Faxi - 01.12.1984, Side 72
FRÆNKNAMINNING
Sigríður
Jónsdóttir
Fædd 27. sept. 1889
Dáin 17. okt. 1980
Kamilla
Jónsdóttir
Fædd 11. okt. 1904
Dáin 17. okt. 1958
O elsku góda mamma mín
þín mynd í hug mér ljómar,
og ljúfust vögguvísan þín
svo viðkvæmt til mín hljómar.
Sigríður og Kamilla voru
systradætur og alla tíð sérstak-
lega góðar vinkonur — hjálpuðu
hvor annarri eftir bestu getu.
Móðir Kamillu María Bene-
diktsdóttir var móðursystir Sig-
ríðar og kom hún á heimili
Maríu 12 ára gömul, Sigríður
var fædd að Seljalandi í Fljóts-
hverfi en fátækt foreldra hennar
var svo mikil að þau gátu ekki
sett saman bú - heldur unnu á
sitt hvorum bænum.
Sigríður var tekin 1 dags göm-
ul frá móður sinni Þóru og sett í
fóstur að Ytri-Tungu í Land-
broti og var þar til 8 ára aldurs
— húsmóðirin hét Kristín og
reyndist hún Sigríði vel, þegar
Kristín dó var Sigríði komið fyr-
ir að Fossi í Mýrdal sem þá var
tvíbýli og vann Þóra móðir
hennar á öðru býlinu. Ekki
fengu þær að vera saman — þar
var Sigríður í tvö ár — þaðan fer
hún til föðursystur sinnar Arn-
þrúðar að Mosum — þar gekk
Sigríður í skóla 1 vetur að Litla-
Hvammi — sem er töluverð
vegalengd, kennari hennar var
Stefán Hannesson, hann hélt
vináttu við Sigríði alla tíð og
hans fjölskylda eftir hans dag.
Eftir þessi tvö ár eystra kemur
Sigríður svo til Maríu og er það
raunverulega hennar fyrsta
heimili - mjög kært var með
þeim Maríu og Sigríði alla tíð.
15 ára gömul fer Sigríður í
vinnumennsku en heimili sitt
átti hún hjá Maríu þar til hún
giftist Sigurði Einarssyni frá
Endagerði á Miðnesi, og bjuggu
þau að Fagurhóli í Sandgerði,
þau voru í hjónabandi í 52 ár, en
þá dó Sigurður. Þau áttu einn
son sem dó 8 ára og níu dætur —
átta þeirra eru lifandi. Afkom-
endur Sigríðar og Sigurðar eru
98.
Kamilla Jónsdóttir var fædd
að Nærströnd — síðar Tjarnar-
götu 2 í Keflavík. Hún ólst upp
hjá foreldrum sínum Maríu og
Jóni ásamt bróður sínum Guð-
mundi Marinó, rafvirkja í Kefla-
vík — Heimilislíf var mjög
skemmtilegt, mikill söngur,
gleði og góðvild. Sungu þau oft
saman Kamilla og Guðmundur
— María og Jón sungu í fyrsta
kirkjukórnum í Keflavík og
Kamilla söng f kirkjukómum í
yflr 30 ár.
Kamilla giftist Kristni Jóns-
syni frá Litlabæ í Keflavík 10.
nóv. 1928. Þau hófu búskap að
Tjarnargötu 2 sem þeir Guð-
mundur Marinó og Kristinn
byggðu sameiginlega, Kamilla
og Kristinn á hæðinni en María
og Guðmundur í risinu, þar til
Guðmundur giftist Malene Ell-
efsen, þá tók Kamilla móður
sína til sín og var hún þar alla tíð
síðan — þá var líka hjá þeim
Kamillu og Kristni systir Maríu,
Sigríður Benediktsdóttir, og
hafði hún herbergi í kjallaran-
um, hún prjónaði mikið fyrir
fólk, en eftir að hún hætti
prjónaskap tók Kamilla við af
henni. Kamilla var mikil handa-
vinnukona — lék allt í höndum
hennar — henni féll aldrei verk
úr hendi.
Kristinn byggði sér nýtt hús að
Sólvallagötu 14 1946 og þar var
heimili þeirra eftir það. Kamilla
og Kristinn áttu 7 börn sem öll
eru á lífi — afkomendur þeirra
eru 68.
Þessar tvær frænkur, Sigríður
og Kamilla, áttu margt sameig-
inlegt, báðar miklar handa-
vinnukonur — yndislegar mæð-
ur, segja má að þær hafi algjör-
lega helgað líf sitt maka, börn-
um og heimili — útávið alltaf lát-
ið gott af sér leiða — sáu ævin-
lega birtuna framundan — þó oft
hafi verið erfitt, voru báðar trú-
aðar og í bæninni fundu þær
styrk.
Börn þeirra beggja minnast
með gleði heimsókna fjöl-
skyldnanna — þá var hátíð í bæ
þegar komið var í heimsókn að
Fagurhóli eða Sólvallagötu 14.
, ,Aldrei gleymum mœtri móður
meðan sól á himni skín
Vermir trúar geisli góður
Guð mun blessa störfin þín. “
MS-JK.
leysa ung hjón húsnæðisvanda
sinn í byrjun, enda veðráttan slík
að þetta er ekki vandamál. Þarna
kemur aldrei snjór eða verulegir
kuldar.
Cesil Baker býr vel í Tamworth.
Hann hefur sína lækningastofu og
er mjög virtur læknir.
Hann hefur sitt tómstunda-
gaman, sem er nokkuð óvenju-
legt. Hann á sinn búgarð, hefur
100 holdanaut og stóra hveiti-
akra.
Þegar hann sýndi mér búið varð
mér svolítið á í messunni er ég
spurði hver mjólkaði kýrnar. Þá
brosti Cesil og sagði: ,,Það sjá
kálfarnir um. Á þessum bæ þarf
ekki að mjólka og enga skepnu að
láta í hús nema til slátrunar. En
svo eru hér aðrir sem hafa mjólk-
urkýr.“
Á meðan við dvöldum í Tam-
worth hjá Cesil Baker var okkur
haldin heljar mikil veisla. Þar
voru mættir margir Rotaryfélagar
og konur þeirra. Þar voru mættir
David Gilbert, sem var gestur
Jóns ísleifssonar, Richard John
Barry, sem var gestur Ólafs Odds
Jónssonar og Brian James
Thompson, sem var gestur Knúts
Höiriis, þegar þeir voru hér í
Keflavík.
Eftir að hafa dvalið í vikutíma
hjá Cesil í Tamsworth var ferðinni
haldið áfram í norðaustur til
Dorrigo. Það er lítill bær, með um
1800 íbúa. Þar býr Gorddon
Rowe, en hann sá um ferð Ástra-
líumanna til íslands.
Á leiðinni til Dorrigo var farið
yfir frjósöm landbúnaðarhéruð.
Þar sáum við ótrúlega stóra fjár-
hópa, enda fjárbændur í Ástralíu
þeir stærstu í heimi. Meðal fjárbú
hafa 15 — 20 þúsund fjár og allt
upp í 30 — 40 þúsund stærstu bú-
in.
Rúningarmenn eru stór stétt í
Ástralíu og eru nokkuð hátt skrif-
aðir, en þeir voru í verkfalli um
þessar mundir, og var það farið að
valda nokkrum vandræðum, því
ullin er einn stærsti þáttur í út-
ílutningsverslun Ástralíu. I
328-FAXI