Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 40
Sigurbergur Sveinsson, stofnandi Fjarðarkaupa, með syni sínum, Gísla Þór.
Feðgarnir í Fjarðarkaupum:
Ör þróun
leið,“ segir Sveinn Sigurbergsson verslunar-
stjóri þar sem þeir sitja feðgarnir þrír, Sigur-
bergur, stofnandi verslunarinnar, Sveinn og
Gísli, bróðir hans, inni á kontór í Fjarðar-
kaupum.
Mikið hefur verið af kjötútsölum síðustu
mánuði og misseri og þar hafa lágvöruverðs-
verslanirnar komið öflugar inn. „Við höfum
gert þetta líka með góðum árangri. Fólk hefur
elt þessi tilboð, viðað að sér og keypt kjöt á
lágu verði. Það kemur strax niður á kjötsölunni
næstu vikur á eftir. Ef boðið er upp á kjúklinga
á 199 krónur þá gefur auga leið að fólk kaupir
ekki kjöt á 490 krónur í vikunni þar á eftir
þannig að næsta alvöru sala er þegar næst er tilboð á kjöti.
Markaðurinn hefur verið að breytast miðað við það sem var
áður, tilboðin koma sterkar inn, sérstaklega í kjötinu,“ segir
Sveinn.
Hlutur lágvöruverðsverslunar hefur aukist gríðarlega mikið
undanfarna 15 mánuði á kostnað stórra og lítilla verslana.
Þetta hefur verið örari þróun en flestir bjuggust við og ekkert
lát á. Bónus er náttúrulega mjög öflug verslun á þessum
markaði, inn hefur komið Krónan sem hluti af Kaupás og svo
Kaskó, sem er falið leyndarmál á markaðnum. Aðrar versl-
anir hafa liðið fyrir íjölgun lágvöruverðsverslana þannig að
heildarframleiðnin hefur farið niður á við. Það gefur auga
Fjarðarkaup Lágvöruverðsverslun var stofnuð í Hafnarfirði
fyrir 30 árum af Sigurbergi Sveinssyni endurskoðanda og
Bjarna Blomsterberg kaupmanni og Ijölskyldurn þeirra. í dag á
Sigurbergur Sveinsson og fjölskylda hans fyrirtækið og starfa
kona hans, Ingibjörg Gísladóttir, og synir þeirra, Sveinn og Gísli
Þór, við fyrirtækið. Verslunin hefur yfir 4.500 fermetra yfirráða-
svæði og starfsmennirnir eru um 100 talsins. SD
Leifur Einar Arason, Europris:
Samþjöppun og barátta
r
Eg held að þessar breytingar séu jákvæðar. Þetta er miklu
eðlilegri eignaraðild að fyrirtækinu en var. Áður var frekar
óskýr eignaraðild að Kaupási, eigendurnir voru lífeyrissjóðir
og bankar, og menn virtust hafa mikla fjármuni milli handanna
en nú er eigandinn einn, flölskyldufyrir-
tækið Bykó, og það finnst mér miklu eðli-
legra. Við þetta held ég að Kaupás muni
styrkjast og fá skýrari stefnu," segir Leifur
Einar Arason, tjármálastjóri Europris. „Mat-
vörumarkaðurinn hefur einkennst af ofsa-
legri baráttu og samþjöppun, verslanirnar
hafa auglýst fyrir tugi milljóna króna á
mánuði í þessu stríði. Maður tekur ekki þátt
í þessum slag nema að auglýsa. Staðan hjá
okkur hefur verið góð. Það getur verið
slæmt að vera lítill í samkeppni við stór fyrir-
tæki en það getur líka verið gott að vera lítill.
Við erum ákveðnir í að stækka og munum
opna tvær verslanir á næsta ári, í Vestur-
bænum í Reykjavík og við þjóðveg eitt í
Hveragerði," heldur hann áfram.
EuropríS Europris á ekki langa sögu að baki, fyrsta versl-
unin var opnuð á Lynghálsi í Reykjavík 21. júlí 2002 og sú
seinni skömmu síðar, 21. sept., í Skútuvogi 2. Eigendur
Europris eru Matthías Sigurðsson framkvæmdastjóri, Ottó
Guðmundsson og Lárus Guðmundsson. Matthías hefur ára-
langa reynslu úr matvælaversluninni, starfaði m.a. hjá föður
sínum í versluninni Víði í gamla daga. Hinir eigendurnir
koma úr innflutningsgeiranum. B3
Leifur Einar Arason, fjármálastjóri Europris.
40