Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 44

Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 44
Arndís Armann og Björn Gunnarsson, eigendurÁrmann Reykjavík ehf. „Fólk verður að vera ákveðið í því að vilja vinna saman og hafa svip- uð áhugamál til að þetta gangi upp, “ segir Björn. Mynd: Geir Ólafsson Hjónin vinna Hjón, sem vinna saman, reka saman fyrirtæki, eru í nánari tengslum hvort við annað en aðrir. Það hlýtur að geta íþyngt hjónabandinu og spurning hvort leiði sæki fremuráen í„venjulegum“hjónaböndum. Hvað er það sem ræðurþví hvort hjón geta unnið saman? Erþað samvinnuviljinn? Sáttfysi? Gottskipulag og ákveðin verkaskipting? Við leitum svara. Efitir Vigdísi Stefánsdótiur Flestir stunda vinnu og koma heim til sín að henni lokinni, til makans, sem annað hvort stundar aðra vinnu eða er heimavinnandi. Þannig skiptir fólk um vettvang, hefur um- ræðuefni úr vinnunni, vinnu hvors annars og um heimilið. En um hvað er rætt á heimilum þar sem hjónin vinna bæði á sama vinnustað og reka saman fyrirtæki? Er ekki hætta á að um- ræðuefnið snúist eingöngu um vinnuna og það sem gera þarf næstu daga? Er ekki hætta á að fólk fái alveg nóg hvort af öðru og vilji helst fara sitt í hvora áttina eftir langan vinnudag saman í stað þess að vera heima og hafa það notalegt? Hvað með börnin? Verða þau ekki út undan í öllu saman þegar mamma og pabbi eiga sér bara eitt áhugamál - fyrirtækið? Samstarfsviljinn Skiptir ÖilU Svörin við þessum spurningum eru jafn mörg og mennirnir eru margir. Frjáls verslun ræddi við þrenn hjón sem reka fyrirtæki saman og fékk að heyra eitt og annað um reynslu þeirra. Ein hjónin hafa unnið og búið saman í rúmlega þrjá áratugi, önnur hjónin eru ung og nýlega farin að reka saman fyrirtæki og eiga ung börn en þau þriðju hafa rekið fyrirtækið um tíma en ekki unnið saman í því nema um stuttan tíma. Þau voru öll sammála um það að samvinna og samstarfsvilji væri aðalatriðið. Og einnig að þörf væri fyrir að eiga stund sitt í hvoru lagi, utan vinnunnar. Ungu hjónin sögð- ust leggja á það ríka áherslu að hætta snemma í vinnu og sinna börnunum fram að háttatíma þeirra, þó svo að vinnan væri ef til vill tekin upp eftir að þau sofnuðu. Þau gerðu sér grein fyrir því að börnin stækkuðu hratt og að tíminn með þeim væri dýr- mætur. Ekki virtist neinum þeirra vandamál að skipta með sér verkum, verkaskiptingin kom einhvern veginn af sjálfu sér. Helst var varað við því að láta vinnuna taka of mikinn tíma, að leyfa einkalífinu ekki að njóta sín. ffl 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.