Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 65

Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 65
VÍNUIVIFJÖLIUN SIGMARS B. ast upp á lagið með að smakka og greina vín, en æfingin skapar meistar- ann. Því fleiri upplýsingar um vinin sem skráðar eru og því fleiri vín sem smakkað er á, því meiri verður þekk- ingin. Vín er skemmtileg tómstunda- iðja því hún snertir svo marga þætti. Nefna mætti jarðfræði, erfðafræði, veðurfræði, efnafræði og jafnvel sagn- fræði. Mikilvægast er þó að finna þá tegund vína sem hverjum og einum fellur best í geð. Út frá þeirri vitneskju er þá hægt að fara að safna vínum og koma upp vínkjallara. Engin þörf er á að eiga einhver ósköp af vínum heima, ágætt er að eiga 40 til 60 flöskur. Auð- vitað er gaman að eiga stóran vínkjall- ara með mörgum flöskum, en það er nú önnur saga. Starfsfólk í sérlistadeild vínbúðarinnar Heiðrúnar veitirgjarnan viðskiptavinum upplysingar um góð vín. 0g SVO er það vefurinn Margs konar fróðleik um vín er að finna á vefnum. Ef þú vilt t.d. ferðast um vínhéruð heimsins og fræðast um vín og mat ættir þú að fara inn á vef Stephens Barrett sem er www.stephenbarrett.com. Ef þú vilt fara á gott námskeið í vínfræðum farðu þá inn á vefinn www.wine-ed- ucation-service.com. Fróðleikur um vínin frá Bordeaux er nauðsynlegur og þá gildir vefurinn www.vins-bordeaux.fr. Afar fróðlegur vefur um vínin frá Nýja Sjálandi er www.nzwine.com, og þá eru það Kaliforníuvínin en upplýsingar um þau fást á vefnum www.winesofcalifornia.com. Upplýsingar um bækur í vínfræðum eru á vefnum www.wineprices.com. Skemmtilegur vefur um vín og mat er www.decanter.com/goodliving en á þessum vef eru meðal annars girnilegar uppskriftir. Almennar upplýsingar og ýmsan fróðleik um vín er hægt að fá á vefnum www.chateauonline.com. Áhugafólk um portvín ætti að skoða vefinn www.ivp.pt Samanþurðarvin Áhugavert er að bera saman vín sem pressuð eru úr sömu þrúgutegundinni. Það er sattbest að segja stórkostlegt að kynnast því hvað jarðvegur og veðurfar hafa mikil áhrif á vínið. Vín úr t.d. Chardonnay þrúgunni, sem rækt- uð er í Frakklandi, er svo allt öðruvísi en vín úr sömu þrúguteg- und ræktaðri í Kaliforníu. Raunar þarf ekki tvö ólík lönd til, Chardonnay vín frá Chabli í Frakklandi er töluvert ólíkt víni frá suður-Bourgogne, þó er Chabli eiginlega hreppur í Bourgogne héraði. Skemmtilegt er að bera saman Chardonnay vínin Pierre Andre Chablis le Grand Pre, sem er létt, með fersku ávaxta- bragði þar sem bragð af grænum eplum er yfirgnæfandi, og Beringer Napa Valley Chardonnay. Þetta vin er þurrt og af því er öflugt eikarbragð sem er eins og létt kryddað. Það er svo sannarlega skyldleiki með þessum vínum en þó eru þau svo ólík. Hugel Riesling er svipað vín og ekta Alsace Riesling vín, sýruríkt með smjörbragði. Stoneleigh Marlborough Riesling frá Nýja Sjálandi er líkur Riesling en töluvert öðruvísi en sá franski, hann er vissulega þurr og sýruríkur en af honum er ávaxtakeimur með léttu piparbragði. Munurinn á milli rauðvín- anna úr sömu þrúgutegundinni er hins vegar meira afgerandi. Sólarljósið hefur meiri áhrif á rauðvínsþrúguna en þær þrúgur sem hvítvín er pressað úr. Fetzer Home Ranch Zinfandel er bandarískt vín en af þessu víni er milt eikarbragð með ljúfu blá- beija- og súkkulaðibragði. L.A Cetto Zinfandel er frá Mexíkó. Af þessu víni er bragðið einnig milt en ávaxtabragðið er yfir- gnæfandi. Skemmtilegar andstæður eru tvö ljómandi Merlot vín. Annars vegar er Pasqua Merlot Delle Venezie Vingeti del Sole frá ítaliu, létt vín með aldinkeim sem stundum minnir á sveskjugraut. Hins vegar er vín af sérlista ÁTVR sem heitir Canepa Private Reserve Merlot og er frá Chile. Þetta vín er mun þyngra Merlot, örlítið sætara með góðum aldinkeim og það vottar fýrir smá tóbaksbragði. Það er sem sagt athyglisvert að bera saman vín úr sömu þrúgutegund, á þann hátt komumst við að þvi að vín eru íyrst og fremst náttúruafurð og víngerðar- meistarinn mikli er iýrst og fremst sjálfur skaparinn. SU Áhugavert er að hera saman vín sem pressuð eru úr sömu þrúgutegundinni. Það er satt hest að segja stúrkostlegt að kynnast því hvað jarðvegur og veðurfar hafa mikil áhrif á vínið. Hvítvín Pierre Andre Chablis le Grand Pri, á krónur 1.390 Beringer Napa Valley Chardonnay, á krónur 1.690 Hugel Riesling, á krónur 1.280 Stoneleigh Marlborough Riesling, á krónur 1.180 Rauðvín Fetzer Home Ranch Zinfandel, á krónur 1.150 LA Cetto Zinfandel, á krónur 1.090 Pasqua Merlot Delle Venezie del Sole, á krónur 1.460 Canepa Private Reserver Merlot, á krónur 1.360 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.