Frjáls verslun - 01.05.2001, Qupperneq 42
Friðrik Skúlason, eigandi tölvufyrirtækisins Friðriks Skúlasonar ehf.
„Eggeri ráðfyrir að hægt sé að reka líftœknifyrirtæki án þess að nýta
sér svona ættfræðiuþþlýsingar en þessar uþplýsingar, sem eru aðgengi-
legarhérá landi, eru auðvitað einstakar. Þærgera vissa tegund aflíf-
tœknilegri vinnu mögulega sem annars væri gjörsamlega óraunhæf. “
Mynd: Geir Olafsson
ar, sem og blóð- og vefjasýni frá almenningi. „Ættfræðiupplýs-
ingarnar skipta miklu máli, þær eru mikilvægur hlekkur, en
starfsemi lýrirtækisins byggist ekki alfarið á þeim. Island er
mikilvægt fýrir rannsóknir af þessu tagi vegna þess að hér eru
til góðar upplýsingar, bæði ættfræðiupplýsingar og krabba-
meinsskrár, og síðan er almenningur jákvæður hvað það varðar
að taka þátt í rannsóknum," segir hann.
UVS hefur starfað í um það bil tvö ár og haft til ráðstöfun-
ar 11 milljónir dollara eða 1,1 milljarð króna sem sóttur var til
innlendra ijárfesta í ársbyijun 2000. Stefnt er að því að auka
eiginfé síðar á þessu ári. UVS kaupir aðgang að ættfræði-
grunni Erfðafræðinefndar Háskóla íslands en sá grunnur
gefur mjög ítarlegar dulkóðaðar upplýsingar um ættir íslend-
inga aftur til 1840 og góðar upplýsingar enn lengra aftur í tím-
ann. Gangi allar áætlanir eftir mun UVS greiða tugi milljóna
fyrir ættfræðiupplýsingar frá Erfðafræðinefnd á næstu árum,
samkvæmt gjaldskrá nefndarinnar. Erfðafræðinefnd er rekin
af Háskóla Islands og eru starfsmennirnir þrír, þar af einn í
hlutastarfi. Landspítalinn greiðir laun starfsmannanna en
tekjur af grunninum fara í kostnað við tæknimál starfsmanna
og kaup á gagnagrunnum.
Vestlirfarasetrið Norður á Hofsósi á sér stað athyglisverð
uppbygging sem tengir saman ættfræði og ferðaþjónustu en
þar hefur athafnamaðurinn Valgeir Þorvaldsson byggt upp og
rekið Vesturfarasetrið í nokkur ár. Vesturfarasetrið er með
sýningar sem tengjast búferlaflutningum íslendinga til Vest-
urheims og býður upp á ættfræðiþjónustu til handa þeim sem
leita uppruna síns. Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað á
Hofsósi á síðustu árum fýrir frumkvæði Valgeirs, ný hús hafa
risið og gömul hús hafa verið endurbyggð í þeim tilgangi að
skapa sérstaka umgjörð um starfsemina. í tengslum við Vest-
urfarasetrið hefur byggst upp margvísleg þjónusta önnur, t.d.
gisting, veitingar og flölbreytt afþreying. Velta Vesturfaraset-
ursins var um 13 milljónir króna árið 2000 og voru gestir set-
ursins rúmlega 10 þúsund, þar af um 3.000 Vestur-íslending-
ar, en hugsanlegt er að enn fleiri ferðamenn komi til landsins
FRÉTTflSKÝRING LÍFTÆKNIW 0G ÆTTFRÆÐIN
í þessum erindagjörðum þó að ekki leggi þeir leið sína til
Hofsóss. Samkvæmt upplýsingum Frjálsrar verslunar skilur
hver ferðamaður eftir sig um 100 þúsund krónur að meðaltali.
Ef miðað er við að ferðamenn, sem koma í tengslum við ætt-
fræði til landsins, séu 5.000 talsins skilar þessi grein um 500
milljónum króna í þjóðarbúið.
