Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 62
FERÐALÚG - SÆKJUM ÍSLflND HEIIVI í SUMflR
á landinu sem svo er um varið. Sjö vitar eru með einnota raf-
geyma, 55 fá orku sína frá rafveitum og 41 er knúinn sólarorku.
Söfnill Víða um land er að finna söfn af ýmsu tagi. Sum stór og
viðamikil, eins og Byggðasafnið í Vestmannaeyjum, önnur
kannski bara eitt litið hús eða jafnvel garður. Öll eiga þau ein-
hveija sögu og með þvi að skoða þau - staldra við rétt sem
snöggvast - gefst færi á að kafa dýpra niður í söguna. Af athyglis-
verðum söfnum má nefna sem dæmi Símaminjasafnið, sem stað-
sett er í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu í Reykjavík, en þar má
finna sögu ijarskipta á íslandi, Sjóminjasafn íslands, með sögu
fiskveiða, siglinga og sjómennsku, Sædýrasafnið í Höfnum, Dav-
íðshús á Akureyri, Sænautaselið á Héraði, Steinasafnið á Teigar-
horni og þannig mætti lengi telja.
Veiði og reiðtúrar Við Langá er elsta veiðihús landsins, „Ensku
húsin“, en það hefur nú verið opnað öðrum en veiðimönnum og
er hægt að gista þar og njóta umhverfisins. Það er notalegt að
sitja við kamínuna í setustofunni, laus við truflanir frá sjónvarpi
og síma, í þessu skemmtilega húsi sem byggt var árið 1884. Reið-
túr á Löngufjörur með Hauki á Snorrastöðum er ógleymanlegur
þeim sem prófað hafa en það að fara ríðandi um landið í stað þess
að aka gefur alveg splunkunýja mynd af því og færir ferðalanginn
nær sjálfum sér og náttúrunni. Fagrihóll er sérkennilegt náttúru-
iyrirbrigði sem er við akveginn til Breiðuvikur á móts við Svart-
fell. Frost hefúr í gegnum aldirnar myndað þar mjög reglulega
grasivaxna garða 1 til 2 metra breiða sem eru til að sjá eins og
hryggir í kartöflugarði, en samt vel grónir.
Gönguleiðir Það vilja ekki allir aka um landið, sumir vilja fara
hægar yfir og skoða, tengjast náttúrunni og finna kyrrðina þeg-
ar ekkert truflar. Við bendum á gönguleiðina Seyðisijörður Loð-
mundarijörður um Hjáfrnárdalsheiði. Þetta er u.þ.b. 6 tíma gang-
ur og er mesta hæð 550 m. Gengið er eftir slóð með stikum og
vörðum og fara þarf yfir tvær óbrúaðar ár. Þessi leið var iýrrum
aðalleiðin milli flarðanna. Nokkuð bratt er upp í efstu brekkur í
Seyðisfirði en annars er þetta þægileg ganga og aðstaða er íyrir
ferðamenn í Stakkahlíð. Gönguleiðin milli Landmannalauga og
Þórsmerkur er án efa vinsælasta gönguleið landsins. Hún liggur
um stórbrotið og plbreytt landslag; hraun Landmannalauga, há
og hrikaleg fiöll og snjóbreiður við Hrafiitinnusker, sanda og ár
á Fjallabaksleið og skóglendi Þórsmerkur. Margir halda að
gangan sé frtið mál og það getur hún verið ef
veður er gott og ekkert kemur upp á. í
slæmu veðri, roki, rigningu og kulda, er
Laugavegurinn hins vegar ekki fyrir hvern
sem er. Gönguleiðin um Fimmvörðuháls er
með þeim vinsælli af styttri ferðum. Fimm-
vörðuháls er milli Eyjatjallajökuls og Mýr-
dalsjökuls og liggur í um 1.100 m hæð yfir
sjávarmáli. Sunnanmegin eru Skógar en
norðan megin er Goðaland og Þórsmörk.
Efst á hálsinum er Fimmvörðuskáli Útivist-
ar. Gangan yfir Fimmvörðuháls er tafin taka
um 8-10 klukkustundir.
Fjöllin Fjöll hafa löngum freistað. Nokkur
flöll eru oftar nefnd en önnur og má nefna t.d.
Esjuna, Heklu, Keifi, Helgafell, Trölladyngju
og IngólfsJjall. Ekki endilega fyrir það að vera
erfið yfirferðar, heldur fremur vegna þess að
þau eru oft gengin og gott að komast að
þeim. Þau eru einnig öll fremur nálægt
Reykjavik og stutt að fara ef löngun til fjall-
göngu grípur skyndilega.
Kirkjuferð Eítt er það sem skemmtilegt er
að skoða á ferðum um landið en það eru
kirkjurnar. Hefðbundnar kirkjur með litlum
turnum og klukkum, stórar steinsteyptar
kirkjur, kirkjur úr rekaviði og kirkjur sem
eru eitthvað allt annað en kirkjur nú á dög-
um, til að mynda leikskóli eða gistihús. Sum-
ar kirkjur eru ótrúlega fallegar, aðrar passa
svo vel inn í umhverfið að vart er hægt að
hugsa sér það betra.
Hellar Hellar sem eru gerðir af náttúrunn-
ar hendi, td. Arnarker í Ölfusi, en einnig
manngerðir, td. á Hellum undir Skarðsijalfi í
Landsveit, eru meðal ijölmargra áhuga-
Vestmannaegar
óvænt æ vintýri
Heimsækið Vestmannaeyjar
- með flugi eða ferju.
I Eyjum er boðið upp á fjölbreytta
gistimöguleika. hótel, gistiheimili og
tjaldstæði ásamt úrvali veitinga- og
skemmtistaða. Boðið er upp á fjölmargar
skoðunarferðir á sjó, í lofti og á landi.
Stórkostlegt útsýni, fjölskrúðugt fuglalíf,
þ.á m. stærsta lundabyggð í heimi.
Eldgosið 1973 lagði Vestmannaeyjabæ
næstum í eyði en þrátt fyrir það er þar í dag
ein stærsta verstöð landsins.
Gosið er ekki aðeins nálægt öllum
í minningunni, heldur
eru minnisvarðar þess um
allan Vestmannaeyjabæ.
Á Byggðasafninu í Eyjum er að
finna lifandi sýningu um gosið og í bíóinu eru
daglega sýndar myndir frá þessum atburðum.
I Vestmannaeyjum er auk þess að finna
einstætt sædýrasafn, það eina á íslandi.
í Eyjum er glæsilegur 18 holu golfvöllur.
Auk þess er alltaf spennandi að fara í
fuglaskoðun um eyjamar. Einnig eru íboði
óvenjulegar gönguferðir, hestaleiga og
sjóstangaveiði. Greiður aðgangur er að
íþróttasölum og sundlaug með heitum
pottum og gufubaði.
Verið velkomin til Vestmannaeyja.
Vinsamlegast haftð samband ef þið óskið
nánari upplýsinga.
n* Upplýsingamiöstöö ferðamála
L* Vestmannaeyjum
Sími: 481-3555 • Fax: 481-1572
' #'
62