Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 50
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR DAVÍÐSDÓTTUR
Ofurlaunaðir
forstjórar
kallast:
„FEITIR
KETTIR“
Jean-Pierre Garnier forstjóri GlaxoSmithKline. Hluthafar
felldu ofurlaunapakka hans. Þar með missti hann af 22
milljónum punda (2,4 milljörðum króna), sem hann annars
hefði fengið greiddar við starfslok, þ.e. hefði hann misst
vinnuna - verið rekinn. „Hva, datt einhverjum í hug að ég
væri móðir Teresa?" voru viðbrögð Garniers.
Hluthafar GlaxoSmithKline felldu ofurlaunapakka
Jean-Pierre Garnier forstjóra fyrirtækisins - og enn
á ný eru ofurlaun forstjóra helsta umræóuefnió í
bresku vióskiptalífi, eins og Sigrún Davíðsdóttir
rekur. Erþað nauðsyn eða græðgi að maður með
milljónir punda í árslaun fái líka ókeypis lœknis-
þjónustu fyrirsig og eiginkonuna til æviloka?
Eftír Sigrúnu Davíðsdóttur í London
Feitir kettir“ eru þeir kallaðir forstjórarnir, sem hreiðra um
sig á ofurlaunum eins og stríðaldir kettir með ijómaskál og
rækjur iyrir framan arineldinn.
Þegar gestir streymdu á aðalfund GlaxoSmithKline, stóð
náungi þar klæddur eins og feitur köttur með trýnið niðri í
ijómaskál með „þreföldum” ijóma - en þykkasti ijóminn á
markaðnum hér kallast „tvöfaldur" ijómi. Á mótmælaspjöldum
Amicus, verkalýðsfélags skrifstofufólks, voru myndir af feitum
köttum og áletrun um að feiti kötturinn Jean-Pierre Garnier,
forstjóri GSK, ætti engan íjóma skilið.
Málið hefur vakið ofurathygli hér og rétt eina ferðina enn
geisar nú ofurumræða um ofurlaun forstjóra. Hinn granni, grá-
og þunnhærði Garnier, 55 ára að aldri, er ekki sá eini, sem hefur
gengið fram af fólki. En hann er sá fyrsti sem fær á baukinn með
því að launasamningur hans var felldur á aðalfundinum nýlega.
Þar með missti hann af 22 milljónum punda (2,4 milljarðar
króna), sem hann fengi greiddar við starfslok, missti hann vinn-
una. Já, af hveiju að leggja sig fram um að standa sig vel, þegar
svona verðlaun fást iýrir að láta reka sig, spyrja ýmsir.
„Ég er engin móðir Teresa“ Frakkinn Garnier er lytjafræð-
ingur að mennt, hefur litlar mætur á Englandi en dýrkar allt
amrískt, líka amerísk forstjóralaun. Hann skynjar illa tilfinn-
ingar enskra hluthafa. í fýrra lét hann undan gagnrýni á ofur-
launahækkun, en árslaunin voru þó ekki slæm: 5 milljónir
punda (600 milljónir króna). í grunninn er GSK hið enska
Glaxo, sem hefur stækkað við samruna lytjafyrirtækja, en 54
prósent teknanna koma að vestan og þar búa líka og starfa
tveir þriðju yfirmannanna, þar á meðal títtnefndur Garnier.
Pensions Investment Research Consultants, Pirc, er ráðgjafa-
fyrirtæki lífeyrissjóða hér og hefur meðal annars augun á
launapökkunum. Pirc ráðlagði hluthöfum að fella pakkann.
„Hva, datt einhveijum í hug að ég væri móðir Teresa?" sagði
Garnier eftir atkvæðagreiðsluna.
Annað mál, einnig með tengsl vestur um haf, snerist um
met-launapakka William Aldinger III, sem nýlega tók sæti
sem einn af bankastjórum HSBC. Launapakki hans er metinn
á 37,5 milljóna punda (4,5 milljarða króna) og á eftir að fara
fyrir aðalfundinn. Aldinger, sem er Bandaríkjamaður, var for-
stjóri Household, bandarísks húsnæðislánafyrirtækis sem
HSBC keypti nýlega. Household þurfti nýlega að greiða
bandarískum yfirvöldum tæplega 500 þúsund dali í sekt fyrir
harðneskju í lánaviðskiptum. Aldinger fylgdi með í kaup-
50