Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 57
ili
j m
llll t ;SHh/v.ÍI| ipil
* t'Kí-■■ ™
EL.. i[5s jpttjF'ýál ÍTT
Igolfdeild ÚTILÍFS er mikil áhersla lögð á þjónustu og gó3 vöru-
merki," segir Ingibergur Jóhannsson, deildarstjóri golfdeildar. „Við
höfum náð mjög góðum árangri hvað varðar að halda vöruverði í lág-
marki með beinum innflutningi og magninnkaupum,'1 segir hann. „Við
höfum alla tíð gætt þess að eiga aðeins viðskipti við trausta birgja en
ekki hlaupið eftir hugmyndum um stundargróða á kostnað gæða og
það vita viðskiptavinir okkar. Okkar stærsti birgir er Mitsushiba.
Gamalgróið og traust fyrirtæki sem hefur getið sér gott orð, enda
framleitt golfvörurfrá 1948.
Ingibergur segir úrval fatnaðar í versluninni vera hið besta hér á
landi og nefnir golffatnað frá Lacoste, Zo-on og fleirum.
„Við höfum golfáhugamenn í afgreiðslu og það segir sig sjálft að
þeir eiga gott með að veita faglega ráðgjöf varðandi val á búnaði, ekki
síst með tilliti til þess að til okkar leita margir sem eru að stíga sín
fyrstu spor í golfinu," segir Ingibergur.
Allt árið eru tilboð í golfdeildinni og reynt er að hafa þau fjölbreytt,
þannig að þau höfði til sem flestra. „Mig langar kannski að nefna það
svona að lokum," segir Ingibergur, „að í sumar munum við m.a. bjóða
golfpoka á sérlega góðu verði - en það er nokkuð sem náðist vegna
mjög hagstæðra samninga við Mitsuhiba. Gleðilegt golfsumar!" segir
hann svo kankvíslega og mundar golfkylfuna...