Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 74
Ingi Þór Jakobsson, innanhússarkitekt og húsgagnahönnuður, eigandi EXÓ.
a l
EXÓ:
Kristall er eilífur
Húsgagnaverslunin EXÓ í Faxafeni fer
ekki troðnar slóðir. Hjá fyrirtækinu hefur
með tímanum safnast mikil reynsla og
þekking á því hvað viðskiptavinir vilja og í
framhaldi af því var farið út í að framleiða
íslensk húsgögn.
„Við erum með einn besta smið landsins,
hana Guðnýju hjá Vinnustofu Guðnýjar í Kópa-
voginum, og höfum fengið hana til að smíða
fyrir okkur,“ segir Ingi Þór Jakobsson, innanhússarkitekt og
húsgagnahönnuður sem ásamt eiginkonu sinni, Hönnu Birnu
Jóhannesdóttur, hefur rekið EXÓ frá upphafi.
„Framleiðsluvörurnar eru skápar, skenkar og borð sem við
ekki bara seljum hér á landi heldur einnig í húsgagnaverslun
okkar, EXÓ, í Noregi. Aferðin á húsgögnunum þykir mjög
falleg en þau eru oliuborin."
Slækhun 09 bnsytinyðr Húsnæði EXÓ var nýlega stækkað
um 140 fermetra til að koma fyrir nýjum deildum.
„Við ákváðum að skipta versluninni í deildir og þurftum því
meira húsnæði. Við bættum einnig við úrvalið, sérstaklega í
boðstofuhúsgögnum, eldhúsborðum og stólum, smávöru og
ljósakrónum en einnig í öðrum flokkum."
Það vekur athygli í ljósadeildinni að sjá gamaldags kristals-
ljósakrónur hangandi innan um nýtísku ljós og smáhluti en
Ingi Þór segir skýringu á því.
„Kristalsljósakrónur eru eitthvað hið
klassískasta sem til er og hafa verið stöðutákn
um aldir. Við erum með tvo af bestu framleið-
endum á kristalsljósakrónum, Swarovski í
Austurríki og Bohemia í Tékkóslóvakíu, en það
er mikið í tísku hjá færustu innanhúss-
hönnuðum að búa til nýtísku umhverfi og
stinga svo inn einni kristalsljósakrónu til að búa
til andstæður. Þetta sér maður í vönduðum
tímaritum og það kemur afskaplega vel út.“
LÍStakonan I EXÓ eru ekki bara húsgögn og gjafavara
heldur má sjá falleg listaverk víða í versluninni. Þetta eru verk
ungrar listakonu, Elísabetar Asberg, sem setti upp sýningu í
húsnæðinu og er nú með sýningu í EXÓ í Ósló.
„Elísabet býr til sérstök og falleg listaverk úr silfri og leðri
og okkur þykir gaman að geta sýnt verkin hennar hér,“ segir
Ingi Þór. „Þetta fer vel saman með húsgögnunum okkar og
setur skemmtilegan blæ á verslunina."
Nýtt og gamalt í bland Þó svo verslunin hafi stækkað talsvert
og breyst að undanförnu segir Ingi Þór hana halda stflnum.
„Við höfum gætt þess að viðskiptavinir þekki sig á staðnum og
höldum m.a. gólfinu að hluta eins og það var upphaflega í
búðinni, en höfum sett kókosteppi á nýju deildirnar. Eftír breyt-
ingarnar og stækkunina er búðin enn bjartari og stærri.“BH
Falleg og vel hönnuð
húsgögn og húsbúnaður
eru stolt hvers heimilis
og tilvalin jólagjöf, bæði
til fjölskyldunnar og
annarra.
74