Frjáls verslun - 01.05.2003, Síða 98
Þóranna Jónsdóttir, forstöðumaður BS-náms í viðskipta-
fræði við Háskólann í Reykjavík.
Pharma og í því starfi fór ég að
færast meira yfir í viðskipta-
fræðina því stór hluti af starfi
mínu var tengdur markaðs-
fræði fremur en lyfjafræði.
Mig langaði í frekara nám og
ákvað að fara til Spánar með
alla fjölskylduna og fara þar í
mastersnám í viðskiptafræði
við IESE í Barcelona sem er
virtur á þessu sviði. Þegar aug-
lýst var eftir kennurum við
Háskólann í Reykjavik (sem
þá hét Viðskiptaháskólinn)
vorið 1998 var ég enn á Spáni,
en sá auglýsinguna af tilviljun
og hugsaði sem svo að þarna
væri draumastarfið. Mér datt
þó ekki í hug að sækja um því
ég taldi mig ekki búa yfir
nægilegri starfsreynslu. Eftir
að ég kom heim frá Spáni
starfaði ég fyrst sem markaðs-
FÓLK
verð áhersla er lögð á við IESE
og ég tel að eigi að nota mun
meira en gert er nú. Það er
nefnilega allt annað að þurfa
að horfast í augu við raunveru-
legar aðstæður en að lesa um
þær.“ Eg hef líka átt þess kost
að kenna á námskeiðum
Stjórnendaskóla HR sem
hefur um nokkurt skeið sér-
sniðið nám iyrir stjórnendur
og starfsfólk í íslenskum fyrir-
tækjum, það starf hefur verið
einstaklega gefandi þar sem
kennsluaðferðirnar, sem ég
lærði í IESE, hafa lagst vel í
íslenska stjórnendur, og starf
með fyrirtækjunum hefur veitt
mér mikla innsýn í íslenskt
atvinnulíf sem aftur nýtist í
allri kennslunni.
I kreijandi starfi og með
þrjú ung börn, gefst ekki
Þóranna Jónsdóttir,
Háskólanum í Reykjavík
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
óranna Jónsdóttir, for-
stöðumaður BS-náms í
viðskiptafræði hefur í
ýmis horn að líta. Hún er í tví-
skiptu starfi, sinnir forstöðu-
mannsstarfinu en er um leið
kennari í markaðsfræði og
fleiri greinum. „Starf mitt er
fólgið í þvi að gæta þess að
réttir kennarar fáist fyrir hvert
námskeið, að þróa námið, sjá
um gæðaeftirlit með því og
umsjón með innritun ný-
nema,“ segir Þóranna. „Hinn
hlutinn, kennarastaðan, er
kennsla í markaðsfræði, fagi
sem heitir International
Business Policy, heiti sem við
höfum ekki getað fundið
íslenska þýðingu á ennþá og
svo stofnun og rekstur fyrir-
tækja. Eg hef afskaplega
gaman af þessari kennslu og
finnst hún skemmtilegasti
hluti starfsins."
Þóranna hefur starfað við
Háskólann í Reykjavík frá
haustinu 1999 og hefur gegnt
mörgum störfum innan hans.
Hún hefur óvenjulegan bak-
grunn en að mörgu leyti
sterkan.
„Eg fór í lyfjafræði í
Háskóla Islands eftir stúdents-
próf frá MH og lauk þaðan
prófi 1994 og eignaðist börnin
mín þijú á námstímanum.
Aður en ég fór í Háskólann
vann ég m.a. við sjálfboðaliða-
störf í Afríku en eftir útskrift-
ina þar fór ég að starfa fyrir
lyfjaumboðsfyrirtækið NM
stjóri Ibúðalánasjóðs, var þar á
krítísku tímabili, og svo var ég
um tíma framkvæmdastjóri
hjá Lytjum og heilsu. Þessi tvö
stuttu tímabil hafa reynst mér
vel síðan því að reynslan
þaðan er griðarleg þar sem
tekist var á um mikið hjá þeim
báðum og mikið um að vera.
Þegar hringt var í mig frá
háskólanum haustið 1999 og
ég beðin að taka að mér
kennslu þurfti ég því ekki að
hugsa mig tvisvar um!
Hjá Háskólanum í Reykja-
vík hefur mér gefist færi á að
þróa ýmislegt í kennslu, m.a.
hef ég lagt mikla áherslu á
verkefnavinnu sem felst í því
að hópur þarf að vinna saman,
líkt og gerist á vinnumarkaði,
en þetta er nokkuð sem tals-
mikill tími til að sinna áhuga-
málum. Raunar segist Þór-
anna eiga fá áhugamál og vísar
þá í tómstundastörf eins og
golf o.þ.h. Ég held að aðal-
áhugamál mitt sé að læra og
e.t.v. er kennsla besta leiðin til
þess.
„Ég prófaði reyndar að fara
á skiði fyrir nokkru og hafði
gaman af,“ segir hún. „Ég er
revndar alveg afburða lélegur
skíðamaður en markmiðið er
að vera með, njóta þess að
vera úti með fjölskyldunni og
því læt ég gott heita að vera
léleg. Ég les lika mikið og
reyni að halda mér í formi en
fjölskyldan hlýtur að teljast
stærsta áhugamálið og það
sem tekur mestan tímann utan
vinnunnar.“S!l
98