Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 26
Forstjórar Stöðvar 2 frá upphafi
1. Jón Óttar Ragnarsson
2. Þorvarður Elíasson.
3. Páll Magnússon.
4. Jafet Ólafsson.
5. Jón Ólafsson.
6. Hreggviður Jónsson.
7. Sigurður G. Guðjónsson.
FORSÍÐUGREIN
félagsins á Holiday Inn í byrjun apríl 1992. Þeir
sameinuðust Aramótahópnum sem keypti hlut
eignarhaldsfélags Verslunarbankans.
Hinn nýi meirihluti hélt velli til vorsins 1994. Þá
hófst aftur mikil dramatík er Siguijón Sighvatsson
söðlaði um og myndaði óvænt meirihluta með
þeim Jóni, Haraldi, Jóhanni og fleirum. Þar með
var gamli meirihlutinn aftur kominn til valda;
mennirnir sem reistu stöðina við eftir brotthvarf
þeirra Jóns Ottars og félaga.
Stórtíðindin 1995 Ballið var ekki búið. Hinn nýi
Halelúja! Jón Óttar Ragnarsson, fyrsti sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, var meirihlutiundirforystuJónsÓlafssonar,Siguijóns
útnefndur markaðsmaður Norðurlanda fyrir sölu á 40 þús. afruglurum. Sighvatssonar, Haralds Haraldssonar og Jóhanns
J. Ólafssonar keypti minnihlutann út úr félaginu á
ingi þessa hóps var Ingimundur Sigfússon, þáverandi forstjóri
Heklu. Þegar allt virtist klappað og klárt tyrir undirskrift á
gamlársdag 1989 hrökk bankinn í baklás og hætti við.
I hálfgerðu losti hélt ijárfestingahópurinn út á Hótel Loft-
leiðir til að fá sér kaffisopa og ræða málin. Úr varð stofnun
hins fræga Áramótahóps sem síðar (sumarið 1992) kom við
sögu.
JÖn Ólafsson 09 félayar Verslunarbankinn samdi síðan
eftir áramótin við fylkingu kaupmanna undir forystu þeirra
Haralds Haraldssonar í Andra, þáverandi formanns í Félagi
íslenskra stórkaupmanna, Jóhanns J. Ólafssonar, þáverandi
formanns Verslunarráðs, Guðjóns Oddssonar, þáverandi for-
manns Kaupmannasamtaka Islands, og Jóns Ólafssonar í
Skífunni. Þessir hópar reistu félagið við. Inni í þessum hópum
voru menn eins og Jóhann Óli Guðmundsson, þá í Securitas,
og Bolli Kristinsson í Sautján. Siguijón Sighvatsson, kvik-
myndagerðarmaður í Hollywood, bættist fljótlega í hópinn.
I byijun maí árið 1990 voru Stöð 2, íslenska útvarpsfélagið
(Bylgjan) og Sýn sameinuð undir einn hatt; íslenska útvarps-
félagið og bar fyrirtækið það nafn til ársins 1999 er Norður-
ljósin urðu til. Skifan rann inn í það fyrirtæki.
Hallarbyltingin vorið 1992 Til tíðinda dró í sögu íslenska
útvarpsfélagsins vorið 1992 þegar Jóhann Óli og Bolli í
Sautján gerðu fræga hallarbyltingu á æsispennandi aðalfundi
vormánuðum 1995 (28. apríl) fyrir 1 milljarð króna. Þetta
þóttu stórtíðindi á sínum tíma og með mestu hlutabréfavið-
skiptum hér á landi. Takk fyrir, einn milljarður! Síðan eru lið-
in átta ár og tölurnar í hlutabréfaviðskiptum hafa bólgnað.
Hlutabréf minnihlutans, um 250 milljónir að nafnverði,
voru seld á einn milljarð. Gengið var 4,0. Ekki er hægt að
segja annað en að Jón Ólafsson og félagar hafi gert vel við
minnihlutann, óvini sína sem hann hafði barist hatrammlega
við, þ.e. Aramótahópinn og fleiri. Flestir sem kejiptu bréfin af
Eignarhaldsfélagi Verslunarbankans árið 1992 höfðu keypt
þau á bilinu 1,45 til 1,70. Þeir voru því að fá um 2,67-földun á
bréfin á þremur árum; um 39% á ári. Ágætt, ekki satt.
Norðurljós urðu til árið 1999 Næstu alvöru þáttaskilin urðu
sumarið 1999 þegar stofnað var nýtt félag, Norðurljós, utan
um rekstur Islenska útvarpsfélagsins og Skífunnar. Stærstu
hluthafarnir voru Jón Ólafsson, þ.e. félag hans, Inúít, með
tæp 63%, Kaupþing 15%, Siguijón Sighvatsson 12,5% , Gunnar
Þór Ólafsson og Fiskiðjan 3% og aðrir smærri, m.a. starfs-
menn, með um 8%. Við stofnun Norðurljósa seldu þeir
Haraldur Haraldsson og Jóhann J. Ólafsson sinn hlut í ís-
lenska útvarpsfélaginu.
Þá erum við komin í núið. Jón Ólafsson hefur kvatt Stöð 2
eftir þrettán ára starf og selt Jóni Ásgeiri sinn hlut - þó núna
séu raddir um að Jón Ásgeir verði ekki í hópi nýrra tjárfesta
sem muni yfirtaka stöðina. S9
JÓN ÓLAFSSON:
„Greiðslugeta langt
umfram greiðslubyrði“
Morgunblaðið átti athyglisvert viðtal við Jón Ólafsson um
tilurð Norðurljósa fyrir fjórum árum. (24. júlí 1999) Þar
sagði Jón skuldsetningu Norðurljósa ekki áhyggjuefni og
lánasamning samrunans einhvern hinn hagstæðasta sem
íslenskt fyrirtæki hefði gert. Greiðslugeta yrði langt umffam
greiðslubyrði. S5
NORÐURLJÓS:
ÁÆTLUÐ 7 MILLJARÐA
VIRÐI VIÐ STOFNUN
Forráðamenn Kaupþings, sem keypti 15% hlut í Norður-
ljósum við stofnun þeirra sumarið 1999, töldu að markaðs-
virði félagsins væri í kringum 7 milljarðar króna. En hlutafé
Norðurljósa í upphafi var 1,6 milljarðar króna. Gengi bréfanna
var því um 4,4 í upphafi. SH
26