Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1984, Síða 72

Faxi - 01.12.1984, Síða 72
FRÆNKNAMINNING Sigríður Jónsdóttir Fædd 27. sept. 1889 Dáin 17. okt. 1980 Kamilla Jónsdóttir Fædd 11. okt. 1904 Dáin 17. okt. 1958 O elsku góda mamma mín þín mynd í hug mér ljómar, og ljúfust vögguvísan þín svo viðkvæmt til mín hljómar. Sigríður og Kamilla voru systradætur og alla tíð sérstak- lega góðar vinkonur — hjálpuðu hvor annarri eftir bestu getu. Móðir Kamillu María Bene- diktsdóttir var móðursystir Sig- ríðar og kom hún á heimili Maríu 12 ára gömul, Sigríður var fædd að Seljalandi í Fljóts- hverfi en fátækt foreldra hennar var svo mikil að þau gátu ekki sett saman bú - heldur unnu á sitt hvorum bænum. Sigríður var tekin 1 dags göm- ul frá móður sinni Þóru og sett í fóstur að Ytri-Tungu í Land- broti og var þar til 8 ára aldurs — húsmóðirin hét Kristín og reyndist hún Sigríði vel, þegar Kristín dó var Sigríði komið fyr- ir að Fossi í Mýrdal sem þá var tvíbýli og vann Þóra móðir hennar á öðru býlinu. Ekki fengu þær að vera saman — þar var Sigríður í tvö ár — þaðan fer hún til föðursystur sinnar Arn- þrúðar að Mosum — þar gekk Sigríður í skóla 1 vetur að Litla- Hvammi — sem er töluverð vegalengd, kennari hennar var Stefán Hannesson, hann hélt vináttu við Sigríði alla tíð og hans fjölskylda eftir hans dag. Eftir þessi tvö ár eystra kemur Sigríður svo til Maríu og er það raunverulega hennar fyrsta heimili - mjög kært var með þeim Maríu og Sigríði alla tíð. 15 ára gömul fer Sigríður í vinnumennsku en heimili sitt átti hún hjá Maríu þar til hún giftist Sigurði Einarssyni frá Endagerði á Miðnesi, og bjuggu þau að Fagurhóli í Sandgerði, þau voru í hjónabandi í 52 ár, en þá dó Sigurður. Þau áttu einn son sem dó 8 ára og níu dætur — átta þeirra eru lifandi. Afkom- endur Sigríðar og Sigurðar eru 98. Kamilla Jónsdóttir var fædd að Nærströnd — síðar Tjarnar- götu 2 í Keflavík. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum Maríu og Jóni ásamt bróður sínum Guð- mundi Marinó, rafvirkja í Kefla- vík — Heimilislíf var mjög skemmtilegt, mikill söngur, gleði og góðvild. Sungu þau oft saman Kamilla og Guðmundur — María og Jón sungu í fyrsta kirkjukórnum í Keflavík og Kamilla söng f kirkjukómum í yflr 30 ár. Kamilla giftist Kristni Jóns- syni frá Litlabæ í Keflavík 10. nóv. 1928. Þau hófu búskap að Tjarnargötu 2 sem þeir Guð- mundur Marinó og Kristinn byggðu sameiginlega, Kamilla og Kristinn á hæðinni en María og Guðmundur í risinu, þar til Guðmundur giftist Malene Ell- efsen, þá tók Kamilla móður sína til sín og var hún þar alla tíð síðan — þá var líka hjá þeim Kamillu og Kristni systir Maríu, Sigríður Benediktsdóttir, og hafði hún herbergi í kjallaran- um, hún prjónaði mikið fyrir fólk, en eftir að hún hætti prjónaskap tók Kamilla við af henni. Kamilla var mikil handa- vinnukona — lék allt í höndum hennar — henni féll aldrei verk úr hendi. Kristinn byggði sér nýtt hús að Sólvallagötu 14 1946 og þar var heimili þeirra eftir það. Kamilla og Kristinn áttu 7 börn sem öll eru á lífi — afkomendur þeirra eru 68. Þessar tvær frænkur, Sigríður og Kamilla, áttu margt sameig- inlegt, báðar miklar handa- vinnukonur — yndislegar mæð- ur, segja má að þær hafi algjör- lega helgað líf sitt maka, börn- um og heimili — útávið alltaf lát- ið gott af sér leiða — sáu ævin- lega birtuna framundan — þó oft hafi verið erfitt, voru báðar trú- aðar og í bæninni fundu þær styrk. Börn þeirra beggja minnast með gleði heimsókna fjöl- skyldnanna — þá var hátíð í bæ þegar komið var í heimsókn að Fagurhóli eða Sólvallagötu 14. , ,Aldrei gleymum mœtri móður meðan sól á himni skín Vermir trúar geisli góður Guð mun blessa störfin þín. “ MS-JK. leysa ung hjón húsnæðisvanda sinn í byrjun, enda veðráttan slík að þetta er ekki vandamál. Þarna kemur aldrei snjór eða verulegir kuldar. Cesil Baker býr vel í Tamworth. Hann hefur sína lækningastofu og er mjög virtur læknir. Hann hefur sitt tómstunda- gaman, sem er nokkuð óvenju- legt. Hann á sinn búgarð, hefur 100 holdanaut og stóra hveiti- akra. Þegar hann sýndi mér búið varð mér svolítið á í messunni er ég spurði hver mjólkaði kýrnar. Þá brosti Cesil og sagði: ,,Það sjá kálfarnir um. Á þessum bæ þarf ekki að mjólka og enga skepnu að láta í hús nema til slátrunar. En svo eru hér aðrir sem hafa mjólk- urkýr.“ Á meðan við dvöldum í Tam- worth hjá Cesil Baker var okkur haldin heljar mikil veisla. Þar voru mættir margir Rotaryfélagar og konur þeirra. Þar voru mættir David Gilbert, sem var gestur Jóns ísleifssonar, Richard John Barry, sem var gestur Ólafs Odds Jónssonar og Brian James Thompson, sem var gestur Knúts Höiriis, þegar þeir voru hér í Keflavík. Eftir að hafa dvalið í vikutíma hjá Cesil í Tamsworth var ferðinni haldið áfram í norðaustur til Dorrigo. Það er lítill bær, með um 1800 íbúa. Þar býr Gorddon Rowe, en hann sá um ferð Ástra- líumanna til íslands. Á leiðinni til Dorrigo var farið yfir frjósöm landbúnaðarhéruð. Þar sáum við ótrúlega stóra fjár- hópa, enda fjárbændur í Ástralíu þeir stærstu í heimi. Meðal fjárbú hafa 15 — 20 þúsund fjár og allt upp í 30 — 40 þúsund stærstu bú- in. Rúningarmenn eru stór stétt í Ástralíu og eru nokkuð hátt skrif- aðir, en þeir voru í verkfalli um þessar mundir, og var það farið að valda nokkrum vandræðum, því ullin er einn stærsti þáttur í út- ílutningsverslun Ástralíu. I 328-FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.