Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 41
NÆRMYNDINGIMAR JÓNSSON
en hann lék þá með hinni landsþekktu hljómsveit Upplyft-
ingu. Sú hljómsveit gaf út nokkrar plötur og var mjög
vinsæl. Ingimar hefur ekkert stundað hestamennskuna síð-
ustu árin og um skeið lá tónlistarástundun hans líka niðri en
í dag er hann með trommusett í bílskúrnum. Hann fékk
gítar í jólagjöf frá konu sinni fyrir þremur árum og spilar
gjarnan á hann á kvöldin. Jósafat segir að hann hafi tekið
upp tónlistarþráðinn eftir að hann eignaðist gítarinn og sé
orðinn „mjög frambærilegur gítarleikari" í dag. Hann á það
til að troða upp með Kaupásbandinu.
Labbaði á Staur Áhugi á viðskiptum kviknaði ekki hjá Ingi-
mar fyrr en nokkuð var liðið á nám hans við Háskóla Islands.
Árið 1987 mun honum hafa þótt nóg komið af trommuleik og
það sumar leysti hann af sem bókari í Verslunarbankanum og
vann þar undir stjórn Brynju Halldórsdóttur, sem nú er ijár-
málastjóri Bykó. Hann tók síðan til starfa sem bókari hjá
FISK og eftir það var brautin bein, hann vann sig upp hjá
FISK, gafst síðan kostur á starfi hjá Gunnari Dungal í
Pennanum, tók nokkrum árum síðar við sem framkvæmda-
stjóri og flutti sig svo yfir til Kaupáss þegar forstjórastarfið
bauðst haustið 2001. Hjá Kaupási hefúr hann þurft að taka á
erfiðum málum og þykir það hafa tekist vel. „Hann hefur
unnið mjög gott starf í sparnaði og aðhaldi í rekstri jafnframt
því sem hann hefur haft hugann við framtíðina. Hann hefur
unnið mjög gott starf í rekstri hér,“ segir Bjarki Júlíusson,
framkvæmdastjóri ijármálasviðs hjá Kaupási.
„Hann er traustur stjórnandi sem fer fram af mikilli stefnu-
festu. Hann hefur náð að byggja upp í kringum sig öflugan
stjórnendahóp sem er kannski það mikilvægasta hjá hverjum
stjórnanda, þ.e. að kunna að velja fólk í kringum sig. Ingimar
heldur mjög fast að samstarfsmönnum sínum að þeir standi
við það sem þeim er ætlað að gera og fylgir því fast eftir. Eg
Ingimar
Fæddur Á Sauðárkróki 5. febrúar 1961.
Foreldrar Jón Jósafatsson, fv. skipstjóri, starfsmaður hjá
Utgerðarfélagi Skagfirðinga og hafnarvörður á Sauðár-
króki. Hann er látinn. Sigríður Ingimarsdóttir, húsfreyja og
matráðskona í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Ingimar
á yngri bróður, Jósafat, sem starfar hjá Pennanum.
Fjölskylda Eiginkona: Ingibjörg Rósa Friðbjörnsdóttir,
hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum - háskólasjúkra-
húsi í Fossvogi. Þau eiga þrjá syni; Atla Björn, 15 ára, Jón
Rúnar, 10 ára, og Davíð, 9 ára.
met það svo að hann sé sanngjarn og yfirvegaður í sam-
skiptum við sitt fólk,“ segir Ásmundur Stefánsson, stjórnar-
formaður Kaupáss.
Ingimar er ákafamaður mikill sem sekkur sér ofan í við-
fangsefnin hveiju sinni og hugsar ekki um annað á meðan
svo að það getur reynst samstarfsmönnum erfitt að fylgja
honum eftir. I Skagafirði sökkti hann sér svo ofan í sjávarút-
vegsmálin að stundum var hlegið góðlátlega að því að hann
talaði ekki um annað. „Hann hefur alla tíð verið ákaflega
einbeittur í því sem hann tekur sér fyrir hendur," segir Lár-
entsínus Kristjánsson, lögmaður Kaupáss og félagi Ingimars
úr Upplyftingu. „Þegar hann var hjá FISK talaði hann ekki um
annað en fiskútflutning, gengið o.þ.h. Sama var hjá
Pennanum. Þar talaði hann ekki um annað en vinnuna. Við
fórum einu sinni saman í frí til Amsterdam og þar var honum
svo mikið niðri fyrir í umræðum um sjávarútvegsmál og
aðgerðir stjórnvalda að hann labbaði á staur. Eg sagði honum
þá að hvíla þessa umræðu," segir hann.
Vinnan er honum hjartfólyin Ingimar hefur í seinni tíð reynt
að hafa stjórn á ákafa sínum. Hann er skapmikill og sagt er að
hann geti verið stífur og frekur í samstarfi þegar honum er
svo mikið í mun að fá sínu framgengt að hann hlustar ekki á
annað. Hann segir skoðun sína umbúðalaust og getur því
„stuðað“ fólk, eins og sagt er. Hann þykir stundum keyra
fullhratt áfram á eigin forsendum og gleymir þá stundum að
taka tillit til annarra.
Ingimar hefur venjulega unnið mjög langan vinnudag en í
dag er hann venjulega kominn heim um kvöldmat. Þó að
vinnan sé honum hjartfólgin reynir hann að vera natinn við
ijölskylduna og sinna strákunum sínum þremur. Hann hefur
þó stundum sagt sjálfur að líklega mætti hann gefa bæði
sjálfum sér og ijölskyldunni meiri tíma. SS
Jónsson
Menntun Stúdentspróf frá Samvinnuskólanum á Bifröst
1984. Viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1988.
Ferlll Fjármálastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings, FISK,
1988-1996. Forstöðumaður smásölusviðs hjá Pennanum
frá september 1996, framkvæmdastjóri í Pennanum frá
júní 2000 til október 2001. Forstjóri Kaupáss frá nóvember
2001. Lék með hljómsveitum frá unglingsaldri, þar á meðal
hinni landsþekktu Upplyftingu.
Ahugamál Vinna og ijölskylda, íþróttir, tónlist og þá sér-
staklega trommu- og gítarleikur, hestamennska og golf.
Ingimar hefur stundað tijárækt við sumarbústað ijölskyld-
unnar á Flugumýri í Skagafirði.
41