Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 64
rréraR
Eyþórtekur
við í Norður-
Ameríku
Eyþór Bender, fV. framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Össurar hf., hefur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Össur North America en Össur keypti
í haust bandarísku fyrirtækjasamstæðuna Generation
II. Eyþór vill sjá aukinn innri vöxt á næsta ári.
Effir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttnr
Eyþór hefur þegar tekið við starfi framkvæmdastjóra fyrir
Össur North America. Eins og kunnugt er keypti Össur
Generation II samstæðuna í byrjun nóvember fyrir 2,4
milljarða íslenskra króna, eða 31 milljón dollara, og verður
farið í að sameina íyrirtækin í ár og á næsta ári. Eyþór segir
að þessi vinna sé þegar hafin. I tengslum við kaupin var gert
samkomulag um að Gary Wertz, framkvæmdastjóri Össurar
North America, og þrír lykilstarfsmenn á sölu- og markaðs-
Eyþór Bender, framkvæmdastjóri Össurar North America.
„Við viljum sjá hér að minnsta kosti aukinn innri vöxt til
lengri tíma litið."
sviði, myndu láta af störfum hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur
nú sett upp nýja yfirstjórn, sem Eyþór segir að sé blönduð
nýjum og gömlum stjórnendum frá Islandi, Seattle og Los
Angeles og bindur Eyþór miklar vonir við að sameiningin
gangi hratt og vel fýrir sig.
Vinna markaðshlutdeild „Ég þekki ágætlega starfsemina
hérna úr mínu lýrra starfi sem sölu- og markaðsstjóri sam-
steypunnar þannig að ég kem ekki alveg nýr að þessu. Mitt
helsta verkefni hér verður að sameina þessi fýrirtæki og auka
vöxt. Við höfum ekki vaxið eins mikið hér á þessum markaði
og við hefðum viljað. Teljum reyndar að við höfum verið að
Baugur fer í
tryggingamar
Baugur hyggst hasla sér völl í alhliða tryggingastarf-
semi og hefur keypt hehningshlut í vátryggingafélag-
inu Verði á Akureyri. Verið er að breyta Verði í hluta-
félag og stendur til að hafa samstarf við Allianz.
Effir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Baugur hefur keypt helmingshlut í Verði og mun leggja
fram 300 milljónir króna þegar búið er að afgreiðsla
umsókn félagsins hjá Fjármálaeftirlitinu um formbreyt-
ingu úr gagnkvæmu félagi í eigu tryggjenda í hlutafélag sem
verður til helminga í eigu Baugs og eignarhaldsfélags sem
verður stofnað upp úr gagnkvæma félaginu. Baugur hyggst
efla hið nýjafélag með því að auka hlutaféð. Óli ÞórÁstvalds-
son, framkvæmdastjóri Varðar, vill ekkert tjá sig um iýrir-
ætlanir nýrra eigenda, en í fjölmiðlum hefur komið fram að
fýrirhugað sé að opna umboðsskrifstofu í Reykjavík og heija
samstarf milli Varðar og Allianz-umboðsins, en dótturfélag
Baugs, Hringur, á 65% í Allianz. Allianz starfar aðallega við
sölu á söfhunarlíftryggingum og viðbótarlífeyrissparnaði og
er því á öðrum markaði en Vörður.
„Þessi formbreyting gerir fyrst og fremst kleift að styrkja
félagið með auknu eigin fé svo að það geti tekist betur á við
þau verkefni sem það hefur verið að vinna í,“ sagði Óli Þór í
samtali við blaðamann Fijálsrar verslunar.
Búist er við að niðurstaða Fjármálaeftirlitsins liggi fýrir um
eða eftir áramót. Aðalfundur verði haldinn í apríl á næsta ári
og verður þá skipt um stjórn.
Hvaða félag er þetta? Vörður vátryggingafélag var stofnað
af útvegsmönnum í Eyjafirði árið 1926 og er því í hópi elstu
tryggingafélaga landsins. Félaginu var í upphafi valið nafnið
Vélbátasamtrygging Eyjaijarðar en því síðan breytt í Vélbáta-
trygging Eyjafjarðar. Félagið var lengi eingöngu í bátatrygg-
ingum. Árið 1991 hóf það að bjóða upp á frumtryggingar í
áhafnatryggingum og afla- og veiðarfæratryggingum og
nokkrum árum síðar sameinaðist Skipatrygging Austíjarða
Vélbátatryggingu Eyjaljarðar. 1996 fékk félagið leyfi til að
taka upp starfsemi í nýjum vátryggingagreinum og var
64