Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1984, Side 42

Faxi - 01.12.1984, Side 42
Arni Bergmann: Bátasmiðuriim í Veghúsum Arni Vigfus Magnússon — Aldarminning Fátt er betra ungum dreng en að vita af afa og ömmu í námunda við sig. Eg var einn þeirra láns- sömu: amma og afi bjuggu í Veg- húsum hinum megin við Suður- götuna, snemma á morgnana heyrði ég gengum svefninn ham- arshögginn frá skúrnum þar sem afi smíðaði báta. Hann hét Arni Vigfús Magnússon og hefði orðið hundrað ára þann 27da júlí í sum- ar. Flestir Keflvíkingar kölluðu hann Fúsa, en það nafn kunni ég aldrei við, því ég vildi eiga með honum Arnanafnið í friði. Hamarshöggin úr bátaskúrn- um þýddu ekki endilega að það væri mál fyrir strák að koma sér á fætur. Afi var mesti eljumaður og var byrjaður á að smíða báta, breyta þeim eða bæta þá um sex- leytið á morgnana eða jafnvel fyrr. Mér þótti þetta starf merki- legra en öll önnur sem þá voru unnin og árum saman fylgdist ég með því hverju fram fór í skúrn- um svotil daglega. Ég gekk út í Árn/ Vigfús Magnússon og Bjarnhildur Helga HaUdórsdótlir. góða veðrið (það er oftast gott veð- ur í þessum minningum) og kom mér út í skúr, fann hrjúft yfir- skegg afa á vanganum, settist svo á kassa tuggði hefilspón og horfði á hann vinna. Handtök hans við hefil og sög, hamar og sporjárn, tjöru og spaða voru undarlega ör- ugg og hröð en þó fumlaus, allt hafði þetta einskonar dáleiðslu- áhrif, tíminn eins og hvarf, var ekki lengur til, né heldur neitt það sem fyrir utan gerðist: hér vorum við tveir, hér var tryggur griða- staður. Þetta var þögul sambúð. Stundum leit hann til mín eins og til að gá hvort ég væri ekki áfram á mínum stað og bros hans var mest í þessum opinskáu og glað- legu augum. Ég fékk að hirða skrýtna kubba sem sögin bjó til og ætlaði að negla þá saman síðar, en það varð minna úr þeim smíðum en til stóð, hvernig sem nú á því stendur. Svo kom Helgi Jens í heimsókn eða aðrir karlar og þeir töluðu um fiskiríið og tóku í nefið. Ég sé undarlega skýrt fyrir mér langa og háa tóbaksrönd sem lá eins og Kínamúr yfir stórar æðar á hand- arbaki afa og ég hugsaði sem svo, að ég mætti til með að læra þessa list, að taka í nefið eins og afi minn. Mér fannst annars ekkert gaman að hlusta á karlana til lengdar, heimsóknir þeirra voru Suöumesjamenn! Óskum öllum samstarfsmönnum og viðskiptavinum okkará Suður- nesjum gleðilegra jóla og gæfuriks komandi árs. Þökkum samstarfog viðskipti á liðnum árum. Kef I a vík u rverktaka r Keflavíkurflugvelli Sími 1850-1655 298-FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.