Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 14

Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 14
FORSÍÐUEFNI SKILNflÐIR OG SKIPTING EIGNfl Skilnaðir geta verið flóknir og hatursfullir þegar kemur að skiptingu eigna, ekki síst hafi hjón stofnað og byggt upp fyrirtæki saman. Hvernig á að skipta fyrirtœkinu upp og hvort þeirra hjóna fœrfyrirtœkið? Skilnaðir eru oftast erfiðastir fyrir börnin. En þeirgeta verið flóknir og hatursfullir þegar kem- ur að skiþtingu eigna, ekki síst hafi hjón stofnað og byggt uþp fyrirtæki saman. Hvernig á að skipta fyrirtækinu upp og hvort þeirra hjóna fær fyrirtækið? Hvað með aðrar eignir? Flestir telja að allar eignir séu settar í einn stóran pott og honum skipt til helminga á milli hjóna eftir regl- / unni: „Eg fæ þetta ogþú þetta“. Mikið til rétt, en samt; þetta er ekki alveg svona einfalt. Þetta var meira en Daren Wagner gat umborið. Hún var inni í eldhúsi að útbúa samlokur fyrir börnin um hádegis- bilið dag einn í apríl 1999 þegar hún heyrði mann sinn, Kenneth Wagner, ræða við fulltrúa banka í síma. Þau höfðu byggt upp sameiginlegt bátafyrirtæki frá grunni en stóðu, þeg- ar þarna var komið við sögu, í hatursfullum skilnaði á miðjum aldri. Hann notaði enn skrifstofu fyrirtækisins, sem var í kjallar- anum heima hjá þeim, og var að ræða við bankafulltrúann um jjármögnun á nýjum báti fyrirtækisins. Bálreið hringdi Daren í lögfræðing sinn og spurði hvort hann gæti gefið sér eina gilda ástæðu fyrir þvi að hún ætti að samþykkja tugmilljóna skulda- aukningu til að stækka fyrirtækið - sem hann myndi halda en eftir ætti að skipta. Bátakaupin horfðu allt öðru vísi við gagnvart Kenneth. Hann átti kost á að kaupa stærri og sparneytnari bát á mjög góðum kjörum sem honum reiknaðist til að myndi spara fyrirtæki þeirra, Chicago’s Wagner Charter Co., um 300 þús- und dollara á ári (30 milljónir króna), vegna hagstæðari launa- og eldsneytiskostnaðar í ljósi þess að báturinn væri stærri og gæti borið fleiri farþega á siglingum fyrir- tækisins um Michigan vatn. Hann leit svo á að með auknum hagnaði fyrirtækisins ætti hann auðveldara með að greiða Daren lifeyri og sfyðja börnin með fjárframlögum. Hún óttaðist hins vegar að svo mikil heift og illgirni byggi með Kenneth að hann myndi frekar gera fyrirtækið gjaldþrota en að láta hana fá eitthvað út úr því.“ A þessa leið hófst umfjöllun bandaríska tímaritsins Business Week þegar það flallaði fyrir nokkrum mánuðum um skilnaði hjóna sem ættu saman fyrirtæki. Tímaritið sagði að oftar en ekki yrðu fyrirtækin eins og vígvöllur og spurði í framhaldi af því: „Lifir fyrirtæki ykkar það af að þið skiljið?“ I könnun ráðgjafafyrirtækisins Arthur And- ersen, frá árinu 1997, svöruðu um 22% af þeim sem spurðir voru að þau hefðu með einum eða öðrum hætti kynnst af eigin raun skilnuðum á meðal eigenda ijölskyldufyrirtækja. Skilnaðir forstjóra stórfyrirtækja og eigenda ijölskyldufyrirtækja eru oft til umfjöllunar hjá er- lendum Ijölmiðlum. En skilnaðir eru ekkert síð- ur algengir og erfiðir hér heima því næstum ann- að hvort hjónaband á Islandi fer út um þúfur, sum hver eftir langa hjúskapartíð og mikla farsæld. SH

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.