Frjáls verslun - 01.05.2001, Page 58
17. „Gullni hringurinn" „Gullni hringurinn“ er dagsferð til Gullfoss og Geysis þar sem komið er við á Laugarvatni og Þingvöll-
um í bakaleiðinni. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um ægifegurðina við Gullfoss eða ógnarkraftana við Geysi í Haukadal. Þetta
eru staðir sem allir verða að sjá. Við minnum á góða aðstöðu fyrir ferðamenn við Geysi, hótel sem og Geysisstofu. Sömuleiðis er
hægt að ganga um Haukadalsskóg. Um Þingvelli er það að segja að margir telja þá fegursta stað landsins þar sem ótrúleg náttúran
blandast hinni ellefu hundruð ára sögu íslendinga. Á leiðinni frá Þingvöllum til höfuðborgarinnar bendum við á Nesjavelli þar sem
gufustrókar og gullfalleg náttúran eiga samleið. Góðar gönguleiðir eru einnig við Nesjavelli.
18. /VlývQtn Eflaust er besta lýsingin á ferð í Mývatnssveit eitthvað á þessa leið: „Mývatn! Þarf að segja meira?“ Allir ættu að gefa
sér tíma til skoðunarferða um Dimmuborgir og hverina við Námafjall. Sjálfsagt er líka að fara að Kröflu. Við bendum á að hægt er
að leigja sér reiðhjól og hvers vegna ekki að hjóla í kringum vatnið? Mývatn er einhvern veginn staður sem allir heillast af en of
margir gera þar allt of stuttan stans.
19. Sigling út í DrQngey Þótt sumir hafi synt út frá eynni og í land þá mælum við frekar með því að menn sigli þangað. Sigling
út í sögueyjuna Drangey í Skagafirði er tvímælalaust einn af hápunktunum í íslenskri ferðaþjónustu. Erfið uppganga í eynni gerir
það þó að verkum að vart er hægt að mæla með því að taka börn með sér í þá ferð; hún er ekki alveg hættulaus og auðvelt er að
fara sér að voða.
20. Þórsmörk Þótt margir fullorðnir hætti sér ekki í Þórsmörk íýrstu helgina í júlí, þegar unglingar streyma þangað, þá er Þórs-
mörk auðvitað einn allra fallegasti og tignarlegasti staður á Islandi. Gönguleiðir eru þar margar og hægt er að velja sér tjaldstæði á
þremur stöðum; í Húsadal, Langadal og við Bása. Sömuleiðis eru tveir skálar í Mörkinni, í Langadal og við Bása. Auðvelt er að ganga
upp á Valahnjúk og njóta útsýnisins í faðmi Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls. B5
58