Frjáls verslun - 01.05.2001, Blaðsíða 68
VERSLUN SflLfl SKOTVGPNfl
Skotvopn eru ekki vinsæl hjá yfuvöldum friðelsk-
andi þjóðar en í lítilli verslun á Dunhaganum
starfar eini iðnlærði byssusmiðurinn á íslandi
og þjónar þeim 15 þúsund veiðimönnum sem
virkir eru í dag. Hann hefur byggt upp jyrirtæki
sitt í fimm ár og er bjartsýnn á framhaldið.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Uppi á veggjum hanga myndir af manni með bráð
fyrir fótum sér og veiðifélaga sér við hlið, yfir dyr-
um fylgjast uppstoppuð dýr með umferðinni og á
veggjunum hanga alls kyns minjar og myndir úr veiði-
ferðum liðinna ára. I einu horninu stendur óhagganleg-
ur peningaskápur og bak við rimla standa rifflar og önn-
ur skotfæri sem þolinmóð bíða kaupanda síns. Þó að
verslunin sé lokuð á morgnana hringir bjallan alltaf öðru
hvoru, sérstaklega þegar líður að hádegi, því að veiði-
glaðir viðskiptavinir þurfa að koma með vöðlurnar sínar
í viðgerð fyrir vertíðina í sumar. Jóhann Vilhjálmsson er
byssusmiður að mennt og starfi. Hann hefur rekið
byssuverkstæði og verslun í fimm ár og er nú búinn að
koma sér fyrir við Dunhagann í Reykjavík. Þar þrífst
hann vel.
Jóhann er upprunalega vélvirkjameistari að mennt
og vélstjóri lengst af, var lengi til sjós hjá Landhelgis-
gæslunni og á togurum áður en hann söðlaði um fyrir
Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður hefur starfrækt
verslun og verkstæði í fimm ár. Hann er eini íslending-
urinn sem hefur menntun í því að handsmíða byssur og
gerir það af metnaði og list. Handsmíðaður riffill getur
kostað allt að hálfa milljón króna.
Mynd: Geir Ólafsson
tíu árum, gekk á land í Belgíu til að setjast þar á skólabekk.
Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á veiðiskap og skotfær-
um og er fyrsti og eini íslendingurinn sem hefur lært byssu-
smíði sem iðn. Erlendis er rík hefð að baki veiðum og byssu-
smíði og þar tíðkast mikil sérhæfmg innan iðngreinarinnar,
menn sinna ýmist málmsmíði, skeftissmíði eða jafnvel
blámun og mynsturgreftri en á íslandi er markaðurinn svo lít-
ill að ekki er hægt að leyfa sér slíkan munað. í Belgíu lærði
Jóhann bæði málmsmíði og skeftissmíði og hann sinnir
hvoru tveggja auk þess sem hann grípur í blámun og skreyt-
ingar eftir aðstæðum.
algengastar hér á landi en sjálfur smíðar hann mestmegnis
riffla því að við haglabyssusmíðina þarf stórar vélar sem hann
hefur ekki aðgang að. Erlendis kaupa efnamiklir og metnað-
arfullir veiðimenn og safnarar byssur fyrir kannski fimm
milljónir króna en hér fer verðið á nýjum, handsmíðuðum
riffli varla yfir hálfa milljón króna. Efniskostnaðurinn er á bil-
inu 100-200 þúsund krónur og svo fara 200-300 tímar í að
smíða byssuna sem er þá „klæðskerasaumuð" fyrir viðkom-
andi veiðimann. Jóhann lyftir upp fallegum riffli og bendir á
skeftisendann þar sem viður og járn mætast. „Sjáðu, þetta er
dagsvinna og hérna sjást hvergi nein samskeyti.“
200-300 tímar í eina byssu „Ég set ekki minn gröft á dýrar,
handsmíðaðar byssur því að þá er ég bara að eyðileggja. Er-
lendis starfa menn við svona myndskreytingar og hafa ekki
gert neitt annað í ijölda ára. Þeir eru listamenn og það getur
tekið þá marga mánuði að grafa út mynd á eina byssu,“ segir
Jóhann og það er greinilegt að hann ber djúpa virðingu fyrir
iðninni og verkum þeirra sem við hana starfa.
Islendingar nota einkum tvenns konar skotvopn við veið-
ar, haglabyssur og riffla, og segir Jóhann ódýrar haglabyssur
68
Smíðar ný Stykki Verkefni byssusmiðsins eru fjölbreytt enda
er ekkert auðvelt að lifa í reglugerðaríkinu íslandi þar sem
skotvopn mæta fordómum og innflutningur og viðskipti, jafn-
vel nýsmíði, eru háð leyfum af hálfu hins opinbera. Jóhann
smíðar ijórar til fimm nýjar byssur á ári og veltan nemur um
10 milljónum króna. Hann er þó bjartsýnn og segir veltuna
fara vaxandi. Hann hefur nýlega stækkað við sig húsnæðið og
í framhaldi af því tekið að sér vöðluviðgerðir. Fyrir utan ný-
smíðina tekur Jóhann að sér að gera alls kyns breytingar á