Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Side 25

Frjáls verslun - 01.05.2003, Side 25
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, um jjárdrátt aóalgjaldkerans: „Hann naut trausts og bjó yfir mikilli þekkingu“ Fjárdrátiur Sveinbjörns Kristjánssonar, aðalgjaldkera Símans, nemur a.m.k. 250 milljónum króna. Afþvífóru um 130 milljónir til Alvöru lífsins hf, félags Arna Þórs Vigfússonar og Kristjáns Ra. Kristjánssonar. Auk þess keyþti aðalgjaldkerinn í heimildarleysi 42 milljóna króna víxil afBurnham International sem íslenska sjónvarþsfélagið vargreiðandi að. Sá víxill var greiddur á gjalddaga. En með víxlinum er fjárdrátturinn samtals 292 milljónir. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, sendi hinn 12. júní sl. út fréttatilkynningu um fjár- drátt aðalgjaldkera Símans. Tilkynningin hefur vakið athygli fyrir það hve hún er ítarleg og mik- ill vilji er til að upplýsa almenning um málið. Vel gert! Hún er birt hér í heild sinni: A. Aðdragandi málsins Upp komst um málið þegar innri endurskoðun Símans tók út ákveðna þætti bókhaldsins, eftir fyrirspurn frá Skattstjóranum í Reykjavík, dags. 8. maí, sem barst 9. maí sl. og gaf 10 daga frest til svara. Fyr- irspurnin varðaði viðskipti Símans við Alvöru lífsins hf. Ekki fundust neinar greiðslur til þessa fyrirtækis og óskaði Síminn eftír skýringum frá skattsljóra. Þær skýringar, sem bárust með tölvupósti þann 19. maí, gáfu tilefni til nánari skoðunar innanhúss. Kannað var m.a. hveijir stóðu að félaginu Alvöru lífsins og kom í ljós að bróðir fyrrum aðalgjaldkera var einn helsti eig- andi þess, þá hóf Síminn umfangsmikla rannsókn. I kjölfarið viðurkenndi þáverandi aðalgjaldkeri stórfellt auðgunarbrot. Málið var samstundis kynnt stjórn félagsins og fór strax í kjöl- farið til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra sem hefur haft forræði málsins og stjórnað rannsókn þess. B. Aðferðin í upphafi var ljóst að um stórfellt auðgunarbrot var að ræða og beindist rannsóknin fyrst og fremst að árunum 1999 og 2000 og að hinum kerfisbundnu rangfærslum í tölvu- kerfi fyrirtækisins. Við nánari rannsókn málsins kom í ljós að málið náði einnig til áranna 2001-2003 og að fyrrum aðalgjald- keri beitti jafnframt öðrum aðferðum. Hann naut trausts yfir- manna og samstarfsmanna og bjó yfir mikilli þekkingu á bók- halds- og eftirlitskerfi Símans. Hann nýttí sér traust samstarfs- manna svo og þessa þekkingu til afbrotsins til að hylja slóð sína. Stærstum hluta ijárins náði aðalgjaldkerinn með því að breyta textaskrám með upplýsingum um reikninga, sem hann átti að greiða, og millifærslur sem hann átti að framkvæma. Allt virtist rétt og eðlilega skráð í sjálfu bókhaldskerfinu en upplýs- ingum breytt eftir að þær voru komnar út úr bókhaldskerfinu á leið til banka. Dæmi: Samkvæmt bókhaldi átti að greiða fyrir- tæki A reikning en skránni var breytt þannig að upphæðin rann inn á reikning í eigu B. Svarskrá frá bankanum var síðan breytt að nýju áður en hún var lesin inn í bókhaldskerfið í þá veru að reikningur A hafi verið greiddur. Þannig gat fyrrum aðalgjald- keri velt upphæðinni á undan sér án þess að nokkuð vantaði í bókhaldið. Starfsfólk Símans hefur unnið náið með lög- reglu við rannsókn málsins og nú er ljóst að brot aðalgjaldkerans voru einnig framin með öðrum aðferðum, þ.e. misferli við útgáfu tékka, óheim- ilum millifærslum í bankalínu (skjálínu), auk stuldar á reiðufé. Til að fela slóð sína notaði fyrrum aðalgjaldkeri biðreikninga félagsins með ólögmætum hætti, tvigreiddi reikninga og nýttí sér ofgreidda reikninga, auk ólögmætra gjald- færslna á gengismun og vaxtagjöldum fyrir- tækisins. Aðferðir hans voru því margslungnar og um margt óhefðbundnar, ásetningur mikill en á sama tíma naut hann trúnaðar. Allt þetta hefur gert málið erfiðara í rannsókn. Rannsókninni er ekki lokið en hefur leitt í ljós auðgunarbrot sem nemur 250 milljónum króna. Líklegt er tafið að búið sé að upplýsa brotið að mestu en ekki er loku fyrir það skotið að upp- hæðin eigi eftír að hækka. Máfið er umfangsmikið og flókið, rannsóknarhagsmunir eru enn miklir og máfið er enn undir stjórn lögreglu. Ekki er heimilt að greina nákvæmar um aðferðir á þessari stundu. C. Umfang auðgunarbrotsins Auðgunarbrotið átti sér stað á árunum 1999-2003 og skiptist á þessari stundu þannig á milli ára. Málið er á forræði efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og vegna rannsóknarhagsmuna er Símanum ekki unnt að Brynjólfur Bjarnason, for- stjóri Símans, sendi frá sér óvenju ítarlega og góða fréttatilkynningu sem vakið hefur athygli fyrir það hve mikill vilji er til að upplýsa almenning um fjárdráttarmálið. 25

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.