Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 77
Sumarið er tíminn
Frítími
stjórnenda
Könnun KPMG á lífsstíl og viðhorfum stjórnenda, sem gerð
var í ársbyijun, vakti talsverða athygli. Þar kom m.a. fram
að annar hver stjórnandi vinnur stundum um helgar,
vinnuvikan er um og yfir 60 stundir hjá nær öllum og því lítill fd-
tími aflögu. Þó er munur milli kynja þar sem karlar vinna bæði
lengri vinnudag og gera
Frítímínn
Með fjölskyldu og vinum 32,0%
Golf 11,0%
Veiðar 9,0%
ILestur 8,0%
Hreyfing 17% Ferðalög 18%
Annað 5,0%
Stjórnandinn eyðir frítíma sínum helst með
fólkinu sínu en leggst þar á eftir í ferðalög
eða stundar hreyfingu. Forstjórinn er
áhugamaður um golf og ueiðar.
síður greinarmun á helgum
dögum og virkum. Þegar
skoðað er hvernig stjórn-
andinn eyðir helst fdtíma
sínum, kemur í ljós að
stærsti hluti tímans fer í fjöl-
skyldu en ferðalög eru næst
á eftir. Þó fer um það bil
helmingi minni tími í ferða-
lög en tjölskyldu en hluti
ferðalagatímans hlýtur að
vera með fjölskyldunni.
Tómstundastörf eins og
golf, veiðar og lestur eru
hvert um sig um 10% af kök-
unni en hreyfing almennt er
um 17%. H3
Gönguferðir um
óbyggðir
Eg á sumarbústað í Lóni þar sem eitt fallegasta svæði
landsins er,“ segir Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor
Tækniháskóla íslands. „Þar er frábært að vera í slökun
og ganga um svæðið, endalausir möguleikar í landslaginu. Þar
sem ég er ættuð austan af Jökuldal þá þykir mér gott að koma
þangað reglulega og sérstaklega til að veiða og líka slappa af.
Töluverð veiði er í landi okkar á Jökuldal. Síðast en ekki síst
eru gönguferðir um óbyggðir Islands hluti af ferðalögum
mínum um landið og þau svæði sem heilla mig mest eru eyði-
firðir fyrir vestan eins og Hornstrandir og Jökulfirðir." HH
Frábærir og frægir veiðistaðir
Góð veiði í Iðunni. Pétur Alan Guðmundsson og
vinur hans, Adolf Ólason.
Það eru margir frægir veiðistaðir í ám á íslandi en af þeim sem ég helst
veiði í má nefna Laxfoss-svæðið í Norðurá í Borgarfirði, þar sem eru
Eyrin, Brotið og Krossholan, allt frábærir veiðistaðir í góðu vatni fyrri
part sumars," segir Pétur Alan Guðmundsson, kaupmaður í Melabúðinni.
„Annað veiðisvæði eru Rangárflúðirnar í Ytri-Rangá, rétt fyrir neðan
þjóðveginn við Hellu. Þar liggur laxinn út um allt fyrir ofan og neðan flúð-
irnar. Þær hafa þó örlítið dalað að mér finnst vegna sandburðar.
Þriðja veiðisvæðið er Breiðan í Langá á Mýrum. Skemmtilegur veiði-
staður þar sem laxinn getur legið allt í kringum steininn og niður á brot.“
I uppáhaldi ,Af mínum uppáhaldsveiðistöðum má nefna m.a. Hræsvelg
í Norðurá. Þangað fer maður niður frá bílastæði stuttu áður en maður
kemur í veiðihúsið á Rjúpnaási. Annaðhvort er vaðið yfir ána eða farið yfir
á kláf og labbað niður með ánni að sunnanverðu. Gullfallegur staður fyrir
gárutúpur þegar vatnsmagnið fer að minnka.
Annar uppáhaldsveiðistaðurinn er Bragð í efri hluta Selár í Vopnafirði.
Þangað er keyrt frá Leifsstöðum upp með ánni og gengið síðan uppfyrir
Krók. Staður sem leynir á sér.
Síðast en ekki síst er Iðan, ármót Hvttár og Stóru-Laxár. Frábær staður
sem getur gefið mikla veiði og stórlaxa." 33
77