Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 72

Frjáls verslun - 01.05.2001, Síða 72
ViktorJ. Vigfusson, framkvŒrndostjóri Netskilo: „ Við tökum við rafrcenum reikningsgögnum frá þeim sem eru íþjónustu hjá okkur og viðskiþtavinurinn getursvo bœði skoðað oggreitt reikningana ígegnum tölvu- banka sinn. FV-mynd: Geir Ólajsson. menntafræðingur að mennt en hefur upp á síðkastið skrif- að í Gestgjafann. „Eg er svo stálheppinn að hún er snill- ingur í matargerð og nýtur þess að prófa nýja rétti reglu- lega,“ segir Viktor brosandi. .Áhugamál okkar liggja sem betur fer að mestu saman. Það eru auðvitað þessi hefð- bundnu áhugamál, ferðalög innanlands og utan. Við höf- um bæði mjög gaman af því að ferðast í íslenskri náttúru, fara í göngur og skoða okkur um en ekki síður ánægju af því að ferðast erlendis. Ég fór til að mynda í heimsreisu fýr- ir 10 árum og það blundar alltaf í mér að gera það aftur, en það verður að bíða betri tíma. Við höfum svipaðan tón- listarsmekk og kunnum bæði að meta sígilda tónlist og jazz. Viktor segist hafa gaman af því að spila fótbolta með fé- lögum sínum en þvertekur fýrir að hann haldi með ein- hverju einu liði. „Ég er eigin- lega utan trúfélaga hvað það snertir og er alls ekki einn þeirra eiginmanna sem eyða öllum helgum í það að horfa á fótbolta. Hef miklu meiri ánægju af því að spila hann Viktor J. Vigfússon, Netskilum Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Hugmyndin á bak við Net- skil var að gera fyrir- tækjum kleift að birta á vefnum reikninga og önnur skjöl sem send eru viðskipta- vinum og spara með því papp- írs- og sendingarkostnað. Eig- endur Netskila eru Orkuveita Reykjavíkur, Akureyrarbær, Hitaveita Suðurnesja, Spakur, Mens Mentis, Sjóvá-Almenn- ar, Burðarás, Húsasmiðjan og íslandspóstur. „Við tökum við rafrænum reikningsgögnum frá þeim sem eru í þjónustu hjá okkur og viðskiptavinur- inn getur svo bæði skoðað og greitt reikningana í gegnum tölvubanka sinn,“ segir Vikt- or. „Aðgengi að Netinu og notkun netbanka er hvergi meiri en hér á landi svo jarð- vegurinn fyrir þessa þjónustu er mjög góður. Hagræðið get- ur þannig orðið mikið, bæði fyrir almenning og fyrirtæki.“ Að sögn Viktors geta fyrir- tæki birt hvers kyns skjöl í gegnum netskil og gert við- skiptavinum kleift að gera ýmsar greiningar á viðskipt- um sínum. „Þjónustan er nú þegar aðgengileg í Heima- banka sparisjóðanna og von- umst við til þess að síðar á ár- inu verði allir netbankar landsins búnir að tengjast þjónustunni." Fyrirtækið var stofnað í mars í fyrra og Viktor var fljótlega ráðinn til þess sem framkvæmdastjóri. „Starf mitt hefur verið fólgið í því að sjá um uppbyggingu starf- seminnar og stefnumótun, ráða starfsmenn og koma þjónustunni af stað,“ segir hann. „Ég er vélaverkfræð- ingur að mennt, lærði í HÍ, en fór til framhaldsnáms í Karls- ruhe í Þýskalandi. Eftir að ég kom frá námi fór ég til starfa hjá tæknideild Flugleiða á Keflavíkurvelli og sá þar m.a. um markaðssetningu og sölu á viðhaldi til erlendra aðila." Viktor er kvæntur Ernu Sverrisdóttur. Hún er bók- sjálfur og finnst það góð tíl- breytíng frá því að sitja löng- um stundum við skrifborðið.“ Fyrir utan fótbolta og ferðalög hefur Viktor gaman af lestri góðra bóka og segist m.a. sækja í bækur um fræði- leg efni, s.s. á sviði eðlisfræði og þróunar mannsins. Hann segist líka hafa lært að kafa fyrir nokkrum árum og að alltaf standi til að gera meira af því. „I sumar verður ekki tekið langt frí þar sem fyrir- tækið er ungt en þó ætlum við í frí til Frakklands þar sem okkur er að auki boðið í brúð- kaup,“ segir hann. „Og ferð- ast um landið að svo miklu leytí sem tími gefst til.“S!i 72

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.