Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 39
Jón flsgeir
Jón Ásgeir Jóhannesson er mest áberandi kaupsýslumaður
landsins. Hann stofnaði Bónus ásamt föður sínum og starfaði
meira eða minna við matvöruverslun þar til fyrir tveimur árurn
að hann fór að einbeita sér alfarið að erlendum flárfestingum og
byggja upp starfsemi fyrirtækisins í Svíþjóð, Bretlandi og Banda-
ríkjunum. Jón Ásgeir er 36 ára gamall og starfandi stjórnarfor-
maður Baugs Group. Hann hefur verið umdeildur og umræddur
' fiölmiðlum, fyrirtæki hans er ta.m. til skattrannsóknar. Jón
Asgeir þykir þó hæfur kaupsýslumaður og næmur á tækifæri.
Hann situr í stjórn tjölda fyrirtækja, m.a. Icelandair. Hann tengist
Hofsfjölskyldunni í gegnum sambýliskonu sína, Ingibjörgu
Pálmadóttur, flárfesti og innanhússhönnuði. HH
Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs
Group.
Guðjón Pétur Stefánsson, Samkaupum:
Nlikill hanaslagur
Eg held að þetta hafi ekki afgerandi þýðingu. Markaðurinn
hefur verið órólegur um nokkurn tíma og ég held að þessi
eigendaskipti geri ekkert útslag í því. Það er kominn nýr og
öflugur aðili inn á markaðinn og ekkert nema gott um það að
segja. Það er nú þegar bullandi samkeppni, mikill hanaslagur,
og ég sé ekki almennilega hvar samkeppnin gæti aukist.
Baugur hefur verið að sækja á og auka sína hlutdeild og ég
reikna með að þeir séu farnir að nálgast sín efri mörk. Það er
ekki víða sem einn aðili er með svona stóran hlut af kökunni.
Eg treysti mér ekki til að spá fýrir um hvernig því reiðir af en
við ætlum að keyra áfram með það fyrir augum að auka okkar
hlut,“ segir Guðjón Pétur Stefánsson, framkvæmdastjóri
Samkaupa.
Matvörumarkaðurinn hefur, að mati Guðjóns, verið að skila
ótrúlega slakri afkomu, það segir hann að fari ekki á milli mála
í ársreikningum og þeim fréttum sem af þeim hafi komið. „Það
eru tiltölulega fáir að sleppa sæmilega frá þessu,“ segir hann
og vill ekki fara nánar út í þá sálma. „Við getum út af fyrir sig
verið ánægðir með okkar hlut miðað við heildina. Við vorum
að skila um 240 milljónum króna í hagnað eftir skatta árið 2002.
Það verður verulegur samdráttur í afkomu í ár og ég reikna
með að hjá okkur nemi hagnaður eftir skatta 150 milljónum
króna. Ástæðan fyrir minni hagnaði er sú að í samkeppninni
hafa menn gengið nær sér. Markaðurinn hefur verið þannig,
matvöruverð hefur farið lækkandi og hefur verið mjög lágt í ár
og síðustu mánuðina á síðasta ári. Sókn viðskiptavina er í lág-
vöruverðsverslanir og þessum verslunum hefur verið að ijölga.
Krónan hefur haslað sér völl á tiltölulega stuttum tíma. Við
erum með 40% af okkar viðskiptum í lágvöruverðsverslunum
því að við erum með tvær Kaskó verslanir og svo Nettó versl-
anirnar. Europris er líka á þessu sviði. Það fýrirtæki er með
tvær þokkalega stórar búðir og ætlar að opna tvær nýjar á
næsta ári.“
Guðjón Pétur Stefánsson, framkvæmdastjóri Samkaupa.
Frítíminn af shornum shammli Guðjón Stefánsson er lítt
þekktur kaupmaður þó að hann hafi unnið við matvöruverslanir
hjá Samkaupum og forverum þeirra á fimmta áratug. Hann er
Suðurnesjamaður að uppruna, byrjaði hjá Kaupfélagi Suður-
nesja 13 ára gamall og hefur unnið flestöll störf í versluninni.
Guðjón varð framkvæmdastjóri árið 1988 en félagið hét þá enn
Kaupfélag Suðurnesja. Nafifið breyttist í Samkaup um áramótin
1998-1999. Félagið sameinaðist Matbæ ehfi, verslanafyrirtæki
KEA á Akureyri, tveimur árum síðar og heitir Samkaup í dag.
Starfsmenn eru rúmlega 500 talsins.
.Áhugamálin vilja hverfa i þessu ati en ég er félagi í Golf-
klúbbi Sandgerðis og reyni að fara í golf ef ég hef tækifæri eða
tíma til þess. Ég viðra líka hundinn Pésa, sem heitir Guðjón
Pétur eins og ég en kallaður Pési til aðgreiningar. Hann er
blendingur, að verða 11 ára gamall og því heldur eldri en ég. Svo
reyni ég að njóta mín með tjölskyldunni. Við, ég og konan mín,
eigum þrjú uppkomin börn og sex barnabörn. Vinnutíminn er
frá morgni tíl kvölds, 8-19 að jafnaði, en reyndar er ekkert spurt
um klukkuna. Frítínfinn er því heldur af skornum skammti."®]
39