Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 130
FÓLK
Ingvar Garðarsson: „I gamla daga æfði ég skíði og hef verið haldinn skíðabakterí-
unni allar götur síðan, en því miður hefur verið lítið um skíðafæri hér á landi
undanfarið."
þeirri stöðu þar til því fyrirtæki var skipt
upp í tvö félög árið 2001, en þá varð ég
framkvæmdastjóri hjá því félagi sem var
með starfsemi á neytendamarkaði hér á
landi.“ Það fyrirtæki sameinaðist síðan
Islandssíma í fyrra og í framhaldi af því
kom inn meira Ijármagn sem nýtt var til
þess að efla félögin og kaupa TAL. I dag
eru þessi þrjú félög sameinuð undir
nafni Og Vodafone.
Ingvar tók sér frí frá endurskoðun-
inni í 9 mánuði árið 1993 og vann þá
fyrir Atlanta flugfélagið. „Eg var þá að
vinna með fyrsta hópnum sem fór til
Saudi Arabíu og var þar í teymi sem sá
um ijármálin. Þetta var bæði erfiður og
gefandi tími og ákaflega góð reynsla."
Ataksverkefni eiga vel við Ingvar
sem tók þátt í tveimur öðrum slikum
árin 1995-1996 þegar nokkur fyrirtæki
gerðu útrás til Rússlands. „I hópnum
voru Islenskar sjávarafurðir sem þá
voru í miklum viðskiptum í Rússlandi
og gerðu umfangsmikinn rekstrar-
samning við stórt sjávarútvegsfyrir-
tæki. Þetta gaf skemmtilega rnyrid af
því sem við Islendingar getum gert ef
við tökum okkur til.“
„I gamla daga æfði ég skíði og hef
verið haldinn skíðabakteríunni allar
götur síðan, en því miður hefur verið
lítið um skíðafæri hér á landi undan-
farið. Eg og sambýliskona mín, förum
til útlanda af og til með frábærum hópi
Ingvar Garðarsson hjá CVC á islandi
Texti: Vifidís Stefánsdótlir
w
Eg er að fara í ákveðið frumkvöðla-
starf og mun leita eftir frekari við-
skiptatækifærum fyrir CVC á sviði
fjarskipta," segir Ingvar Garðarsson
verðandi framkvæmdastjóri á fjarskipta-
sviði CVC Iceland Holding ehf. á
Islandi.
„Eg hef unnið með Kenneth
Peterson, sem á m.a. hlut í Og
Vodafone, um tíma og það má ef til vill
horfa á þennan flutning minn frá Og-
Vodafone, sem reyndar er frekar til-
færsla en flutningur, sem beina fram-
lengingu á því starfi.“
Starf Ingvars mun vera á sviði
alþjóðlegrar íjarskiptaþróunar og
segist hann hlakka mikið til þess að
takast á við það.
„Endurskoðun er góður grunnur
fyrir vinnu á nær hvaða sviði sem er,“
segir hann. „Eg útskrifaðist 1991 úr HI
sem viðskiptafræðingur og varð síðan
löggiltur endurskoðandi 1996. Eg starf-
aði við endurskoðun og ráðgjöf í 9 ár,
hjá Endurskoðunarmiðstöðinni N.
Mancher, sem í dag heitir Pricewater-
house Coopers. Eftir það starfaði ég hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu Netverki.
Síðan tók við mjög skemmtilegt starf
með Magnúsi Scheving við uppbygg-
ingu Latabæjar. Eftir það tók ég við
starfi ijármálastjóra Halló og gegndi
sem er tengdur Atlanta og þetta eru
skemmtilegustu fri sem nokkur maður
getur tekið,“ segir Ingvar. „Eg á 10 ára
gamlan son sem hefur mikið gaman af
fótbolta og ég tek þátt í því áhugamáli
með honum þó svo ég hafi lítið spilað
síðustu árin. Stærsta áhugamál fjöl-
skyldunnar eru hins vegar ferðalög. Við
höfum verið dugleg að ferðast um allt
landið og höfum haft virkilega gaman af
því. A tímabili voru tvær ferðir í Þórs-
mörk lágmarkið á ári fyrir utan allar
aðrar ferðir sem farnar voru. Nú kann
hins vegar að verða hlé á þessum
ferðum vegna anna á nýjum vettvangi.
Það er þó víst að við tökum þráðinn upp
á nýtt þegar um hægist. BH
130