Viö bjóöum greiðsluskilmála.
Verið velkomin eöa hringiö, því við höfum alltaf
eitthvaö við yðar hæfi.
Tökum mál, smíöum og setjum upp Zgardínubrautir
SKFMMUVEGI 10 K0PAVOGI SIMI 77900
ef óskað er.
Viö sendum
í póstkröfu um land allt.
FAXI-283