Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 43

Faxi - 01.12.1984, Blaðsíða 43
Aftari röðfrá vinstri: Pálína Porbjörg, Páll, Gudrún, Ámi Bjammundurog Halldóra. Fremri röð frá vinstri: Svava, Árni Vigfus og Magnea. Myndin líklega tekin um 1954. einskonar truflanir á helgihaldi morgunsins. Best að koma sér inn til ömmu, ömmu Böggu, ömmu Bjarnhildar, sem var vís til að eiga kandís eða kex, bleytt í sætu kaffi og þótti mikið hnossgæti og hún spurði mig frétta af sjálfum mér og hinum krökkunum. Það var líka hægt að kanna bátana sem biðu á blettinum, sumir á kili en aðrir á hvolíi, biðu eftir því að aíi lengdi þá eða gerði við brot eða fúa, eða breytti þeim í trillur. Bátabletturinn var merkilegt kon- ungsríki, sem við bræðurnir þótt- umst að vonum eiga nokkurn yf- irráðarétt yfir. Afi viðurkenndi þann rétt fyrir sitt leyti — allt þar til að við höfðum smalað miklu krakkastóði í sjóorustu milli báta eða þessháttar, með skothríð og djöfulgangi: þá var hann reiður í nokkrar mínútur og rak alla út fyrir girðingu. Mig líka og það þótti mér ekki sanngjarnt. En þetta gerði ekkert til, því að næsta morgun var ég aftur sestur út í skúr eins og ekkert hefði í skorist. Svo leið fram tíminn og ég varð nógu stór til að fá að halda við þegar afi var að hnoða nagla og það var mikil upphefð. Afi var trúrækinn maður og fór ailtaf í kirkju þegar messað var og ég varð honum samferða. Mér fannst séra Eiríkur tala alltof lengi, ég skildi ekki nema sumt af því sem hann sagði og kirkjukór- inn söng áreiðanlega miklu íleiri vers úr hverjum sálmi en nú tíðk- ast. Þetta var náttúrlega erfitt, en ég var með afa og mig grunaði að vandi fylgdi vegsemd hverri. Seinna þessa sömu sunnudaga urðurn við samferða í Lestrarfé- lagið. Aíi var lestrarhestur, las fram á nótt þótt hann færi svona snemma ofan. í Lestrarfélaginu voru þá um 1200 bindi að því mig minnir, og mér fannst að afi hefði lesið þær bækur allar saman. Ertu með nokkuð nýtt Arinbjörn? spurði hann. Arinbjörn glotti og mælti með Ástum og ævintýrum Casanova, sem þá var að koma út í heftum. Iss, ég fer ekki að lesa svoleiðis vitleysu, sagði afi. Heima átti hann postillur, en það var enn fátt um bækur í húsum — þær fóru ekki að safnast til hans fyrr en það skref var stigið til jafn- réttis, að það mátti gefa fullorðn- um bækur í jólagjöf og afmælis- gjöf. Afi kom líka oft yfir götuna í kafíi til mömmu: Svo fóru þau amma einatt á kvöldgöngu og komu við hjá flestum eða öllum börnunum og allir vissu vel hver af öðrum í V eghúsafjölskyldunni. Eftir að amma dó árið 1950 gekk hann þessa göngu einn. bað var talað yfir þúsund kaffibollum, sem talað var um f sjávarplássum áður en svokölluð þróun blés þeim um koll og bjó til eitthvað allt annað í staðinn. Stundum var talað um pólitík og afi treysti á Olaf Thors en var á móti krötum og öðrum boslum. Reyndar er elsta minningin sem ég á um stórtíðindi heimsins tengd afa mínurn. Það var í byrjun sept- ember árið 1939 að hann kom heim og hafði verið að hlusta á út- varp. Nú held ég Hitler sé orðinn snarvitlaus, sagði hann. Þann morgun hafði þýski herinn ráð- ist inn í Pólland og heimsstyrjöld- in síðari var byrjuð. Afi var fæddur í Minna-Knarr- arnesi á Vatnsleysuströnd 27. júlí árið 1884. Hann var einkasonur Magnúsar Árnasonar og konu hans Þorbjargar Vigfúsdóttur úr Biskupstungum. Þau fluttu snemma að Bolafæti í Ytri-Njarð- vílt, þar sem forfaðir Magnúsar, Hallgrímur skáld Pétursson, hafði eitt sinn búið með Tyrkja- Guddu. Magnús reisti svo Veg- hús við Suðurgötu í Keílavík skömmu eftir aldamót og flutti þangað ásamt afa og ömmu, Bjarnhildi Helgu, dóttur Halldórs Sigurðssonar í Merkinesi í Höfnum og Pálínu Pálsdóttur á Vatnsnesi — en þau giftu sig 1906. Magnús og Þorbjörg bjuggu hjá afa og ömmu meðan þau lifðu. Afi og amma eignuðust níu börn — Sigríði, Pálínu, Svövu, Hall- dóru, Magneu, Árna, Guðrúnu, Pál og Guðmund. Sigríði misstu þau uppkomna og nýgifta en Guðmundur dó aðeins fimm vikna gamall. Niðjar afa og ömmu, sem bæði voru einbirni, eru um sextíu og sýnist liggja beint við að koma nýrri ætt á blað hjá ættfróðum, Veghúsaætt. Afi byrjaði snemma að stunda sjóinn, reri á opnum bátum og var á skútum hér á Suðurnesjum og á Austfjörðum. Síðan stímdi hann með öðrum inn í vélbátaöld, fyrst sem sjómaður og síðar sem land- rnaður. Einhverntíma á heims- styrjaldarárunum fyrri fór hann að vinna með Guðjóni Jónssyni skipasmið á Framnesi. Nokkru seinna byrjaði hann að gera við og smíða báta upp á eigin spýtur og var við þetta á sumrin fram á árið 1937, en þá hætti hann að stunda sjóinn og sneri sér alfarið að báta- smíðunum. Ekki veit ég hvort afa tókst að koma sér upp sérstakri Veghúsalínu í bátunum — hitt er víst, að bátar hans voru eftirsóttir og hann fékk pantanir víða að af landinu. Fátt var skemmtilegra en að fylgjast með því hátíðlega kappi með köllum og römmurn átökum, sem fylgdu því að renna nýjum bát út úr húsi, fram blett- inn og koma honum svo upp á bíl eða draga hann niður götuna nær þeim sjó sem átti að taka við hon- um. Enginn veit hvað þessir bátar urðu margir og sumir voru eigin- lega stærri en húsið þoldi. Guðni Magnússon málari kann frá því að segja, að afi hafi smíðað fyrstu trilluna árið 1937 og svo vildi til, Arni Vigfús aö verki bak við hús sitt Veghús. Lfklega er hað nötabátur, sem hann er að ditta að. FAXI-299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.