Faxi - 01.12.1984, Side 54
Hj álp ar stofnun
kirkjunnar
Á Rotaryfundi 15. nóv. sl. hélt Páll Jónsson,
sparisj.stj. 5 mín. erindi um Hjálparstofnun Kirkj-
unnar, en hann hefur um árabil verið þar í stjórn,
en formaður framkvæmdanefndar varð hann á
síðasta aðalfundi stofnunarinnar. Páll gat þess að
um 150 börn mundu látast úr hungri á meðan
hann flytti sitt stutta erindi. Ritstjóra Faxa þótti
erindið fróðlegt — og birtist það hér orðrétt með
leyfi Páls.
Langvarandi næringarskortur
lamar krafta manna til sjálfsbjarg-
ar, oft til lífstíðar þegar um börn
er að ræða. Þau matvæli sem eft-
irsóknarverðust eru í matvæla-
aðstoð á hungursvæðum heims-
ins eru eggjahvítuefni og ýmis
vítamín, sem m.a. er að finna í
fiski og afurðum dýra.
A þessu ári hefur Hjálparstofn-
un kirkjunnar lagt mikla áherslu
á tilraunir með næringarefni úr ís-
lenzkum fiski. Fisktöfiur úr mal-
aðri skreið hafa verið notaðar í
þremur löndum Afríku og lýsi í
tveimur. Þessi framleiðsla var ár-
angur af athugunum í samvinnu
við rannsóknarstofnun sjávarút-
vegsins á nýtingu íslenzkra sjáv-
arafurða til hjálparstarfs á hung-
ursvæðum heimsins.
Hugmyndin að baki þessari
framleiðslu er sú, að útvega eggja-
hvítuefni ogbætiefni úr fiskafurð-
um, í stað þess að senda venjulegt
fiskmeti, sem bæði er of dýrt til
þess, að því megi með góðu móti
við koma og eins erfitt í dreifingu.
í samvinnu við þróunarstofnun
Islands, rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins, rannsóknastofnun
landbúnaðarins og Dr. Jón Óttar
Ragnarsson, matvælafræðing,
hefur nú verið þróuö upp alhliða
næring úr skreiðarmjöli, heil-
hveiti og lifrarmjöli.
Blanda þessi inniheldur öll þau
næringarefni, sem maðurinn
þarf, og í þeim hlutföllum, sem
vísindamenn mæla með.
Mest af fisktöflum var sent til
Eþíópíu, ennfremur til Uganda og
Ghana í gegnum Alkirkjuráðið.
Samúel Ólafsson, kristniboði,
gat þess á aðalfundi Hjálparstofn-
unarinnar að töflurnar hefðu
spornað við hörgulsjúkdómum,
en erfitt heföi verið að koma fólki
í skilning um gildi taflanna.
Margþætt aðstoð hefur verið
veitt Pólverjum á þessu ári, en
eins og fram hefur komið hafa ís-
lendingar verið hlutfallslega stór-
tækastir allra í aðstoðinni við Pól-
land.
Þessari aðstoð líkur formlega í
þessum mánuði með því að Pól-
verjar bjóða biskupi landsins Hr.
Pétri Sigurgeirssyni til Varsjár og
vilja með því sýna íslendingum
sérstakar þakkir og virðingu.
Á árinu var ennfremur veitt að-
stoð til:
GHANA - UGANDA - PORT-
UGALS - INDLANDS - EÞÍÓP-
IU vegna fiskveiðikennslu og FIL-
LIPSEYJA vegna vatnsöflunar.
ERITREU vegna fiskveiðiverk-
PáU Jónsson, sparisj.stjóri.
efnis. INDLANDS vegna heilsu-
gæzluverkefnis. KINA vegna
fiskræktar.
Stór fatasending fór til Eþíópíu,
og var það íslenska kristniboðið
sem sá um dreifinguna fyrir okk-
ur.
Hjálparstofnunin hefur mjög
stutt við bakið á Sambandi Isl.
Kristniboðsfélaga m.a. við bygg-
ingu barnaskóla í KENÝA og Isl.