Bókaútgáfur Allnokkur fyrirtæki hafa verið starfrækt á sviði
ættfræðiútgáfu í gegnum tíðina, sem flestöll hafa hætt starf-
semi. í þeirra hópi má nefna fyrirtæki á borð við Líf og sögu,
Þjóðsögu, Sögustein og Byggðir og bú. Genealogia Islandor-
um, sem stofnað var á grunni nokkurra fyrirtækja, er mönn-
um þó kannski ferskast í minni en það var lýst gjaldþrota fyr-
ir nokkru og er talið að skuldir fyrirtækisins nemi tæpum 300
milljónum króna. Fyrirtækið var stofnað til að gefa út ætt-
fræðibækur og starfrækja ættfræðigrunn á tölvutæku formi,
sem UVS hugðist kaupa aðgang að. Ekkert varð úr þeim
áformum. Þorsteinn Jónsson ættfræðingur hefur tengst flest-
um ef ekki öllum ofannefndum útgáfuiýrirtækjum en hann
hefur verið manna stórtækastur í ættfræðiútgáfu á íslandi. Þá
hefur Nýja bókafélagið, sem er í eigu Páls Braga Kristjóns-
sonar, gefið út ættfræðibækur.
A hveiju ári koma út nokkur ættfræðiverk, stéttatöl, sem
auðvitað eru ekki bein ættfræði, og niðjatöl auk þess sem
ábúendatöl hafa farið í vöxt. Steingrímur Steinþórsson, eig-
andi bókaútgáfunnar Máls og myndar við Bræðraborgarstíg
ásamt Ivari Gissurarsyni, áætlar að veltan í ættfræðibókaút-
gáfu hafi numið 40-50 milljónum króna á ári þegar best lét.
Mál og mynd hefur verið starfrækt í sex ár. Fyrirtækið hefur
aðallega gefið út bækur um sagnfræði og þjóðfræði en nokkr-
ar ættfræðibækur hafa fylgt með. Velta fýrirtækisins vegna
ættfræði nemur 10-15 milljónum króna á ári. Auk þessara er
ijöldinn allur af sjálfstætt starfandi ættfræðingum að vinna að
útgáfu ættfræðibóka og -rita.
Vfir 1.250 íslendingar? Gróflega áætlað má segja að allt upp
í 1.250 íslendingar byggi afkomu sína að hluta til eða öllu leyti
með einum eða öðrum hætti á ættfræðinni. Eins og áður
sagði starfa yfir 500 starfsmenn hjá Islenskri erfðagreiningu
og má því segja að 1.000 einstaklingar eða fleiri, að mökum
og börnum meðtöldum, byggi afkomu sína á tilvist ættfræði-
grunnsins, jafnvel þótt það sé aðeins með mjög óbeinum
hætti. Innan þessa flölda eru 15 starfsmenn, sem hafa að jafn-
aði starfað við uppbyggingu Islendingabókar hjá Friðriki
Skúlasyni ehf. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem örugglega
hafa beina afkomu af vinnu við ættfræði og fjölskyldna þeirra
þá eru þeir samtals um 60 talsins. Hjá UVS eru starfsmenn-
irnir 40 og því má segja að það séu tæplega 200 einstaklingar
sem hafa að hluta til afkomu af ættfræðitengdri starfsemi
fyrirtækisins. Otaldir eru þá starfsmenn Erfðafræðinefndar.
Vesturfarasetrið hefur að jafnaði tvo starfmenn yfir árið en
þeim ljölgar á sumrin svo að það eru kannski tíu einstakling-
ar sem þar hafa framfærslu sína að einhveiju leyti af ættfræði-
tengdri starfsemi. Um 800 ættfræðingar eru í Ættfræðifélag-
inu. Fijáls verslun áætlar að um 40 sjálfstætt starfandi ætt-
fræðingar komi að ættfræðiútgáfu á hverju ári en ekki er víst
að þeir hafi miklar tekjur af því. Og þrátt fyrir að tugir manna
hafi misst atvinnu sína við gjaldþrot Genealogiu Islandorum
er ljóst að flöldi Islendinga byggir afkomu sína, þó ekki sé
nema að litlum hluta, á tilvist ættfræðinnar. B!1
42