Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 60
\ m iii f i í i. .j.i f
i 1 I iijfö W B-j & jrol w*tqr~~jj / / // J / // | É / // £ j íj m
Bill Emmott, ritstjóri hins virta viðskiptatímarits The Economist. Hann er hér í einkaviðtali við Frjálsa verslun.
Bill Emmott, ritstjóri
að vantar ekki að aðkoman er
glæsileg: bara nafnið, The
Economist Plaza, segir sitt og
húsakynnin eru í stíl við það - ósvikið
háhýsi, gler og stál. Skrifstofa Bill
Emmotts, ritstjóra hins virta viðskipta-
tímarits The Economist, trónir efst uppi
eins og vera ber, með ævintýralegu út-
sýni yfir borgina því það eru ekki mörg
háhýsi sem keppa við The Economist
bygginguna þarna í St. James’ hverfinu
við Piccadilly í miðborg Lundúna.
Einmitt, viðskiptatímaritið er ekki til húsa í fjármálahverfinu
City og heldur ekki í tjölmiðlahverfinu í kringum Fleet Street.
Skrifstofa ritstjórans líkist meira skrifstofu háskólamanns en
manns sem stundar Ijármálaumsvif og stjórnun, nema hvað
hún er stærri.
Allt er fullt af bókum í kringum hann í horninu þar sem
hann situr við skrifborðið með útsýni út
í himininn yfir borginni, þó hinn helm-
ingur herbergisins sé lagður undir
fundarborð. Ritarinn er búttuð og elsku-
leg ung kona, öldungis yfirlætislaus í
gallabuxum og bómullarbol, engir
skvísustælar á þeim bæ. Sami látleysis-
bragurinn á Emmott, sem er skeggj-
aður, í kakíbuxum og á skyrtunni með
uppbrettar ermar. Efalaust á hann jakka-
föt og allt sem þeim tilheyrir, en látlausi
stíllinn virðist honum í blóð borinn.
Kannski helgast bókabéusabragurinn á honum af því að hann
hefur þegar látið til sín taka við bókaskrif. Fyrir nokkrum
árum skrifaði hann bók um Japan, sem vakti mikla athygli,
The Sun also Sets. í vetur kom út úttekt hans á lærdómi
síðustu aldar og horfunum á þessari, 20:21 Vision; the
Lessons of the 20th Century for the 21st.
Hér kemur einkaviðtal Frjálsrar
verslunar vib Bill Emmott,
ritstjóra The Economist.
Þab var Sigrún Davíbsdóttir
sem ræddi vib hann
í heimsborginni London.
Texti og myndir eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
60