Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 76
Hafdís Rafnsdóttir hjá fyrirtækja- og veisluþjónustu Karls K. Karlssonar.
Karl K. Karlsson hf.:
Glæsiveislun án fyrirhafnar
Sælkerar elska góðan mat og gott vín og
þeir sem bjóða til veislu vita það og leita
til fagfólks þegar á þarf að halda. Hjá
Karli K. Karlssyni hf. er að finna gott úrval af
mat- og drykkjarvöru fyrir sælkera og veitir
fyrirtækið ráðgjöf um val á víni og drykkjum
og hefur milligöngu um faglega ráðgjöf og
framreiðslu í samvinnu við fagfólk.
„Við flytjum inn gott úrval léttra vína og annarra áfengra
drykkja,“ segir Hafdís Rafnsdóttir hjá fyrirtækja- og veislu-
þjónustu Karls K. Karlssonar hf.
„Við erum einnig með frábært úrval matvæla frá ýmsum
löndum, ekki síst Ítalíu, Spáni og Frakklandi, löndum sem
þekkt eru fyrir ástríðufulla matargerð. Parmaskinkuna
þekkja margir og ítalska osta og svo Canapé sem
kemur frá Frakklandi. Við erum með flölda tilbú-
inna rétta sem henta í stærri sem smærri
boð.“
Jólunum fylgja veislu-
höld, gjafir og gleði en
auðvitað fyrirhöfn líka.
Karl K. Karlsson býður
upp á frábærar lausnir.
„Við erum með körfur af öllum mögulegum
stærðum og gerðum og geta þær verið allt frá
því að innihalda kaffi og súkkulaði og upp í
stórar körfur sem í eru matur og vín frá
ýmsum löndum. Það fer svo allt eftir vali hvers
og eins hvernig körfurnar eru samsettar en
starfsfólk KKK hefur gott hugmyndaflug og
kann að setja saman góðar körfur.
Sælheramatur í jólagjöf jóiagjahr
geta verið svolítill höfuðverkur,
hvort sem um er að ræða í starfs-
manna- eða fyrirtækjagjafir. Hafdís
segir sælkerakörfur bæði góða og
skemmtilega lausn á því.
„Það þykir öllum gott að borða og sérstaklega þegar um er
að ræða mat og vín sem er sérvalið út frá gæðum,“ segir hún.
76
Verðlaunavín Þeir eru margir sem safna víni og enn fleiri
sem hafa áhuga á góðu víni og vilja njóta þess.
Hafdís segir það hafa aukist að fyrirtæki gefi
starfsfólki og viðskiptavinum sérvalið
vín í jólagjöf.
„Fjnir þessi jól höfum við í boði
sérvaldar og margverðlaunaðar eðal-
víntegundir, í árgöngum sem orðnir
eru illfáanlegir víða. Vínin eru í
glæsilegum gjafaöskjum og sóma
sér vel sem gjöf.“ BD
Vandaðar gjafaöskjur frá hinum virta
framleiðanda Jean Leon í Katalóníu.
Jean Leon Merlot 1996, sem hlaut
gullverðlaun á Vin Italy 1999, er eitt af
mörgum verðlaunavíntegundum sem
eru fáanlegar í fyrirtækjaþjónustu Karls
K. Karlssonar hf.