Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 29
ARNAE) HEILLA
ÞREFÖLD AFMÆLISKVEÐJA
(SÍÐBÚIN)
Á liðnu sumri áttu a.m.k. þrír
góðvinir mínir í Keflavík merkis-
afmæli. Öll fóru þau framhjá mér,
þannig að hvorki sendi ég þeim
kveðju eða minntist þeirra á
prenti, sem þeir hefðu þó vissu-
lega verðskuldað margfaldlega
frá minni hálfu.
Þessir heiðursmenn eru Olafur
A. Þorsteinsson fyrrverandi for-
stjóri, sem varð sjötugur 5. ágúst
síðastliðinn, Tómas Tómasson,
sparisjóðsstjóri og forseti bæjar-
stjórnar, hann átti sextugsafmæli
7. júlí og bróðir hans, Jón Tóm-
asson, fyrrverandi símstöðvar-
stjóriognúverandiritstjóriFAXA inn. Allir hafa þessir þrír menn
varð sjötugur 26. ágúst síðastlið- verið traustir og vökulir í sínum
verkahring. Þeir gnæfa hátt í vit-
und samtíðarinnar, þegar þeirra
er minnst, sem mest hafa lagt af
mörkum til jákvæðrar mótunar
mannlífs og byggðar í Keflavík og
á Suðurnesjum. Allir sem einn
bera þeir með sóma heitið: , ,-Vor-
maður samtíðar sinnar.“
Ég þakka þeim öllum góð
kynni, drengskap, vináttu og
órofa tryggð, um leið og ég árna
þeim heilla og giftu í tilefni
merkra tímamóta og bið þeim og
ijölskyldum þeirra blessunar
Guðs í bráð og lengd.
Björn Jónsson.
Nýskipan heilbrigðismála mun
nú vera í undirbúningi með laga-
frumvarpi því, sem liggur nú fyrir
Alþingi, og hljóta því framtfðar-
áætlanir og ákvarðanir að mark-
ast nokkuð af því.
Vér höfum áætlað og teljum rétt
að vinna beri að því að hér verði
reist a.m.k. 80-100 rúma sjúkra-
hús í framtíðinni, með fæðinga-
deild, almennri sjúlcradeild,
deild fyrir langlegusjúklinga,
röntgendeild, rannsóknardeild,
læknamiðstöð og heilsugæslu
o.fl.
Til að ná þessu markmiði, höf-
um vér hugsað oss, að þetta yrði
gert í tveimur eða jafnvel þremur
áföngum, þannikg að í fyrsta
áfanga yrði reist viðbótarbygging
sú, sem hjálögð teikning sýnir, en
hún myndi leysa til frambúðar
vandamál fæðingardeildar, eld-
húss og tilheyrandi, líkgeymslu
o.fl. samanber teikningar.
Samkvæmt þessari áætlun
myndi einnig batna til muna að-
staða starfsfólks og lækna, slysa-
móttaka o.fl.
Það eru samt óleystir margir
veigamiklir þættir, sem vér álít-
um að leysa beri í öðrum áfanga
eða jafnvel þriðja, ef þörf krefur,
en það er:
1. Læknamiðstöð með aðstöðu
fyrir a.m.k. 6 — 8 lækna og
sérfræðinga, heilsugæslu og
tilheyrandi.
2. Aðstöðu fyrir röntgendeild.
3. Aðstöðu fyrir rannsóknar-
deild.
4. Aðstöðu fyrir skurðstofu og
tilheyrandi.
5. Sjúkradeild eða deildir, þ.e.
sjúkrarými fyrir 30 — 60 sjúkl-
inga a.m.k.
Vér teljum, að læknamiðstöð,
heilsugæsla etc. eigi að vera í
tengslum við sjúkrahúsið, og að
því beri að stefha.
Núverandi húsnæði röntgen-
deildar og rannsóknardeildar
mun vera alls ófullnægjandi fyrir
stærra sjúkrahús en reiknað er
með í fyrsta áfanga, sama er að
segja um skurðstofu og tilheyr-
andi (steriliseringu, pökkun etc.)
Ef væntanleg sjúkradeild kæm-
ist upp f öðrum eða jafnvel þriðja
áfanga, höfum vér áætlað að taka
gamla sjúkrahúsið fyrir langlegu-
sjúklinga, og myndi það trúlega
leysa það vandamál í næstu fram-
tíð.
Vér höfum ekki gert neina
heildar tímaáætlun varðandi
framkvæmdir, en væntum þess,
að hið háa ráðuneyti sýni fullan
skilning á þörfum íbúa Suður-
nesja í heilbrigðismálum og flýti
fyrir fyrsta áfanga, svo sem verða
má.“
Á Alþingi 1973 voru samþykkt
lög nr. 56 frá 27. apríl um heilsu-
gæslustöðvar, en lög þessi tóku
gildi 1. janúar 1974. Sveitarfélög-
in á Suðurnesjum samþykktu á
vormánuðum 1974 að fela stjórn
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishér-
aðs að vinna að undirbúningi að
stofnun Heilsugæslustöðvar Suð-
urnesja.
Sjúkrahússtjórn ritaði Heil-
brigðisráðuneytinu bréf 20. mars
1974, þar sem leitað er eftir heim-
ild til þess að stofnuð verði heilsu-
gæslustöð í leiguhúsnæði að Sól-
vallagötu 18 í Keflavík, eftir
teikningum og tillögum að breyt-
ingum á því húsnæði, er Jes Einar
Þorsteinsson arkitekt hafði gert.
Heilbrigðisráðuneytið sam-
þykkti með bréfi þann 31. mars
1974, að stofnuð verði í húsnæði
að Sólvallagötu 18 Keflavík neðri
hæð, „Heilsugæslustöð í Kefla-
vík bráðabirgðahúsnæði.“
Undirritaður var leigusamnirig-
ur til 10 ára, milli sveitarfélag-
anna í læknisumdæminu og Arn-
björns Ólafssonar læknis, þann
26. sept. 1974.
Samhliða þessu var sett sérstök
stjórn fyrir heilsugæslustöðina.
Stjórnin hafði það af m.a. að
koma á fót sérstökum H-stöðvum
í sveitarfélögunum, sem að
heilsugæslunni standa, og má nú
segja að viðunandi aðstaða hafi
fengist, eða sé í sjónmáli, nema á
V atnsley suströnd.
Laugardaginn 29. nóvember 1974
var tekin fyrsta skóflustungan að
I. áfanga viðbyggingar við sjúkra-
húsið en það gerði Valgerður Pét-
ursdóttir, sem þá hafði starfað í
í samsætinu sungu þeir góðkunnu félagar Haukur Þórðarson og Jón Kristins-
son við undirleik Ragnheiðar Skúladóttur.
FAXI-285