Kristniboðið í EÞÍÓPÍU fékk
jeppabifreið, sem tilfinnanlega
vantaði til þess að unnt reyndist
að sinna sjúkraverkefnum í hér-
uðum fjarri stöðinni.
Þá var langtímahjálpinni haldið
áfram ásamt Norðmönnum í
SUÐUR-SÚD AN.
Eins og áður hef’ur Hjálparstofn-
un kirkjunnar leitast við að vera
trú því markmiöi að veita aðstoð
hér innanlands.
Hafa verið veittir styrkir bæði til
líknarsamtaka og ennfremur til
fjölmargra einstaklinga.
Sem dæmi um líknarsamtök
sem notið hafa aðstoðar stofnun-
arinnar á síðasta starfstímabili má
geta um skóla fatlaðra, líknarsjóð
æskufólks, styrktarsjóð Sjálfs-
bjargar og Samtök endurhæfðra
mænuskaddaðra. Fjöldi einstakl-
inga sem notið hafa aðstoðar frá
stofnuninni á tímabilinu er 84.
í fræðslustarfinu hefur áherzla
verið lögð á eflingu safnaðarvit-
undar um hjálparstarfið.
Til þess að ná þessu markmiði
hefur áherzla verið lögð á heim-
sóknir í söfnuði, og samantekt
fræðsluefnis til notkunar í safnað-
arstarfinu.
Hjálparstofnunin starfar á
kirkjulegum grundvelli, í því
felst, að sú ábyrgð hvílir á öllu
starfi stofnunarinnar, að hafa
ávallt í huga að vera trúir fylgj-
endur Krists. Þetta á ekki síst við
í fræðslustarfi stofnunarinnar, en
meginhlutverk þess hlýtur að
vera að kalla fólk til þátttöku, um-
hugsunar og afstöðu til fátækra út
frá kristnum forsendum.
Sem jafnan áður hefur verulega
verið leitað eftir því að starfsmenn
stofnunarinnar komi á fundi og
fjalli um hjálparstarfið.
Farið hefur verið í u.þ.b. 60
slíkar heimsóknir í öllum lands-
íjórðungum á liðnu starfsári.
Þá eru árlega haldnar fjölmargar
ráðstefnur um allt land, um mál-
efni Hjálparstofnunarinnar og hef
ég mætt á mörgum þeirra.
Næsta stórráðstefna sem við
höldum um hjálparstarfið verður
um næstu helgi fyrir Kjalarnes-
prófastsdæmi.
Málgagn Hjálparstofnunarinnar
HÖNDIN er ávallt gefin út tvisvar
á ári og dreift inn á heimili allra
landsmanna, eða í 80 þús. eintök-
um.
Þá er leitast við að hafa ávallt til
reiðu á skrifstofunni sem gleggst-
ar upplýsingar í rituðu máli fyrir
skóla og söfnuði.
Þá eru sendar fréttir reglubund-
ið til birtingar í VÍÐFÖRLA, mál-
gagni kirkjunnar.
Á síðustu mánuðum og misser-
um hafa lfldega fleiri menn liði
hina endanlegu neyð hungurs og
örbirgðar en dæmi eru til um áð-
ur. í Afríku einni er talið, að 150
milljónir manna, nær þriðjungur
íbúa álfunnar líði af alvarlegum
næringarskorti. Fyrir þróttmikið
hjálparstarf hefur tekist að forða
flestum frá hungurdauða, en þó
er talið, að telja megi þá sem fallið
hafa beinlínis úr hungri í hundr-
uðum þúsunda. Milljónir og lílt-
lega tugir milljóna í heiminum öll-
um látast hinsvegar fyrir aldur
fram vegna fátæktar og af afleið-
ingum hennar.
Ókkur er öllum Ijóst að því fylg-
ir mikil hugarkvöl að þurfa að
5MA5JAARQJAFA5ETT
MICROSCOPES • MiCROSCOPES • MIC Tiiv/aiin
tækifæris-
gjöf fyrir
námsmann-
F WáttK . jnn
Verð frá Kr.
968 til
7.127
Gleraugnoverslun Keflavíkur
HAFNARGÖTU 17 - SÍMI 3811
310-FAXI