Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 33

Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 33
LENGSTfl SJONVflRPSflUGLYSINGIN sannfærður um að fyrirtækið Brimborg og öll urngjörð þess væri orðin þess eðlis að rétti tíminn væri kominn. Við höfum unnið að því lengi að bæta þjónustu og innri ferli Brimborgar samkvæmt ákveðinni 10 ára áætlun og erum á sjötta árinu núna. Síðan gerist það að Birgitta vinnur undankeppni Evró- vision hérna heima og ljóst er að Islendingar munu fara fyrstir á svið. Staðan var því sú að vinsælasta söngkona landsins mundi stíga fyrst á svið með gott lag í Evróvision sem er sjón- varpsefni sem nánast öll þjóðin fylgist með. Áhorfið á keppn- ina var því tryggt og ætli megi ekki fullyrða að RÚV hafi sett heimsmet í áhorfi á einn einstakan dagskrárlið? Lokapunktur- inn í ákvörðuninni var síðan sá að kreppunni í bílgreininni virðist vera að ljúka og heldur bjartara framundan. Eg vil líka ítreka að lengdin sem slík var ekki keppikefli heldur var aðal- málið að vera eini auglýsandinn á undan vinsælasta dagskrár- lið Islandssögunnar. Það hvað myndin var löng skipti ekki máli. Við unnum einfaldlega út frá þeim forsendum sem við fengum, 6 mínútum. Hugmyndin um heimsmet kom síðar. Við sendum fyrirspurn á Guinness World Records og þegar svar barst frá þeim var niðurstaðan sú að ekki er um heims- met að ræða. Astæðan er sú að þeir segjast ekki geta undan- skilið svokallaða sjónvarpsmarkaði. En ef miðað er við hefð- bundna auglýsingatíma þá hefur enn enginn komið fram og sýnt fram á lengri auglýsingu, hvorki hérlendis né erlendis." Einstakur viðburður Þegar gífurlegu fé og miklum tíma hefur verið varið í að búa til sex mínútna kvikmynd, fer ekki hjá því að fólk spyrji hvort aðeins eigi að sýna hana einu sinni, hvort ekki sé rétt að nota peningana betur og sýna hana nokkrum sinnum, koma skilaboðunum vandlega á framfæri. „Gjörningurinn er liður í stærri og skýrri almannatengsla- og starfsmannastefnu Brimborgar og ljármununum hefúr nú þegar verið vel varið og nei, í þessari útfærslu og óstytt verður verkið væntanlega ekki sýnt aftur,“ segir Guðjón H. Pálsson, framkvæmdastjóri íslandsdeildar PR-fyrirtækisins, Grey Communications International - GCI og boðskiptaarkitekt Brimborgar, sem útbjó boðskiptastefnuna og hinn aðferða- fræðilega og sálræna þátt myndarinnar. GCI hafði yfirumsjón með verkefninu í samstarfi við BaseCamp og Glansmyndir en eftir frábært samstarf við gerð myndarinnar ákváðu þessi tvö ungu framleiðslufyrirtæki að sameinast undir nafni BaseCamp. „Þetta er einstakur viðburður og sem slíkur minnkar verð- mæti hans ef reynt er að endurtaka gjörninginn. Hins vegar er ljóst, og stefht var að því frá upphafi, að hluti verksins verður nýttur hér og þar eftir atvikum og myndin sem slík verður notuð innan fyrirtækisins og utan til kynningar. Verkið er liður í innri starfsemi fyrirtæksins, fyrir nýja starfsmenn Brimborgar sem dæmi og samstarfsaðila, erlenda sem innlenda. Hún gegnir einnig því hlutverki að vera heimild um ágæti Brimborgar auk þess sem hún endurspeglar anda fyrirtækisins. Ákveðnum hluta af ‘kaili Brimborgar’ hefur verið komið til skila á ákveðinn hátt og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins er nú einhverjum ljós.