Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 56
Veiðideild ÚTILÍFS hefur stækkað talsvert a3 undanförnu og
starfsmönnum fjölgað. Þeir Úlafur Kr. Úlafsson, Drn Hjálmars-
son og Úlafur Úskar Úlafsson eru að vonum sáttir við útkomuna enda
hefur talsverð vinna verið lögð í að gera deildina aðgengilega og
þægilega fyrir veiðimenn. „Hér vinna menn sem ekki aðeins vita hvað
til er í versluninni, heldur hafa það að aðaláhugamáli að veiða og geta
þannig auðveldlega sett sig í spor viðskiptavinarins," segir Örn. „Fyr-
ir fluguveiðimanninn leggjum við enn meiri áherslu en áður á fjölda
flugna og hefur í þeim tilgangi verið komið upp „flugnabar" þar sem
viðskiptavinurinn getur valið sér flugur sjálfur, óháður afgreiðslu.
Þetta eigum við von á að verði til mikilla bóta og þæginda fyrir veiði-
menn sem geta nú í rólegheitum skoðað frábært úrval af flugum."
Markmið ÚTILÍFS er að veiðimaðurinn þurfi ekki að leita annað eft-
ir búnaði, hvort sem veiðin er fiskur, fugl eða hreindýr. Þekkt merki
eru innanbúðar svo sem Dam, Redington og Abu, merki sem flestir
veiðimenn þekkja og treysta. „Við eigum að sjálfsögðu allan fatnað
sem veiðimaðurinn þarf, einnig skófatnað," heldur Orn áfram. „Þar að
auki eigum við mesta úrval landsins af spúnum og beitu og erum ein-
faldlega að stefna að því að allir fínni eitthvað við sitt hæfi, hvort sem
peningaeignin er 1G0 kall eða 100 þúsund."
Þeir sem vilja skoða nánar úrvalið á Netinu geta farið inn á
www.utilif.is þar sem ÚTILÍF hefur opnað nýjan veiðideildarþátt og
kennir þar ýmissa grasa, hvort sem um er að ræða fræðslu, vöru-
kynningar eða veiðisögur.
Utilffsdeildin skiptist í raun í tvennt, því að á sumrin fer mest af
tjaldasölu ÚTILÍFS fram íTjaldalandi ÚTILÍFS að Vatnsmýrarvegi
v. Umferðarmiðstöðina. Þar eru tjöld öll uppsett til sýnis fyrir þá sem
vilja skoða þau nánar.
„Það er auðvitað miklu þægilegra að skoða tjöldin uppsett heldur
en að sjá bara myndir af þeim," segir Gísli Páll Hannesson, deildar-
stjóri Útilífsdeildarinnar, en með honum starfa sölumennirnir Helgi
Benediktsson, Svanur Lárusson og Arnar Einarsson. Gauti Sigurpáls-
son er forstöðumaður Tjaldalands og með honum starfa Helmut Mai-
er og Haukur Már Sveinsson, en þeir hafa margra ára reynslu af sölu
og þjónustu, á tjöldum jafnt og skíðum. „f versluninni kappkostum við
að eiga allt sem þarf til útilegunnar, og útiveru yfirleitt," segir Gísli.
„Við höfum mjög vandaða og góða gönguskó frá Meindl, þar sem vin-
sælasta tegundin heitir einmitt Island. Skemmtileg tilviljun. Þegar við
tókum Sportleiguna yfir fylgdi Fjallraven merkið með, en það er þekkt
merki í útivistarfatnaðí, tjöldum og tilheyrandi búnaði sem bætti enn
við annars gott úrval okkar af þeim vörum."
Þar fyrir utan bjóðum við upp á mikið úrval af vönduðum fatnaði á
frábæru verði fyrir alla fjölskylduna, og öll veðrabrigði, en þar eru
vörumerkin helst Marmot, Millet, Qrtovox, North Cape, Zo-on o.fl.
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
56