Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 29
á íslandi, Jón!“
með ábyrgð Jóns og Siguijóns, nam um 320 milljón-
um króna og hafði gjalddaga á miðju næsta ári. Sig-
urður hvatti stjórnarmenn til að setjast niður með
lánardrottnum og ná samningum um endurfjár-
mögnun; skuldbreytingu lána, veðtryggðra sem
óveðtryggða, breytingu skulda í hlutafé eftír niður-
færslu núverandi hlutatjár og síðast en ekki síst
aukningu hlutatjár um 1-1,5 milljarða króna. Hann
benti á að skuldabréfaeigendur hefðu léð máls á
skuldbreytingu þegar í júlí.
Á ýmsu hefur gengið á bak
við tjöldin í herbúðum
Norðurljósa. Um tíma varð
td. stirt á milli þeirra Jóns
Ólafssonar og Sigurðar G.
Guðjónssonar, en Jón sakaði
Sigurð um tíma að hafa
snúist gegn sér. Þeir stírð-
leikar stóðu þó ekki lengi.
Texti: Guðrún Helga Sigurðardóttir
Tíminn að renna Út Þegar þarna var komið sögu
í byijun nóvember var því greinilega öllum ljóst, bæði stjórn-
endum og stjórnarmönnum félagsins, að tími tíl að endurfjár-
magna Norðurljós var að renna út. Norðurljós höfðu ekki leng-
ur neitt til að selja tíl lækkunar skulda nema hugsanlega Skífuna
og þá til Ragnars Birgissonar eða Eddu og til þess var enginn
vilji af hendi Jóns Ólafssonar enda hefði það ekki heldur dugað.
Sigurður G. átti á þessum tíma nokkur óformleg samtöl við Jón
Ásgeir J óhannesson og Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra Kaup-
þings-Búnaðarbanka, og nefndi við þá að Jón Ólafsson yrði
keyptur út og allar hans eignir hér á landi keyptar.
Á ýmsu gekk í samskiptum á þessum tíma og sakaði Jón
Ólafsson m.a. Sigurð G. um að hafa fundið sér nýja félaga og
bera ekki hag sinn fyrir bijóstí. Jón taldi líka að stjórn Norður-
ljósa gætí selt veðsett hlutabréf í íslenska útvarpsfélaginu og
Skífunni iýrir liðlega tvo milljarða króna og leyst tjárhagsvand-
ann með þeim hættí. Þetta þóttí flestum hrein fásinna og enda
dugði upphæðin ekki íyrir sambankaláninu auk þess sem bank-
arnir gátu hirt bréfin á matsverði og reynt að koma sér í samn-
ingsaðstöðu sjálfir.
Tilboð Jóns flsgeirs Niðurstaðan varð sú að Jón Ásgeir sendi
Jóni Ólafssyni tílboð 8. nóvember um kaup á öllum
eignum Jóns Ólafssonar hér á landi. Sendi hann
Jóni Ólafssyni tilboð í þessa veru 8. nóvember og
gilti það til 11. nóvember. Tilboðið gekk m.a. út á
það að Jón Ásgeir Jóhannesson keypti 62% í Norður-
ljósum, greiddi forgangslán Jóns Ólafssonar til
Norðurljósa, losaði hann út úr ábyrgðum í Kaup-
þingi Búnaðarbanka, auk þess sem félag á vegum
Jóns Ólafssonar ætti kauprétt á litlum hlut í endur-
skipulögðu félagi. Miðað er við að hlutafé í hinu
endurskipulagða félagi sé á bilinu 1,5-2 milljarðar
króna og heildarskuldir 4,5 milljarðar að hámarki.
Fasteignafélagið Stoðir kaupir fasteignir J óns Olafs-
sonar við Laugaveg, í Kringlunni og við Krókháls á
markaðsverði auk þess sem Þyrping og Keflavíkur-
verktakar kaupa lóðir Jóns Ólafssonar. Samkvæmt
heimildum Fijálsrar verslunar hefur Jón Ásgeir samþykkt að
koma inn í félag sem Jón Ólafsson hefur hug á að kaupa erlend-
is og hafa mifligöngu um að íslenskur banki lánaði í verkefnið.
í framhaldi af þessu tilboði fóru Jónarnir tveir í viðræður sem
leiddu til þess að aðfararnótt laugardagsins 15. nóvember var
gengið endanlega frá samningum um kaup á öflum eignum
Jóns Ólafssonar á íslandi. Söluverðið var rúmir 1,9 milljarðar
króna en miklar skuldir komu á móti, m.a. vegna upphaflegu
kaupanna á Arnarness-lóðunum.
Fyrir söluna á Norðurljósum var hlutafé félagsins fært niður
um 80% og samþykkt heimild til aukningar um allt að tveimur
milljörðum króna. Fulltrúar lánardrottna og eigenda Norður-
ljósa hafa unnið hörðum höndum að því að undanförnu að end-
urskipuleggja íjármál félagsins, skuldbreyta lánum, breyta
skuldum í hlutafé o.s.frv. þannig að heildarskuldir félagsins fari
úr 8,6 milljörðum í um 4,5 mifljarða króna.
Stefnt var að því að sú vinna lægi fyrir 1. desember, línurnar
yrðu klárar og handavinnan að mestu búin þannig að félagið
gæti byijað nýtt ár á nýjum grunni. Það hefði þá nýja eigendur,
nýja stjórn og nýjan Jjárhag. En þegar þetta er skrifað hefur enn
ekkert gerst. 55
Hluthafar
Þrír aðilar áttu 89% hlut í
Norðurljósum 24. nóvember 2003
Hlutafé fært niður um 80%
Jón Ásgeir Jóhannesson tæp 63%,
áður í eigu Inúít (Jóns Ólafssonar)
Kaupþing-Búnaðarbanki 14%
Sigurjón Sighvatsson rúm 12%
Gunnar Þór Ólafsson og Fiskiðjan 3%
Ýmsir 8%
(Steinar Berg, Pálmi Sigmarsson,
Nathan V. Pétursson, Patrik Leví,
Ragnar Birgisson o.fl.)
Tilboð Jóns Ásgeirs
til Jóns Ólafssonar
Kaup á 63% í Norðurljósum.
Greiða forgangslán og losa Jón
Ólafsson úr ábyrgðum í Kaupþingi
Búnaðarbanka.
Félag Jóns Ólafssonar kaupir lítinn
hlut í endurskipulögðu félagi.
Fasteignafélagið Stoðir kaupir:
Laugaveg
Kringla
Krókháls
Lóð í Garðabæ, Kópavogsmegin,
seld Keflavíkurverktökum.
Milliganga um sölu á 70
einbýlishúsalóðum.
29