Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1984, Page 73

Faxi - 01.12.1984, Page 73
Dorrigo dvöldum við í 2 daga. Þar komst ég á Rotaryfund, og eftir fundinn var öllum félögum ásamt konum boðið til mikillar kvöld- veislu hjá Gordon Rowe, okkur til heiðurs. Morguninn áður en við fórum ffá Dorrigo var okkur boðið til tedrykkju til konu sem hafði selt eignir sínar fyrir nokkrum árum, sem að vísu voru miklar, og keypt heilt fjall og byggt upp á toppi þess geysistórt hús eða höll og lát- ið ieggja malbikaðan hringveg upp að húsinu, en fjallið var alltt skógi vaxið. Hjá þessari konu sá- um við stærsta málverkasafn í einkaeign sem við höfum séð. Um kl. 4 sama dag keyrði Gordon okkur áleiðis til Coffs Harbour en Davíð Skeet og kona hans komu á móti okkur og við mættumst á miðri leið. í Coffs Harbour dvöidum við í 1 sólar- hring á heimili Davíðs. Hann íór með okkur til eins af Rotaryfélög- um borgarinnar, sem ræktaði banana og (leiri ávexti. Banana- rækt fer fram í fjaiishlíðum og meðal bananaklasi vegur um 60 kíló og eru þeir bornir í fanginu, stundum langar leiðir í miklum bratta, sem hlýtur að vera erfið vinna. Eftir að hafa skoðað ávaxta- ræktina gaf hann okkur fullan stóran poka af alls konar ávöxtum til að hafa með okkur norður á bóginn. Ekki var hægt að fara svo frá Coffs Harbour að ekki væri skoð- uð höfnin. Þar er stór fiskmarkað- ur. Þar hittum við nokkra sjó- menn, sem voru að koma að landi með dagsveiði, sem var ekki meiri en það, að þeir héldu á henni á milli sín í bala, 40 — 50 kfló, sem þótti sæmileg veiði. Þeir voru ánægðir með afkomuna. Framboð og eftirspurn ræður verðinu og hefur ætíð gert. Þeir stunda veiðarnar á átta til fimmtán tonna bátum, og það telst til undantekninga, ef ekki er hægt að róa alla virka daga. Frá Coffs Harbour var haldið í norður til Gullstrandarinnar en þangað er 6 klst. akstur með rútu- bflum, en það var eina leiðin sem við vorum ekki keyrð af kunn- ingjum. Á þessari leið breyttist hitastigið mikið. Við færðumst nær miðbaug og komum til staðar þar sem lítill sem enginn munur vr á árstíðum, hvað veðurfar snertir. Gullströndin er rétt fyrir sunn- an stórborgina Brisbane. Gull- ströndin er eftirsóttasti sjóbað- staður Ástralíumanna. Borgin tel- ur um 250 þúsund manns. Þarna Hið frœga óperuhús i Sidney. virðast vera svo langt sem augað eygir gylltar sandstrendur. Við höfðum ákveðið að búa þarna á hóteli í 5 daga og vildum vera ein vegna þess að það var komið að stórri stund í lífi konu minnar. Hún var að verða 60 ára, eða þann 14. september. Á meðan við dvöldum þarna fórum við eitt kvöld á skemmtistað, sem stað- settur var í hótelinu. Þar skemmtu nokkrir af þekktustu skemmtikröftum Ástralíu. Þegar prógrammið var hálfhað var gert hlé og ein af söngkonunum gekk issimafond de teint Látið skynsemina ráða og notið issima ,,make up“ Apótek Keflavíkur Mariage de la heaulé el de la raison. íssima Fond de Teini á I 'Hydrolastine, confu comme un produit de soins. apporte Tindispensabie rcponse á loule femme donl le souci esl de réhausser Téclat de son leint tout en lullanl conlre les facieurs qui accélérenl le vieillissemenl prémaluré de l'épiderme. Existe en 5 tcinh Lignr Issima de Guerlaln . eréme régénérairice. cmulslon proleclrice. créme de soins pour le cou. créme conlour des yeux. concentré régénéraleur á l'hydrolastlne. fond de teinl.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.