Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 67

Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 67
„Megi samúð og trú ávallt ráða ríkjum“ Avarp Oskars Jónssonar er hann afhenti Heilsugæslustöð Suðurnesja tvær af myndum sínum Hljóðs bið ég þá sem mig heyra og sjá, sagði Davíð Stefánsson á Akureyri, norður þar. Þegar hann ávarpaði viðstadda. Mér dettur í hug aftur á móti. . . Þegar stórt ég spyr þá er stirt um svar og óvissan hugann hún sker þó hugurinn hið ytra sé kyrr. Okkur er gjarnt að spyrja og velta vöngum yfir hinu og þessu í jörðu og á, einnig velta vöngum yfir sýnilegu og ósýnilegum heimi. Yfir hinum óendanlega stóra og óendanlega smáa. Velta vöngum yfir hinu lífræna efni og líf- lausa efni ef þau eru þá til. Velta vöngum yfir tilveru lífsins og dauðanum. Þá er enginn furða þó að sé sagt. . . Þegar stórt ég spyr þá er stirt um svar og óvissan hugann hún sker þó hugurinn hið ytra sé kyrr. Ég er hingað kominn til þess að afhenda tvö málverk, sem gjöf til Heilsugæslustöðvarinn- ar. Stærð þessara málverka fer eftir því, hver á horfir. Þau gætu verið afstæð eins og allt annað í þessum heimi. Keilirinn, en hann er sýnilegur í annarri myndinni, minnir ef til vill á sköpun sína. Sköpun á ísaldartímabili jarðsögunnar og tákn Suðurnesja skagans. Einskonar píramíti, sögu landsvæðisins. Keilir, hann getur breytt litum sínum í end- urspeglun sólargeislanna, margslunginn og magnslunginn spegill hennar. En umhverfi Keilisins sem og hraunið er yngra að árum í jarðsögunni og fylgir að nokkru byggðasögu landsins. Um hina myndina gildir jafnt um, að hún er afstæð að gerð og stærð. Hún minnir ef til vill á hið mikla haf sem umkringir okkar land og gerir það að eylandi all stóru og einangruðu frá öðrum löndum, stórum sem smáum. Hvort sem minnst er á jarðsögu eða byggð- arsögu þá er margt um að segja. Sjórinn hefur verið bjargvættur. Þangað höfum við sótt björg í bú að stórum hluta. Fuglar (sem sjast á myndinni) hafa sótt landið heim og sest hér að, löngu fyrir landnámstíð og verið búbót fyrir marga. Fuglarnir eru einnig tákn fyrir hugmyndaríkan hugarheim mannsandans, sem landsfeður okkar eru frægir fyrir. Ef þessar áður umtöluðu myndir geta vakið huga þeirra sem á þær horfa, þannig að þeir gleymi sínum eigin áhyggjum á meðan þeir bíða í ofvæni eða óvissu, er takmarkinu náð. Þessi stofnun er öruggi margra fyrir líf og heilsu. Þess vegna ekki óeðlilegt að velta vöngum eins og ég kalla það yfir stöðu þess- arar stöðvar í þjóðfélaginu. Einu sinni kom út bók (1921 — 1922) eftir Dr. Guðmund Finn- bogason sem heitir Hvers vegna, vegna þess? í þessari bók er fjallað um ýmis fyrirbrigði lífsins sérstaklega eðlisfræðileg og efnal'ræði- leg. Ég ætla að nota spurningarorðin. Hvers vegna, vegna þess, til þess að loka og ljúka þessum vangaveltum. Hvers vegna, vegna hvers? Hvers vegna þessa Heilsustöð? Samúð og trú er skapandi sess sem varð til þess. Hvað er samúð og þá til hvers? Hvers vegna hjúkrun og lœknalið? Hugsjónir þeirra eru vísindasess sem varð til þess. Hvað eru vísindi og þá til hvers? Hvers vegna að vœnta þeim svars? Knýið á, sjá þá upplokið er, er mannsins sess sem varð til þess. Hver er hinn mikli skapadómur? Hvað er efni og lífsins andi? Hver er neistinn í lífsins sess? í upphafi var orðið, sem varð til þess. Njótið heil myndanna með óskum um að hið ljúfa viðmót allra starfandi krafta á þess- ari Heilsustöð, megi verða öllum þeim sjúku sem hingað leita til blessunar um öll ókomin ár. Megi samúð og trú ávallt ráða ríkjum. Óskar Jónsson afhendir Hcitsugœslustöð Sudumesja myndir. Á myndinni eru Eyjól/ur Eysteinsson for- stjóri, Helga Óskarsdóttir, Óskar Jónsson, Ingólfur Falsson form. sjúkrahússtjórnar, Óttar Gud- mundsson yfirlœknir og Arnheidur Ingólfsdóttir hjúkrunarforstjóri. svo bjart var yfir þeim báðum — og sameiginlegri vegferð þeirra. í októbermánuði 1982 fór Ágúst á sjúkrahúsið í Keflavík og átti ekki afturkvæmt þaðan. Líkams- kraftarnir voru sífellt að þverra, en andlegur styrkur hans var að mestu óbugaður. Hann las framundir það síðasta og fyldist með frá degi til dags. Síðustu vís- una, sem ég hefi heyrt eftir hann, orti hann á níræðisafmæli sínu. Hún er svona: ,,Yfir d tuginn tíunda tölti ég með slitna fœtur. Nú við lok þess níunda nokkrar koma aldursbœtur. “ Og á eftir vísunni skrifar hann: ,,Lifið öll í Guðs ffiði. “ Það er engin uppgjöf eða svart- sýni í þessum hendingum. Stað- reyndir eru viðurkenndar, en um leið er litið þangað, sem ljósið skín. Ágúst andaðist aðfaranótt hins 20. júlí síðastliðins. Hann leið út- af, eins og ljósið, sem brennur of- an í stjakann. Þegar ég leit hann látinn, þá kom fram í huga minni þetta fagra erindi eftir eitt af góð- skáldunum okkar: ,,Stillt vakir Ijósið i stjakans hvítu hönd. Milt og rótt fer sól um myrkvuð lönd. Ei með orðaflaumi skal eyðast heimsins nauð Kyrrt og hljótt í moldu vex korn í brauð. “ Ljósið enn, lífið enn, líka á loka- dægri aldarlangrar æviferðar. Um leið og ég blessa af hug og hjarta hina björt minningu vinar míns, Ágústs Péturssonar, þá sendi ég ástvinum hans einlægar samúðarkveðjur, með þeirri bæn til Guðs, að hann farsæli og blessi öll þeirra óstigin ævispor. Björn Jðnsson. FAXI-323
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.