Frjáls verslun - 01.05.2003, Síða 71
Finnur Árnason er ekki í vafa um hvar best er að búa
Hafnarfjörður bestur
Ef ég á að nefna stað erlendis, þá hugsa ég að París sé
fyrst í röðinni," segir Finnur Árnason, framkvæmda-
stjóri Hagkaupa. „Þar hef ég komið með konunni og
okkur leið vel þar og þótti gaman. Eg á einnig skólasystkin
þar og það er ekki verra. Hér heima kemur Vopnaijörður upp
í hugann sem frábær veiðistaður, Akranes þar sem ég var
mikið sem polli og Snæfellsnesið, en ég á ættir að rekja
þangað og þykir alltaf gott að koma þar. Langisandur er frá-
bær og reyndar má segja að landið allt sé það. En allra besti
staðurinn er auðvitað heimabyggðin, Hafnarijörður. Það er
alltaf gott að vera þar og eiginlega allt fallegt." S9
Það er fallegt að horfa yfir rennisléttan Pollinn á fallegum degi.
Góða ueðrið á Akureyri
r
Eg hef afskaplega gaman af því að ferðast um Suður-
landið,“ segir Guðný Sævinsdóttir, ráðgjafi hjá Hag-
vangi. „Ég á kæra ættingja á Hornafirði og hef ósjaldan
keyrt um þennan landshluta á leiðinni þangað, nú síðast um
helgina. Vík í Mýrdal finnst mér einn fallegasti staðurinn á
þeirri leið. Þegar lengra dregur verð ég að nefna Hallorms-
stað, þar er ákaflega fallegt alltaf og á Akureyri hef ég aldrei
komið án þess að þar sé gott veður þannig að í mínum augum
er Akureyri ekki bara sérstaklega fallegur bær, heldur einnig
óijúfanlega tengdur góðu veðri.
Mér finnst ísafjörður og raunar Vestfirðirnir allir skemmti-
legir til að ferðast um en það er á döfinni að kanna þá betur
og mest langar mig að ganga Hornstrandir. Ef ég á að fara út
fýrir landsteinana þá er það Marokkó. Þar er yndislegt og
fallegt fólk og mjög gestrisið, margir áhugaverðir staðir að
heimsækja og maturinn algjört lostæti."®]
Áhugamenn um golf fara víða um heim til að leika. Óttar
Yngvason, framkvæmdastjóri íslensku útflutningsmiðstöðv-
arinnar.
Golf alla æui
Helsti kostur golfsins er sá, að hægt er að stunda það alla
ævi sér til ánægju, þ. e. á meðan maður er uppistandandi
og getur hreyft sig,“ segir Óttar Yngvason, fram-
kvæmdastjóri Islensku útflutningsmiðstöðvarinnar og
kylfingur. Þegar hann byijaði í golfi íýrir um 50 árum var leikið
á gamla 9 holu Öskjuhlíðarvellinum sem var í notkun fram yfir
1960. Þá voru 4 vellir á landinu, allir með 9 holum, í Vest-
mannaeyjum, Hveragerði, Reykjavík og á Akureyri. Nú eru
meira en 55 vellir opnir víðs vegar um landið.
„Ég hef iýrst og fremst litið á golfið sem heilsurækt með
útivist og hreyfingu, en einnig sem skemmtun, sérstaklega
keppnisgolfið. Og það vita flestir sem stunda heilsurækt að
miklu skiptir að hún sé til ánægju og helst skemmtunar."
Kylfingar láta sér ekki duga að leika golf hér heima, heldur
leika þeir víða erlendis. Þá ræður mestu árstími og veðurfar,
enda er leiktímabilið hér á landi venjulega aðeins 5 mánuðir,
maí - september. „Ég fór iýrst til Skotlands og hef mest spilað
þar í landi í gegnum tíðina,“ segir Óttar. „Þar eru ijölmargir
toppvellir og nokkrir elstu vellir heims. Víða byggja klúbb-
arnir á gömlum og sérkennilegum venjum. Fyrstu árin sem
við komum til Skotlands var ekki eins mikil ásókn á vellina og
síðar varð. Samt hefur golfið lengi verið almenningsíþrótt í
Skotlandi og reyndar einnig í Englandi og Bandaríkjunum.
Atvinnumennska hefur alls staðar vaxið og ijöldi manns
stundar golf sem atvinnu, bæði við kennslu og í keppni. Þó að
oft sé gaman að horfa á góða atvinnumenn leika listir sínar, þá
held ég að ekki eigi almennt að hvetja unga fólkið til að leggja
á þá braut. Atvinnumennska í íþróttakeppni er meira í ætt við
sirkussýningu en heilbrigða keppni og heilsurækt.“
Óttar kom nýlega á Hanbury Manor völlinn, sem er
skammt iýrir norðan London. „Þetta er iýrsta flokks golfvöllur,
Jjölbreyttur og nokkuð langur. Það er einkum iýrri helmingur-
inn sem er glæsilegur. Síðari 9 holurnar eru reyndar ágætar
líka, en ekki í eins friðsælu og ósnortnu umhverfi. Hótelið
sjálft er í besta flokki og sama má segja um matargerðina." 33
71