Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 96
Krydd og kossar
Hótel Glymur í Hvalfirði
býður gestum sínum upp
á óvenjulega lífsreynslu
Innan um antikmuni og list frá öllum
heimshornum njóta gestir þeirra Hans-
ínu Einarsdóttur og Jóns Rafns Högna-
sonar dvalarinnar á Hótel Glym í Hvalfirði. Hótelið, sem áður
hýsti Norræna skólasetrið og er opið allt árið, hefur gjörbreytt
um svip og í vel búnum og sérstökum herbergjum má sjá per-
sónulegan stíl þeirra hjóna, en engin tvö hinna 22 herbergja
eru eins. „Þegar ég sá þetta hús standa hér í hlíðinni í Hvalfirði
fyrir mörgum árum síðan, sá ég strax hversu frábært það væri
fyrir ráðstefnur og fundi,“ segir Hansína sem áður rak ráðgjafa-
fyrirtækið Skref fyrir skref. „Eg átti kost á því að kaupa hlut í
húsinu 1999 ásamt öðrum og gerði það en svo gerðist ekki
mikið fyrr en ég kynntist Jóni árið 2000. Þá hófumst við handa
um uppbyggingu og höfum unnið að því síðan.“
Hótel Glymur er rekið af þeim Jóni Rafni Högna-
syni og Hansínu B. Einarsdóttur.
saman húsgögnum og listmunum frá ijölskyldunni. Þannig
stendur á því að sófinn hennar ömmu er í stofúnni. Svo höfum
við ferðast gríðarlega mikið og erum hér með listmuni frá
öllum heimshornum og í viðbót við það koma stundum send-
ingar frá erlendum gestum okkar sem finnst okkur vanta eitt-
hvað ákveðið frá sínu heimalandi. Þetta gerir að verkum að
hótelið þykir ákaflega heimilislegt og þægilegt, enda er það
andinn sem við viljum hafa í því.“
og frábæra aðstöðu til
ráðstefnuhalds.
Ráðstefnur og fundir Á hótelinu eru 22 herbergi, þrír ráð-
stefnusalir og húsið vel nettengt. Frábær aðstaða úti við þar
sem hægt er að nota heita potta og fara í gönguferðir í
nágrenninu. Hansína segir hægt að vera með allt að 40-60
manna ráðstefnur og fundi. „Gestir eiga þess kost að fara í
styttri ferðir, söguferðir og skoðunarferðir um nágrennið en
það hefur mælst ákaflega vel fyrir,“ segir Hansína. „Hér eru
alltaf nokkrar sýningar í gangi og aðrir listviðburðir og stöðugt
í gangi sýning á gömlum íslenskum húsbúnaði. Á kvöldin er
hér m.a. tónlist eða önnur gleði og auðvitað frábær matur."
Oðruvísi hótel Húsgögnin og fistmunirnir hafa vakið athygfi
enda ekki alveg hefðbundinn búnaður á hótefi. „Þegar til stóð
að opna hér áttum við ekki peninga til að innrétta allt í ein-
hverjum ákveðnum stíl og því var brugðið á það ráð að safna
Tveir markhópar Þó svo mikil áhersla sé lögð á ráðstefnur
og fundi, gleymast ekki almennir gestir. „Við leggjum mikla
áherslu á að sinna vel fólki sem vill komast í fallegt og róman-
tískt umhverfi og eiga notalega helgi,“ segir Hansína. „Fyrir þá
gesti bjóðum við sérstaka pakka sem heita m.a. „Krydd og
kossar" og „Norðurljósafantasía.“
Krydd og kossar eru ýmist sólarhringur eða helgi og tekið
er vel á móti fólki. Þvi er vísað í herbergi og fengnir sloppar og
kynnt dagskráin sem miðast við að fólk vilji slaka á og hafa það
gott auk þess sem áhersla er á rómantíkina að sjálfsögðu. Hvað
Norðurljósafantasíuna varðar þá er í pakkanum sólarhringsdvöl
þar sem innifafinn er „gala“ kvöldverður með sjö réttum og öllu
víni sem fólk vill. Farið er í ýmsar ferðir, m.a. söguferð í Hval-
fjörð þar sem sagt er frá hernámsárunum á fifandi hátt Og af
því að fólk vill gjarnan sofa út, er sú regla höfð hér í heiðri að
hafa „brunch“, morgunverð, frá kl. 10-13. Gestir koma gjarnan
berfættir og í sloppunum að borðinu og fara svo kannski í
pottinn og fá sér þá jafnvel meira að borða að því loknu.“
Fyrir utan hótelið eru glæsilegir heitir pottar með útsýni yfir Hvalfjörðinn.
JÓIÍn í Hvalfirðinum í viðbót við hefðbundna
pakka og ráðstefnuhald er lögð sérstök áhersla
á jól og jólahald. Þar gefst bæði Islendingum og
erlendum gestum færi á að halda upp á jófin á
séríslenskan máta og það sama gildir um
áramótin. „Það eru ekki alfir sem vilja hafa fyrir
því að setja upp jól heima hjá sér og þá er gott
að geta verið innan um aðra og átt notalega
daga,“ segir Hansína. „Hér er hægt að hafa það
eins og hver og einn vill, hvort sem það felur i
sér gönguferðir, bókalestur eða annað. Aðeins
er þess gætt að hver og einn fái þau jól sem
hann kýs að eiga.“[ffl
96