Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 6
RITSTJÓRNARGREIN
Háll er íslnn sUórnarmönnum
Atökin innan stjórnar Lyijaverslunar
íslands eru um margt sérkennileg, en út úr
þeim má þó lesa það sem löngu var vitað að
háll getur hann verið ísinn stjórnum hlutafé-
laga. Þessi átök snúast um að meirihluti nú-
verandi stjórnar Lyflaverslunar Islands
hefur gengið frá samningi við annan stærsta
hluthafann í félaginu, Jóhann Ola Guð-
mundsson, um kaup á meirihlutaeign hans í
öðru fyrirtæki, Frumafli, og telur minnihlut-
inn að ekki sé hægt að ganga frá kaupum
sem hluthafafundur á eftir að taka ákvörðun
um. Sömuleiðis að greitt sé of hátt verð fyrir
hlutinn, að undarlegt sé hvernig verð hans
hafi verið fundið út, og að verið sé að nota fé almennra hlut-
hafa í Lytjaverslun íslands til að hygla Jóhanni Ola! Þeir sem
mótmæla eru stærsti hluthafinn, Aðalsteinn Karlsson, og sá
þriðji stærsti, Örn Andrésson. Inn í þetta drama fléttast síðan
álitamál um það hvort áritað minnisblað íyrrverandi stjórnar
félagsins hafi verið bindandi kaupsamningur við Jóhann Óla
og hvort hann hafi vegna gáleysis hluthafafundar í vor fengið
þijá menn af fimm í nýrri stjórn og að völd hans í stjórninni
séu langt umfram eignarétt hans. Þá er þráttað um hvernig
staðið var að boðun á stjórnarfúndinn þar sem gengið var ffá
umræddum kaupum. Langt er síðan að deilur á milli stjórnar-
manna í almenningshlutafélagi hafa fengið annað eins rými í
fjölmiðlum og þarf líklegast að fara allt aftur til átakanna í
stjórn Islenska útvarpsfélagsins, Stöðvar 2, sem þó var lokað
hlutafélag, til að finna hliðstæðu.
Hutverk stjórna Eflaust leysist deilan í stjórn Lyfjaversl-
unar íslands á hluthafafundi í júlí nk. Hún hefur engu að síð-
ur vakið upp gamalgrónar spurningar um það hvert hlut-
verk stjórna í fýrirtækjum sé - og ekki síður hvernig og fýr-
ir hverja þær eigi að vinna. Hluthafar í fyrirtækjum hafa
völd í samræmi við eign sína og kjósa sér stjórnir í fýrir-
tækjum. Óeðlilegt er talið að völd og réttur verði meiri en
ræðst af eign viðkomandi í félaginu og
sömuleiðis er óeðlilegt að réttur hans sé
minni. Mörgum finnst raunar sem umræð-
ur um minni- og meirihluta í stjórnum
hlutafélaga séu órökréttar og gamaldags,
stjórnir hlutafélaga eigi að vinna jafnt fýrir
alla hluthafa. Hlutverk og ábyrgð stjórna í
hlutafélögum eru víðtæk og þar mæðir ekki
síst á siðferðilegri ábyrgð stjórnarmanna.
Flestir eru sammála um að meginhlutverk
stjórna sé að móta stefnu fyrirtækjanna,
ráða forstjóra og meta frammistöðu hans
reglulega, hafa eftirlit með því að markmið
náist, gæta hagsmuna allra hluthafa, taka
ákvarðanir um stórar skuldbindingar, eins og fjárfestingar,
- og veita forstjórum ráðgjöf. Eflaust er mjög misjafnt
hversu mikið stjórnir skipta sér af og fylgjast með dagleg-
um rekstri, hversu afskiptasamar og smámunasamar þær
eru gagnvart stjórnendum. Sumir stjórnarmenn koma ef-
laust óundirbúnir á hvern einasta stjórnarfund, kinka að-
eins kolli þegar mál eru borin upp og leggja ekkert til mál-
anna. Aðrir eru svo afskiptasamir að daglegur rekstur fýrir-
tækja kann að líða fýrir það. Bestur er eflaust sá gullni með-
alvegur að stjórnarmenn sinni eftirlitsskyldu sinni, séu
áhugasamir og ráðagóðir gagnvart stjórnendum en láti ann-
ars fremur lítið fýrir sér fara. Yfirleitt útkljá stjórnarfor-
menn fýrirtækja ágreiningsmál í stjórnum og ná sameigin-
legri niðurstöðu svo allir geti vel við unað. Þetta er oftar en
ekki gert utan stjórnarfunda. En vissulega getur þurft að
grípa til atkvæðagreiðslu til að ná fram ákvörðun.
Háll er ísinn Hann getur verið háll ísinn stjórnarmönnum
í smámálum, hvað þá í stórmálum! Því verður að ætla að
stjórn Lyfjaverslunar Islands hefði átt að vera óvenju varkár
þegar hún gekk frá kaupum á fýrirtæki af einum stærsta
hluthafanum.
Jón G. Hauksson
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 63. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitsteiknari
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfa Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
LJÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrímur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
ÁSKRIFTARVERÐ: kr 3.310,- fyrir 1.-5. tbl. - 2.979- ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr.
DREIFING: Heimur hf„ sími 512 7575
FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf.
LITGREININGAR: Heimur hf. - Öll réttíndi áskilin varðandi efai og myndir
ISSN 1017-3544
Borgartúni 23,105 Reykjavik, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@tafnakonnun.is
6