Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 87
Vinningsliðið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fékk verðlaun fyrir frumlegustu
viðskiptahugmyndina og besta fyrirtækið. Þetta lið var með afsláttarkortið
Local.
hefur verið staðið fyrir áðurnefiidu nám-
skeiði fyrir framhaldsskólanema hér á
Islandi.
„Við höfum skilning skattayfirvalda á
því að þarna er um námsefni að ræða. Fyrir-
tækjasmiðjan var bara ólík öðru námsefni
að því leytinu til að þetta var gert af fullri
alvöru, krakkarnir gerðu viðskiptaáætiun,
ráku fyrirtækin með alvörupeningum,
veittu alvöruþjónustu og framleiddu alvöru-
söluvöru. Lykillinn að árangri, og það sem
vakti áhuga hjá krökkunum, var að þeir
fóru að reka sig á og læra af reynslunni, td.
ef birgjarnir stóðu sig ekki. Þetta hafði aldrei klikkað í skólabók-
unum þvi að þar gengur alltaf allt upp,“ segir Gunnar.
Afsláltarkort og útskriftarbolir Ýmis áhugaverð fyrirtæki voru
stofnuð. A Suðurnesjum settu nemendurnir td. á fót markaðs-
fyrirtæki sem gaf út afsláttarkortið Local til allra þeirra 700
nemenda sem voru í framhaldsskólanum. Þeir fengu tekjur í
kassann með því að selja auglýsingar á kortið frá þeim fyrir-
tækjum sem veittu afslátt, og bjuggu til og dreifðu bæklingi
með öflum upplýsingum. Með þessum hætti tókst þeim að örva
verslun í Reykjanesbæ. Gunnar segir að kortið hafi haft mjög
góð áhrif og m.a. orðið til þess að Pizza Hut hafi lengt opnunar-
tíma sinn. I Verzlunarskólanum kom upp sú hugmynd að kanna
hvort grundvöllur væri fyrir framleiðslu og sölu á sérstökum
útskriftarbolum. Svo reyndist vera og því létu nemendurnir slag
standa. Þá hafði afi eins nemandans búið til skóhorn og því
kviknaði sú hugmynd að kaupa þessi skóhorn í heildsölu og
selja í smásölu. Sú hugmynd gekk líka ágætlega upp.
„Hagnaður var mismikill í öflum tilvikum en hluthafar fengu
sinn arð greiddan út. Hvert hlutabréf kostaði 500 krónur og
enginn mátti kaupa fleiri en tvö hlutabréf. í sumum tilvikum fór
gengi hlutabréfanna úr 1 í 15,3 og 500 kafl breyttist þá í rúmar
7.000 krónur. Þetta eru litlar upphæðir en lærdómurinn er
samur. Svona tenging mifli atvinnulifs og skóla er af hinu góða
fyrir alla og fyrirtækin eru mjög ánægð með að fá tækifæri til
að hafa áhrif á menntun unga fólksins, fá nokkurs konar
aðgang að skólunum. Ráðgjafarnir koma á þeirra vegum og
miðla af reynslu sinni úr viðkomandi fyrirtækjum. Kennararnir
eru ánægðir með að fá nýjan flöt í kennslunni og nemendurnir
eru ánægðir með tilbreytinguna. Kennararnir byggja upp góða
grunnþekkingu en ráðgjafar frá fyrirtækjum koma síðan inn
með praktíska reynslu og nýja sýn á efnið,“ segir Gunnar.
Fyrir sex ára í haust? En víkjum aðeins að því hvernig
Islandsdeild Junior Achievement kom tfl. Gunnar kynntist
þessari hugmyndafræði erlendis fyrir þremur árum og taldi
hana eiga erindi til Islendinga. Hann hefur unnið að því síðan
að koma samtökum á fót og stóra skrefið var stigið í lok októ-
ber á síðasta ári þegar þijú fyrirtæki tóku þátt í að stofna þau.
Þetta eru fyrirtækin Sjóvá-Almennar, Iðntæknistofnun og
Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Skömmu síðar bættist R
Samúelsson, Toyota, í hóp stofnaðila og nú hefur enn fiölgað
með Hafnarijarðarbæ og VÍS. Verið er að kynna þetta starf fyrir
öðrum fyrirtækjum og stofnunum og er markmiðið að fjölga
þátttakendum um átta á þessu ári. I haust er fyrirhugað að
halda námskeið fyrir 6 ára börn þar sem Jjallað verður um pen-
inga, störf foreldra, verðmætasköpun, virðingu fyrir eignum og
verðmætum og tengja þetta allt við blákaldan veruleikann.SH
Lára Jóhannsdóttir, gæðastjóri hjá Sjóvá-Almennum, veitir
B'or'go-liðinu verðlaun fyrir markvissustu viðskiptaáætlun-
ina.
Liðið Viðarás frá Verzlunarskóla íslands fékk verðlaun fyrir
bestu viðskiptaáætlunina, en það fyrirtæki markaðssetti og
seldi skóhorn.
87