“ Margar týpur Egill segir mikla áherslu hafa verið lagða á að allir hóparnir, sem fyrirtækið þjóni, þekktu sínar vörur aftur í myndinni. „Bátavélaeigandinn, vinnuvélaeigandinn, jeppa- maðurinn, fólksbílaeigandinn og allir hinir, allir voru með sinn hlut í myndinni og gátu samsamað sig því sem þar var, enda markmiðið að sýna fólki að Brimborg er góður staður til að vera á. Reyndar má segja að þessi mynd sé hluti af því sem við höfum verið að gera sl. ár, þ.e. að nýta miðlana á nýjan máta. Við getum nefnt sem dæmi að í kreppunni drógu flestir úr auglýsingum en við jukum þær frekar en hitt og töldum rétt að halda kynningum á okkur í gangi. En þetta er einungis sviðsmynd auglýsingar- innar, meginmarkmiðið er að sögugera tvíþætt gildi Brim- borgar sem vinnustað og heiðarlegan kaupstað. Myndin er aðeins hluti af stærri heild.“ Virkar betta? Egill er tregur til að nefna upphæðir varðandi kostnað við gerð auglýsingarinnar en segir hana tvímælalaust borga sig enda sýnir könnun Gallups, sem Brimborg lét gera, svo ekki verður um villst, að áhorfið var gríðarlegt. Helmingur þjóðarinnar á aldrinum 16-75 ára horfði á auglýsinguna. Aðeins alvinsælustu þættir á RÚV hafa náð viðlíka áhorfi. Því er ljóst að auglýsingin hefur haft mikil áhrif, bæði skammtíma og langtíma. Könnunin staðfesti einnig að viðhorf fólks til Brimborgar er mjög jákvætt. „Þó svo þessi auglýsing eða mynd hafi kostað talsverða upphæð, en þó mjög líklega veru- lega lægri upphæð en menn álíta, er það að okkar mati pen- ingar sem vel er varið. Þetta er svipað og með húsið, sem hýsir höfuðstöðvar okkar sem við byggðum hér á sínum tíma. Mönnum þótti það algert rugl sumum hverjum að byggja stórt, nota vönduð efni og það í kreppunni miðri en nú, þegar þetta er allt að baki, stöndum við uppi með það að hafa gert hárrétt, gætum ekki verið með betri aðstöðu til að taka við auknum fjölda viðskiptavina. Með könnunina í huga og hið sálræna form myndarinnar ættu menn að fara varlega í gagn- rýnina. Það sem ég vil meina er að hinn raunverulega mikil- vægi hluti myndarinnar er sá hluti sem er sleppt, sá hluti sem ekki er sagður: Traust og trú. Þetta er í samræmi við skoðun fólks að enda þótt siðfræði, trú og traust hafi þýðingu í lífinu sé tungumálið ófullnægjandi til að segja hvað það er sem þær miðla. Orð fá merkingu sína frá samhenginu sem þau eru notuð í og það er svo aftur háð félagslegum venjum - og því endanlega lffsháttum eða lífsmáta. Ég vil meina það að okkur hafi tekist ætlunarverk okkar.“ Efasemdir hjá RÚV Ekki voru allir jafnsannfærðir og Egill um að þetta væri rétt skref og m.a. þurfti RÚV að hugsa sig lengi um. Þetta var ekki alveg hefbundið og vitað var að aðrir hugs- anlegir auglýsendur yrðu ekki sáttir við að komast ekki að. Á endanum var það svo samþykkt og Brimborg gat haldið vinn- unni áfram. Tæplega 30 manns koma ffam í myndinni og að gerð hennar og í henni var frumflutt nýtt lag, Öruggur staður til að vera á, eftir Ara Einarsson. Það verk, eins og allt annað, er samið út frá sömu boðskiptastefnu og myndin. Hvorki meira né minna en 16 flytjendur komu að flutningi lagsins. Gerð myndarinnar í heild tók um 2 mánuði og komu um 30 manns að gerð hennar. S3 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.