Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 51
Samsetning launapakka:
Meðallaunakjör forstjóra í stórfyrirtækjum
í Bandaríkjunum og Bretlandi:
Meðal árstekjur $2,5 millj. - $1,6 millj.
Bandaríkin Bretland
49% grunnlaun
27% bónus
til lengri tíma
llong term incentives)
*[ fyrirtæki með um 1 milljarð punda í ársveltu (tölur úr Financial Times)
30% grunnlaun
12% bónus
58% huatagreiðslur
til lengri tíma
tlong term incentives)
Þegar gestir streymdu á aðalfund GlaxoSmithKline, stóð
náungi þar klæddur eins og feitur köttur með trýnið niðri í
rjómaskál með „þreföldum" rjóma - en þykkasti rjóminn á
markaðnum hér kallast „tvöfaldur" rjómi.
unum, með rúmlega 10 milljón punda uppbót fyrir samnings-
lokin þar (1,2 milljarða króna).
Aldinger er ekki aðalbankastjóri HSBC, bara einn nokkurra
bankasljóra, en gæti hæglega haft aðalbankastjórann Keith
Whitson í vinnu, því sá fékk „aðeins" 2,27 milljónir punda í laun
árið 2001. (272 milljónir króna). Pirc kallar launapakka Aldin-
gers „svívirðilegan". Eftír að breska alþýðusambandið hvattí um
1.000 lífeyrissjóði, tengda sambandinu, tíl að fella Aldinger-
pakkann er hætta á að HSBC fái sömu útreið og GSK Það sem
einkum truflar verkalýðsforkólfana er „gullna regnhlíf1 Aldin-
gers, um 20 milljónir punda (2,4 milljarðar kr.) ef hann verður
rekinn, því það sé fáránlegt að verðlauna forstjóra sem missi
vinnuna.
„Ef ...færðu bara apa til að vinna fyrir þig“ „Ef þú borgar í jarð-
hnetum færðu bara apa til að vinna íýrir þig,“ kvað Jean-Pierre
Garnier gjarnan hafa á orði, þegar launamál ber á góma og þá
leikið á enskuna þar sem „peanuts", jarðhnetur, þýðir líka „smá-
ræði“. Sjálfúr ætlaði hann sannarlega ekki að vera neinn api.
Hluthafar eru almennt seinir að reiðast eða láta ofbjóðast, en
Garnier tókst að fara yfir strikið. Atkvæðagreiðslan er reyndar
ekki bindandi fyrir stjórnina. Fæstír ímynda sér þó að hún sýni
þann hroka að láta gagnrýnina sem vind um eyru þjóta þó
stjórnin hafi reyndar gert það í vetur þegar innihald launapakk-
ans var upplýst. Eftír stjórnarfundinn er það þó erfiðara og nú
þarf stjórnarformaðurinn, Sir Christopher Hogg, að glíma við
að finna hófstillta málamiðlun, sem hluthafar og Garnier sætta
sig við, svo hann fari ekki í mál tíl að klóra eitthvað af milljón-
unum tíl sín.
Ókeypis tannlæknapjónusla Fyrir utan stjarnfræðilegar upp-
hæðir í áðurnefndum pökkum sýna þeir báðir einstakt hug-
myndaflug í kröfugerð. Ófróður gæti haldið að sá sem semur
upp á slíkar upphæðir sé ekki að hafa áhyggjur af smáræði eins
og læknis- og tannlæknakostnaði. Nei, öðru nær, hér er engu
gleymt, heldur ekki eiginkonunum. Hvort það er smátt letur
um hvað gerist ef konunni er skipt út, iylgir ekki sögunni. Ald-
inger hefur samið upp á ókeypis heilbrigðisþjónustu, líka tann-
læknisþjónustu íyrir sig og konu sína, hvorki meira né minna en
til æviloka - ef hann verður rekinn. Hann fer þó ekki illa út úr þvi
ef hann heldur vinnunni. Einn af kostunum er ótakmörkuð
notkun einkaþotu iyrirtækisins, líka tíl persónulegra nota. Ald-
inger og frú þurfa ekki að flytja. Samkvæmt samningum fær
Aldinger að vinna sem mest á gamla staðnum. Garnier hafði
lika konu sína í huga. Þau hjónin fá lífeyrissjóðsgreiðslur, þar
sem aldur þeirra er reiknaður eins og þau séu þremur árum
eldri en þau eru til að greiðslan sé hærri. Garnier fær líka 40
þúsund pund í ráðgjöf ef hann vildi skipta um starf, en sú upp-
hæð er annars þokkaleg árslaun utan ofurlaunageirans.
Hugmyndaflug Garniers í fyrirtækjarekstri hefur annars
mest sýnt sig í hefðbundnum tilþrifum eins og uppsögnum.
Matíð á gildi svona launapakka er auðvitað ákaft rætt. Spurn-
ingin, sem hluthafar þurfa að spyija sig, er hvort þessir launa-
pakkar tryggi bestu stjórnun og laði að bestu mennina, en líka
hvort þetta sé í samræmi við launapakka, sem öflugir aðilar eins
og National Association of Pensions Funds, Napf, mæla með í
þágu góðrar stjórnunar (good corporate governance). Napf eru
einkar öflug samtök lífeyrissjóða stéttarfélaga hér. Andstaða
Napf gegn Garnier hafði örugglega sitt að segja í að hann var
felldur, því auk lifeyrissjóða fylgjast margir aðrir stofnanafjár-
festar með ábendingum Napf. Samtökin tóku ekki afstöðu til
sjálfra talnanna, mæltu gegn samningi Garnier, en hvöttu með-
limi sína tíl að hugleiða samning Aldingers, án þess að mæla
gegn honum.
.Feitir kettir" eru þeir kallaðir forstjórarnir,
sem hreiðra um sig á ofurlaunum eins og
stríðaldir kettir með rjómaskál og rækjur
fyrir framan arineldinn.
Það sem vekur þó athygli við nýjustu ofur-
launapakkana er hvað forstjórum er ríku-
lega iaunað fyrir að vera reknir. Er það mikil
hvatning fyrir þá að standa sig í starfi?
Aldinger hefur samið upp á ókeypis heil-
brigðisþjónustu, líka tannlæknisþjónustu fyrir
sig og konu sína, hvorki meira né minna en til
æviloka - ef hann verður rekinn.
51