Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 30
Davíð með útbreiddan faðm. Fjórða ríkisstjórnin undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessa-
stöðum eftir hádegi föstudaginn 23. maí sl.
Dagur Davíðs
og Halldórs
Eftír Jón G. Hauksson Myndir: Geir Olafsson
Fjórða ríkisstjórnin undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við
völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum efdr hádegi föstu-
daginn 23. maí sl. Þetta var dagur þeirra Davíðs og Halldórs
Asgrímssonar utanríkisráðherra. Halldór tekur við embætti for-
sætisráðherra haustið 2004. Davíð mun að öllum líkindum
verða innanborðs í ríkisstjórn Halldórs og leysa hann af hólmi
sem utanríkisráðherra - eða jafnvel fara í ijármálaráðuneytið.
Tveir nýir ráðherrar tóku sæti í ríkisstjórninni, þeir Björn
Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, og Arni Magnússon, Fram-
sóknarflokki.
Björn Bjarnason tók við af Sólveigu Pétursdóttur sem
dóms- og kirkjumálaráðherra. Hún verður forseti Alþingis
haustið 2005 þegar Halldór Blöndal lætur af því embætti.
Björn hættir sem leiðtogi sjálfstæðismanna í borgarstjórn og
um leið myndast rými fýrir nýjan mann að leiða listann í
næstu borgarstjórnarkosningunum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tekur sæti í ríkisstjórninni
um næstu áramót sem menntamálaráðherra þegarTómas Ingi
Olrich hættir í pólitík, en hann verður sendiherra í París.
Arnbjörg Sveinsdóttir tekur sæti Tómasar á Alþingi. Fróðlegt
verður að sjá hvort Sigríður Ingvarsdóttir, sem var í tjórða sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, íylgi henni
inn á þing haustið 2005 komi til þess að Halldór Blöndal hverfi
þá af þingi þegar hann hættir sem forseti Alþingis. Tvær nýjar
konur inn á þing með þessum hrókeringum Davíðs?
Þá verður Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra
haustið 2004 og tekur við af Siv Friðleifsdóttur. Sjálfstæðis-
flokkurinn verður með sjö ráðherra en Framsóknarflokkurinn
fimm í ríkisstjórn Halldórs Asgrímssonar.
Arni Magnússon, sem verið hefur framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins og oddviti flokksins í Hveragerði, tók við
félagsmálaráðuneytinu af Páli Péturssyni. Þessi tillaga Halldórs
Asgrímssonar kom þingflokknum verulega á óvart. Flestir
höfðu reiknað með að Jónína Bjartmarz yrði félagsmálaráð-
herra. Arni er fulltrúi ungu kynslóðarinnar og er seta hans í
ríkisstjórninni túlkuð þannig að hann sé upprennandi formaður
flokksins. Athyglisvert verður að lýlgjast með þvi hvort Siv
Friðleifsdóttir hverfi úr ríkisstjórninni þegar Halldór verður
forsætisráðherra. Vangaveltur eru um að hún taki við af Jóni
Kristjánssyni, heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Þetta var dagur þeirra Davíðs og Halldórs. Bessastaðir
skörtuðu sínu fínasta og miklar hrókeringar að baki. BD
30