Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 37
„Efdr helgina áttum við í viðræðum við fulltrúa bankans, m.a.
bankastjóra. Við töldum okkur hafa nægan frest þar sem for-
kaupsrétturinn gilti í 14 daga. Skyndilega tilkynntu þeir okkur
að þeir ætluðu að nýta forkaupsréttinn og hygðust selja öðrum
þó að við værum enn í viðræðum við þá. Með miklu harðfylgi
fengum við að koma að málinu aftur. Iiftir fund með bankastjóra
og fleiri yfirmönnum bankans varð niðurstaðan sú að við
myndum leggja hugmyndir okkar fyrir þá á mánudagsmorgni.
Hálfhma efdr þann fund hringdu þeir og sögðu að við yrðum að
leggja fram tílboð og öðrum aðila yrði einnig leyft að bjóða í
félagið. Við svo búið var ekki um annað að ræða en að leggja
fram tilboð. Á fundi með bankastjórunum á mánudegi tilkynntu
þeir okkur að þeir ætluðu að ganga að tilboði annars aðila,“
segir Sigurbjörn. „Framkoma bankans gagnvart okkur var með
eindæmum. Við vorum þarna nokkrir stórir viðskiptavinir
bankans til margra áratuga og héldum að við gætum átt í við-
ræðum við yfirmenn bankans án þess að þeir ættu í viðræðum
við aðra á meðan og þeir gætu haldið trúnað. Við erum mjög
undrandi á þessari framkomu og maður spyr sig hvort hægt sé
að eiga viðskipti við svona banka. Síðan veltir maður fyrir sér
eftír þessa atburðarás hvort Landsbankinn hafi ekki í rauninni
verið búinn að semja við Norvik fyrir löngu,“ segir hann.
„Vegna bankaleyndar get ég ekki tjáð mig um einstaka þætti
þessara viðskipta en ég vil þó benda á að Landsbankinn hefur
verið mikilvægur viðskiptabanki bæði S-hópsins og Norvikur
áratugum saman. Það er þvi ljóst að bankinn kom að þessu máli
á hlutlægan hátt og vildi gæta fullrar sanngirni í aigreiðslu
sinni,“ segir Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans.
„Eðlileg Viðskipti" Athygli vekur að í þessum viðskiptum
virðast menn almennt hafa vitað af samningi um forkaupsrétt á
milli Landsbankans og Framtaks og átt von á að Framtak hefði
samráð við Landsbankann um söluna. Innan Landsbankans er
sú skoðun ráðandi að sammæli hafi verið um það við Framtak
að Framtak myndi hafa samráð um hlutinn í Kaupási áður en
hann yrði seldur. Það gerðist þó ekki og ku Landsbankamenn
telja að þar hafi verið um mistök að ræða hjá forystu Straums
og Framtaks. Þórður Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Straums og stjórnarformaður Framtaks, segir svo ekki vera.
Báðum aðilum hafi verið ljóst að forkaupsréttur hafi verið til
staðar og svo hafi verið frá því áður en Straumur kom að Fram-
taki sem meirihlutaeigandi. Hluturinn hafi verið seldur öðrum
og Landsbankinn hafi gengið inn í samninginn. „Þetta eru
ósköp eðlileg viðskipti þar sem Landsbankinn nýtir forkaups-
rétt sinn,“ segir Þórður Már. SU
Pyrirtækið Kaupás varð til fyrir tjórum árum þegar verslanirnar Nóatún,
rKÁ og 11-11 runnu saman í eina heild. Sumarið 2000 keypti Eignar-
haldsfélagið Alþýðubankinn, EFA, og Landsbanki íslands félagið af stofn-
anda Nóatúns, Jóni Júlíussyni kaupmanni og íjölskyldu hans. Forkaups-
réttur Landsbankans á rætur að rekja til þessa tíma. EFA og Þróunarfélag
íslands sameinuðust í fyrrahaust og eignaðist Framtak þá 34% hlut í
Kaupási og í sumar eignaðist félagið rúmlega helmingshlut eftir kaup á
eignarhlutum stærstu lífeyrissjóðanna í Kaupási. Skömmu síðar komst
Framtak í meirihlutaeigu Straums og eignaðist Norvik um svipað leyti
einnig ijórðung í Framtaki. Hluturinn var kominn upp í 28% þegar hann
var seldur í ágúst. Straumur á 100% í Framtaki í dag. Stjórnarformaður
Framtaks er Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums.
Hjá Kaupási starfa um 1.200 starfsmenn.35
MATVÖRUKEÐJURIMAR
SAMKAUP
Kaskó - 2 búðir
Nettó - 4 búðir
Samkaup - 5 búðir
Sparkaup - 10 búðir
Strax - 5 búðir
Úrval - 5 búðir
KAUPÁS
Nóatún - 13 verslanir
11-11 - 11 verslanir
Krónan - 9 verslanir
HAGAR
Bónus - 21 verslun
Hagkaup - 7 verslanir
10-11 - 20 búðir
AÐRIR
Fjarðarkaup - 1 verslun
Europris - 2 búðir
Þín verslun - B verslanir
Sparverslun - 1 verslun
o.fl.
37