Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 8
m/, m&rn
VIÐSKIPTAFERÐ
VIÐSKIPTAFERÐIR ICELANDAIR bjóða aukinn sveigjanleika
Fargjaldakostnaður er aðeins hluti af heildarkostnaði uiðskipta-
ferða. Dýrmætur tími starfsmanna og uppihald erlendis uegur
sífellt þyngra og þuí er ódýrasta fargjaldið ekki endilega hið hag-
stæðasta þegar upp er staðið.
„Vi3 höfum komiS upp reiknivél á heimasíðu okkar þar sem hægt er að
reikna út kostnaðinn við ferðalagið og taka inn í það fórnarkostnað, svo
sem launakostnað starfsmanns, en það setur í samhengi lengd ferða-
lags, flugkostnað, dagpeninga og annað sem ferðalögum erlendis til-
heyrir," segir Hans Indriðason, deildarstjóri fyrirtækjasölu lcelandair.
„Það sýnir raunverulegan kostnað við ferðalögin. Viðskiptakort kredit-
kortafyrirtækjanna verða sífellt vinsælli, en með þeim er hægt að
greiða fyrir viðskiptaferðir og fá með því beinan bókhaldsaðgang með
ítarupplýsingum um allar ferðir starfsmanna auk þess sem kortunum
fylgja ákveðnar tryggingar."
Hans Indriðason, deildarstjóri fyrirtækjasölu lcelandair, fyrir framan nýja
söluskrifstofu lcelandair í aðalskrifstofu félagsins.
Viðskiptaþjónusta lcelandair
Hvert fyrirtæki er einstakt og fær sérstaka afgreiðslu
hjá Viðskiptaþjónustu lcelandair þar sem afar reynt
starfsfólk er að störfum. Fyrirtæki eru ( auknum mæli
að átta sig á gildi þess að hafa sérstaka þjónustufull-
trúa í viðskiptaþjónustunni, fulltrúa sem sinna sérstak-
lega viðkomandi fyrirtæki.
„Þjónustufulltrúarnir eru vel vakandi fyrir hönd sinna
fyrirtækja og gæta þess vel að verð og ferðir séu
nákvæmlega það sem viðkomandi þarfnast. Þeir leitast
við að þekkja þarfir þeirra og séróskir," segir Hans.
„Nú getur t.d. viðskiptavinur sem áður þurfti að
greiða t.d. hæsta verð fyrir ferð fram og til baka, farið
út á lægsta verði. Það verð býðst ef til vill ekki heim og
þá getur hann fengið næsta verð fyrir ofan. Hann þarf
því ekki að nota dýrari kostinn báðar leiðir og ferða-
kostnaður lækkar sem því nemur.
„Viðskiptavinir sem hafa gert við okkur samninga
8
n