Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 122
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Atli Rúnar Halldórsson, ráðgjafi hjá Athygli, bendir
m.a. á firnagóða heimasíðu um stjórnmál í konungs-
ríkinu Noregi, http://www.politiskanalyse.no/.
Mynd: Geir Ólafsson
Atli Rúnar Halldórsson er ráðgjafi hjá Athygli
ehf., sem starfar á sviði almannatengsla. Hann
bendir hér á nokkra áhugaverða vefi.
htlp://www.ma.ís/kenn/svp/ Vefsetur Sverris Páls
Erlendssonar, menntaskólakennara á Akureyri.
Pistlarnir hans um íslenskt mál og málnotkun eru
sjálfvalin skyldulesning, aðgengilegir, fróðlegir og
skemmtilegir.
http://windowsmedia.com/radiotuner/MyRadio.asp
Radio Station Guide. Ef til er himnaríki þeirra sem
hlusta á útvarp þegar þeir puða við tölvuskjá hlýtur
þetta að vera Gullna hliðið.
www.ronning.is
Æi, vefurinn hjá Johan
Rönning er ósköp dapur og
leiðinlegur þó að hann sé
skínandi bjartur og einfaldur
útlits. Eiginlega ætti höf-
undurinn að fá verðlaun fyrir
besta nýtingu texta. Það er
nefnilega sami texti sem birt-
ist þrisvar, fyrst á aðalsíðu,
svo þegar smellt er á Fyrir-
tækið og loks þegar smellt er á Johan Rönning á listanum til vinstri.
Ekki beint til fyrirmyndar. Að öðru leyti er vefurinn hefðbundinn og
virðist einkum ætlaður til upplýsingar um fyrirtækið, ekkert til að
hrópa húrra fyrir enda fær hann ekki margar stjörnur. 33
www.edda.is ★★^
Bjartur og léttur bókavefur,
nokkuð kraðakslegur þó að
ekki virki það hamlandi á þá
sem eru vanir að vafra. Þetta
er stór og ítarlegur vefur,
margt að skoða og spreyta
sig á. Edda er greinilega
með mörg tilboð í gangi en
sá galli er á gjöf Njarðar að
fyrirtækið notar mikið
glugga sem opnast sjálfkrafa og verður að loka sérstaklega. Frekar
hvimleitt til lengdar. 33
http://pub.tv2.no/nettaviseii/ Nettavisen, norskur
netmiðill. Daglegar heimsóknir sem tengjast taugum
til Noregs frá því ég bjó þar forðum.
http://WWW.politiSkanalyse.no/ Aslak Bonde er
uppáhaldsfréttaskýrandinn minn í norskri pólitík,
fyrst í útvarpinu og svo á Aftenposten. Heldur úti
firnagóðri heimasíðu um sdórnmál í kóngsríkinu - á
sinn kostnað og eiginkonunnar.
http://www.myndasafn.is/ Rakst á merkilegt
Islandsmyndasaih Mats Wibe Lund í fyrra. Auðvelt
að gleyma sér við að skoða. Menningarsjóður.
http://WWW.kjOt.iS Bráðvel gerð og skemmtileg
síða um nautakjöt. Kjötsíðan hjálpar mér að muna
hvað helstu vöðvar í bolaskrokk heita.
http://www.veigar.is/ Vefur vínáhugamannsins.
Þarf ekki eitthvað gott að drekka með nautinu?
Notendavæn og aðgengileg síða. Spurning úr
umræðuhorninu: Er einhver sem getur ráðlagt mér
með góðan vínseðil fyrir brúðkaupið?
www.jpv.is ★★^
Hressilegur og líflegur
bókavefur, stútfullur af
fréttum af bókum og bóka-
fólki. Utlitslega ekkert
augnayndi enda kannski
meira lagt upp úr inni-
haldinu, ekki síst nú þegar
bókavertíðin er að ná
hámarki. Öllu er hrúgað ________________________ _____
saman og reynt að vekja athygli á því hvað JPV er að gefa út vinsælar
og áhugaverðar bækur. Miðillinn notaður til hins ýtrasta, t.d. með
tilboðum. 33
★ Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★★★ Góður
★ ★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit,
upplýsinga- og fræðslugildi,
myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is
122