Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 61
Ylströndin í Nauthólsvík, þar er margmenni á góðviðrisdögum.
í þéttbýlinu...
Frá Reykjavík er stutt að fara suður um landið, austur fyr-
ir og norður. Reykjanesskaginn, með öllu því sem hann býð-
ur upp á rúmast innan dagsferðar. Sömuleiðis Hveragerði,
Selfoss, Laugarvatn, sveitin undir Eyjaíjöllum, Þingvellir,
Akranes og Borgarnes. Ljúft er að fara í gönguferð umhverf-
is Elliðavatn, skjótast til að skoða þjóðgarðinn og eyða þar
degi, fara í álfaskoðunarferð í Hafnarfirði eða skoða ótal söfn
sem á svæðinu eru.
Akureyri Akureyri er stærsti bær landsins utan höfuðborg-
arsvæðisins og er stundum nefndur höfuðstaður Norðurlands.
í bænum sjálfum er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu árið um
kring og Eyjafjarðarsveit, með allri sinni fegurð og miklu sögu,
er innan seilingar. Stutt er í Saurbæ þar sem einna fárra torf-
kirkna á landinu er að finna og Látraströnd. Skaginn stóri milli
Eyjaijarðar og Skjálfanda, býður upp á ótal gönguleiðir innan
um sundurskornar hlíðar og eyðibýli.
ísafjörður A Isafirði er ein elsta húsaþyrping landsins og það
eitt réttlætir ferð þangað. Frá Isafirði er gott að fara í ýmsar sigl-
ingar og skoðunarferðir, finna nálægð ijallanna og sjávarins. Það
kostar ekki krónu að veiða silung í Pollinum og vilji fólk fara
lengra er stutt í Bolungarvík og Hnífsdal.
Egilsstaðír Hún er ekki gömul byggðin á Egilsstöðum, en
fyrsta húsið var reist þar árið 1944. Byggðin er þó blómleg og
bæjarstæðið fallegt. Fellabær heitir sá hlutinn sem vestan brú-
arinnar yfir Lagarfljót er og þar er forn feijustaður. A Egilsstöð-
um eru nokkur handverkshús og þeirra þekktast líklega
Randalín en DeSign-ý er með allt öðruvísi handverk. Skemmti-
legt er að fara í siglingu um Lagarfljótið og stutt að aka til Seyð-
isfjarðar, Neskaupstaðar eða Eskiijarðar. Austfirðirnir eru
þekktir fyrir gott veður á sumrin og hæsta hita hér á landi. Þeir
hljóta því að vera góður kostur þeim sem kunna að meta sólina
en vilja jafnframt skoða og aka um djúpa firði og hitta fyrir
hrikalega tjallvegi og jafnvel hreindýr á stangli.
Vitarnir stórskemmtilegir Umhverfis landið allt eru vitar sem
gegnt hafa því hlutverki að vara sjómenn við og víst er að margir
þeirra hafa bjargað mannslifum á dimmum vetrarnóttum þegar
ekkert var til leiðsagnar annað. Það er vel þess virði að skoða vit-
ana þar sem farið er urn og sjá mismunandi byggingarlag þeirra
og staðsetningu og fá að heyra söguna. Fyrsti vitinn var byggður
á Reykjanesi árið 1878 en um aldamótin 1900 voru vitarnir orðnir
fimm að tölu. Uppbyggingu vitakerfisins lauk í kring um 1960 og
í dag eru ljósvitar við strendur landsins alls 104. Mjög er mismun-
andi hvernig ljósið í þeim fæst. Hvaleyrarviti hefur gasljós, sá eini
61