Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 29
Árni Þór Vigfússon. Kristján Ra. Kristjánsson.
Söfnunin tókst vel Þegar leið á árið 2001 kom í ljós að
Skjár einn átti í ijárhagsvandræðum. Farið var í endurskipu-
lagningu og endurijármögnun. Öllum starfsmönnum frétta-
stofu var sagt upp og síðar um haustið bað Skjár einn áhorf-
endur um ljárframlög upp á 4.290 krónur, eða andvirði mán-
aðaráskriftar Stöðvar 2. Þessi bón vakti mikla athygli og
þótti söfnunin takast vel. Seinna um haustið tók Kristinn Þ.
Geirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Goða, við sem
framkvæmdastjóri Skjás eins og lét Kristján Ra. þá af
störfum sem fjármálastjóri. Þar með var endurijármögnun
fyrirtækisins upp á 200 milljónir króna lokið og komu nýir
íjárfestar í stjórn. I viðtali við Árna Þór í 11. tölublaði
Frjálsrar verslunar 2002 kemur fram að hluthafar voru þá
um 20 talsins og átti enginn einn ráðandi hlut í félaginu.
Sýningarnar á Hellis-
búanum tókust afskap-
lega vel. Vinirnir ásamt
Bjarna Hauki ákváðu að
tryggja sér sýningarrétt
verksins á hinum Norðurlöndunum og var Hellisbúinn frum-
sýndur í Bellevue-leikhúsinu í Kaupmannahöfn haustið 2000
og gekk strax vel. Eftir fylgdu uppsetningar í Noregi og Sví-
þjóð og fyrirhugað var að setja verkið upp í Finnlandi, Eystra-
saltslöndunum og Japan. Frekari áform voru á prjónunum í
skemmtigeiranum. Arni Þór hætti sem sjónvarpsstjóri á Skjá
einum um síðustu áramót og fór þá að einbeita sér að Three
Sagas Entertainment, Þrjár sögur, fyrirtæki í eigu hans sjálfs,
Kristjáns Ra. og Bjarna Þórs. Fyrirhugað var að fara út í fram-
leiðslu á sjónvarpsefni fyrir erlendan markað.
Líka í veitingarekstri Árni Þór og Kristján Ra. hafa ekki
aðeins verið í leikhúsuppsetningum og Jjölmiðlarekstri, þeir
hafa einnig haslað sér vöfl í veitingarekstri og rekstri ýmissa
afþreyingarfyrirtækja. Sumarið 1999 keyptu þeir kaffihúsið
Prikið á Laugavegi, stækkuðu það og tóku aðra hæð í notkun.
Um haustið opnuðu þeir þar 120 manna kaffihús. Þeir stofn-
uðu einnig ásamt fleirum fyrirtækið Lífsstíl hf. sem rak meðal
annars Hótel Borg og veitingastaðinn Thorvaldsen. Þetta
fyrirtæki óx hratt og var komið með yfir 100 starfsmenn á
hálfu ári. Þeir félagarnir keyptu líka rekstur líkamsræktar-
stöðvarinnar Planet City í Austurstræti af Jónínu Benedikts-
dóttur í fyrrahaust ásamt Eyþóri Arnalds og kölluðu Planet
Reykjavík. Eyþór seldi síðar hlut sinn í fyrirtækinu. Þá hefur
komið fram í tjölrniðlum að Árni Þór og Kristján Ra. hafa
einnig átt ásamt fleirum í öðrum fyrirtækjum, þ.á.m.
Suðurljósum og Alvöru lífsins sem hefur verið í fréttum að
undanförnu. S3
130 milljónir frá
Símanum inn í Skjá einn
Fjárdráttur aðalgjaldkera Símans, Sveinbjörns Kristjáns-
sonar, hefur smám saman verið að fá á sig lokamynd og
tengslin við félag þeirra Árna Þórs Vigfússonar og Kristjáns
Ra., Alvöru lífsins ehf., smátt og smátt verið að púslast saman.
I hádegisíréttatíma Ríkisútvarpsins laugardaginn 14. júní var
athyglisvert viðtal við Kristin Geirsson, framkvæmdastjóra
Islenska sjónvarpsfélagssins, sem rekur Skjá einn, um þetta
mál. Við birtum hér þessa hádegisfrétt RUV í heild sinni en
fréttin er býsna greinargóð um þetta mál. Hún er svona:
„130 milljónir sem fóru frá Landssímanum á bankareikn-
ing hlutafélagsins Alvöru lífsins runnu nær óskertar inn í
rekstur Islenska sjónvarpsfélagsins á árunum 1999 til 2001.
Kristinn Geirsson, framkvæmdastjóri Islenska sjónvarps-
félagsins, segir að eftir að farið var að rannsaka máflð sé ljóst
að Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson hafi íjár-
magnað sína þátttöku í félaginu með fé frá Landssímanum. I
dag eigi Islenska sjónvarpsfélagið ekkert óuppgert gagnvart
neinum vegna málsins.
Kristinn Geirsson segir að af 130 milljónum af fé Landssím-
ans, sem fóru í Alvöru lífsins og þaðan til reksturs Skjás eins,
fengu Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson greiddar
rúmlega 60 milljónir til baka frá Islenska sjónvarpsfélaginu og
aðrar 65 milljónir greiddar í hlutabréfúm á árunum 2000 til
2001. Þá létu þeir skrifa á reikning félagsins eða tóku út verð-
mæti fyrir 14 mifljónir. Þeir voru forsprakkar félagsins en stærri
hluthafar komu inn í félagið strax á árinu 1999 og 2000.
Árið 2001 var félagið nánast gjaldþrota og hlutafé þess var
fært niður í litið sem ekkert og nýir fjárfestar komu inn.
Hlutafé þeirra félaga var þá orðið lítið og er eingöngu tæp 5%
í dag. Lögreglan hefur nú lagt hald á þau bréf en þau ganga
inn í uppgjör vegna Jjársvikamálsins innan Landssímans.
Það kom fram í fyrradag að aðalgjaldkerinn fyrrverandi tók
í heimfldarleysi 25 milljóna króna lán frá Landssímanum árið
1999. Enga lánspappíra var að finna í fórum Landssímans en
peningarnir voru raktir til Islenska sjónvarpsfélagsins. Lánið
var greitt til baka sama ár. Þá keypti aðalgjaldkeri Landssímans
víxfl af verðbréfamiðlara sem Islenska sjónvarpsfélagið var
greiðandi að og hljóðaði hann upp á 42 milljónir króna.
Kristinn Geirsson segir að félagið eigi ekkert óuppgert
gagnvart einum eða neinum í þessu máli. Það sé þó ljóst að
félagarnir hafi tjármagnað sína þátttöku í félaginu með pen-
ingum frá Alvöru lífsins. Virkri þátttöku þeirra í félaginu hafi þó
lokið með öllu þegar hlutaféð var fært niður árið 2001, Kristján
Ra. hafi þá látið af störfum sem Jjármálastjóri. Árni Þór Vigfús-
son hafi verið hafður áfram sjónvarpsstjóri til að viðhalda ímynd
stöðvarinnar, hann hafi þó hvergi komið nærri rekstrinum eftir
þann tíma.“ H3
„Ljóst að þeir Ámi Þór Wgfusson og Kristján Ra.
Kristjánsson hafi fjármagnað sína þátttöku í Skjá einum
með fé frá Landssímanum."
Versló
29