Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 120
Gullsmiðja Óla:
Glitrandi gull með silkiáferð
Óli Jóhann Daníelsson gullsmiður í nýrri verslun sinni í Hamraborg.
egar Smáralind var opnuð fyrir þremur árum, flutti Gull-
smiðja Ola þangað og lokaði um leið versluninni sem
var í Hamraborg. Bæjarbúar söknuðu verslunarinnar
og úr varð að eigendurnir, þau Oli Jóhann Daníelsson og
Eygló Sif Steindórsdóttir, ákváðu að opna aftur verslunina í
Hamraborg.
„Kosturinn við að vera með verslunina hér er sá að við
getum verið með búðina nær verkstæðinu og viðskiptavinir
geta þannig verið í meira návígi við okkur, en við hjónin
vinnum bæði á verkstæðinu,“ segir Oli Jóhann gullsmiður.
„Við erum með okkar eigin framleiðslulínu sem við köllum
silkilínu en það eru skartgripir sem við höfum hannað og eru
bæði fyrir dömur og herra. Nafnið kemur til af því að áferðin er
mött, likt og silki, nema í köntunum sem eru póleraðir og
mynda þannig skemmtilega andstæðu við miðjuna. Þessir
gripir eru til bæði í gulli og silfri og eru allt frá því að vera
táhringir og upp í eyrnalokka og allt þar á milli.“
Lært í Danmörku Oli Jóhann segist hafa gengið lengi með
það í maganum að læra eitthvert handverk en hins vegar hafi
ekki gengið eins vel að finna nám sem hentaði. „Eg reyndi að
leita uppi gullsmiði sem vildu taka mig í nám og eins letur-
grafara, en fann engan og fór til Danmerkur þar sem ég hitti
af tilviljun frábæran gullsmið sem var tilbúinn til að leyfa mér
að vera hjá sér til að prófa. Mér féll þetta vel og eftir um það
bil mánuð spurði hann mig hvort ég vildi ekki koma í alvöru-
nám hjá honum og ég sló til. Eg sé svo sannarlega ekki eftir
því þar sem þessi gullsmiður kenndi mér bókstaflega allt sem
hægt er að læra um gullsmíði og reyndist mér frábærlega vel.
Eg frétti svo seinna að þetta hefði verið eins og hver annar
happdrættisvinningur því aðeins 15 nemar komust að þetta
árið í gullsmíði í Danmörku.“
Draumurinn I verslununum báðum er gott úrval af alls konar
skartgripum, bæði innfluttum og heimasmíðuðum, en Oli
Jóhann segist hafa mest gaman af sérsmíðinni. „Eg á mér þann
draum, eins og sjálfsagt flestir gullsmiðir, að geta setið í róleg-
heitum langan dag og prófað og smíðað allt sem mér dettur í
hug,“ segir hann. „íslensk náttúra er mér hugstæð og ég get
vel hugsað mér að nota hugmyndir úr náttúrunni meira, en það
sést betur þegar ég hef tíma til að sinna þessu eins og mig
langar. Fram að því læt ég mig dreyma og reyni að sinna vel
viðskiptavinum okkar og mynda við þá persónuleg tengsl sem
ég tel vera mjög mikilvægt atriði í verslunarrekstri."
TÍSkan Þegar Oli er spurður um tískuna hugsar hann sig
góða stund um. „Tískan er margbreytileg og á sífelldri ferð.
Það er talsvert mikið um stóra silfurhringi og breið armbönd
sem koma mjög skemmtilega út en þess þarf þó að gæta, þegar
fólk er farið að vera með mjög áberandi skartgripi, að vera bara
með einn eða tvo því aðrir vilja týnast innan um þá. Það er hins
vegar erfiðara að eiga við að smíða og selja stóra og mikla gull-
skartgripi, einfaldlega vegna þess að þeir eru svo dýrir að fáir
ráða við þá.“ QH
120