Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 63

Frjáls verslun - 01.05.2001, Side 63
FERÐALÖG - SÆKJUM ÍSLflND HEIIVI í SUIVIflR verðra staða á Suðurlandi. Stutt og skemmtilegt er að ganga frá Arnarstapa að Hellnum á Snæfellsnesi, setjast niður á kaffihúsinu þar og slappa af og ganga svo til baka. í Landssveit eru þrír hell- ar sem notaðir hafa verið sem geymslur, hlaða og fjárhús við bæ- inn Hella. Þessir hellar eru manngerðir, höggnir í móhellur eða sandstein. Sams konar hella er að finna vítt og breitt í Árnes- og Rangárvallasýslum, til dæmis að Ægissíðu þar sem þeir eru 12 talsins. Ýmiss konar veggjakrot er að finna í sumum hellanna, fangamörk, ártöl og krossa. Bók fyrir jeppafólk eir sem ætla að skoða hálendi landsins eru ekki á flæðiskeri staddir varðandi leiðarvisi. Nýlega kom út bók hjá bókaútgáfunni Skerplu ehf. sem ber nafnið Hálendishandbókin - ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi Islands. Höfundur bókarinnar er Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður en hann hefur um árabil ferðast um hálendi landsins akandi og gangandi og þekkir vel til þess. „Eins og undirtitill bókarinnar gefur til kynna er hún ekki aðeins íýrir þá sem hafa gaman af því að aka bílum um hálendið, heldur einnig fyrir alla þá sem vilja njóta alls þess besta sem landið býður upp á,“ segir Páll Ásgeir. „Bókinni er ætlað að ljúka upp þeim töfraheimi sem hálendið er með því að segja til vegar varðandi ökuleiðir og gönguleiðir og merka áfangastaði. I henni eru bæði eiginlegar lýs- ingar, landafræði og náttúrufræði og í bland við það sögulegur fróðleikur og jafnvel kveðskapur. Mikið er til af fróðleik um há- lendið en hann hefur verið dreifður um allt, ýmist í munnlegri geymd eða á bókum og blöðum. Ég hef leitast við að safna þessu saman á einn stað svo lesandinn geti notið margs konar fróðleiks um leið og hann ferðast um landið, hvort sem er á venjulegum eða breyttum jeppum." Bókin er í þægilegu broti og henni er ætlað að vera ferðafélagi í bílnum, ekki að sitja uppi í hillu. Hún er því í kiljuformi og Uædd sterkri plastkápu. I henni eru um 350 lit- prentaðar ljósmyndir og 30 kort af ýmsu tagi. „Til- urð bókarinnar varð með þeim hætti að Þórarinn Friðjónsson, útgefandi bókarinnar, eignaðist jeppa og langaði að vonum til að fara á fjöll. Þá stóð hann frammi fýrir þeirri staðreynd að engar upplýs- ingar lágu fýrir á einum stað og vildi bæta úr. Hann hafði um það vitneskju að ég hefði ferðast víða um og bað mig að vinna þessa bók sem ég og gerði í samvinnu við hann og marga aðra.“ [39 Tryggingar VTSA ísland - Greiðslumiðkin hf. Álfabakka 16 109 Reykjavík Sími 525 2000 Fax 525 2020 www.visa.is visa@visa.is Gleymd-ei-mér V/SA ALLT SEM ÞARF Allar upplýsingar hjá Þjónustumiðstöð VISA í síma 525 2025

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.